Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2015, Page 18
2 Veitingar - Kynningarblað Vikublað 22.–24. september 2015
Texasborgarar við Grandagarð
M
atreiðslumeistarinn
Magnús Ingi Magnússon
hefur í nógu að snúast
úti á Granda við að metta
svanga maga, en þar rekur
hann tvö veitingahús með afar ólíku
sniði; annars vegar fiskveitinga-
húsið Sjávarbarinn og hins vegar
hamborgarastaðinn Texasborgara.
Magnús hefur komið víða við á ferli
sínum sem veitingamaður og það
eru fáir veitingamenn sem geta stát-
að af eldri kennitölu en hans sem
hefur verið sú sama frá árinu 1988.
Ferskir sjávarréttir
Á hinu örlaga-
ríka ári 2007 fann
Magnús húsnæði
úti á Granda og
ákvað að stofna þar
nýtt veitingahús.
„Ég opnaði fisk-
veitingastað alveg
eins og ég vildi hafa
hann,“ segir Magn-
ús sem opnaði þar
hinn landsþekkta
veitingastað Sjáv-
arbarinn. Sjávar-
barinn er líflegur
og heimilislegur
sjávarréttastaður
þar sem íslenskir
fiskréttir eru í önd-
vegi. Staðurinn varð fljótt
gífurlegra vinsæll. „Þetta varð miklu
vinsælla en ég bjóst við, sérstaklega
hjá erlendum ferðamönnum sem
sækja mikið í íslenska fiskinn.“
Frá upphafi hefur aðalsmerki
Sjávarbarsins ver-
ið ferskar fiskvörur, enda fiskmark-
aðurinn aðeins spölkorn frá. „Við
flökum fiskinn sjálf og göngum frá
honum fyrir eldamennskuna,“ út-
skýrir Magnús. „Það er yfirleitt mest
að gera á sumrin,
svo róast aðeins
í október, en um
miðjan nóvember fer allt af stað aftur
með jólaveislunum,“ segir Magnús.
Skatan hans Magnúsar hefur orðið
alveg sérstaklega vinsæl í gegnum
árin, en hann verkar skötuna sjálfur.
Að sögn Magnúsar er alltaf líf
og fjör í hádeginu þegar svangt fólk
sem vinnur í grenndinni fjölmenn-
ir á staðinn. Á hlaðborðinu er úrval
heitra og kaldra fiskrétta og hægt að
ganga að fiskibollum og plokkfiski
vísum, auk þess sem alltaf er einn
kjötréttur í boði ásamt fersku græn-
meti og öðru meðlæti. Á kvöldin er
andrúmsloftið afslappaðra og tilval-
ið að gæða sér á t.d. hvítlauksristuð-
um humri, sjávarréttapönnu með
ferskasta fiski dagsins ásamt skelfiski
eða matarmikilli fiskisúpu. Og að
sjálfsögðu er boðið upp á hákarl og
brennivínssnafs. n
" "
Klipptu miðann út og taktu hann með þér Klipptu miðann út og taktu hann með þér
Innborgun að verðmæti 1.500 króna fyrir Sjávarréttapönnu,
úrval af besta sjávarfanginu okkar og skelfisk.
Gildir til 25.10. 2015.
2 FYRIR 1
af Texas-ostborgara
með frönskum.
Aðeins 1.290 kr. fyrir tvo.
Gildir til 25.10. 2015.
Sjávarréttur Ljúffenga sjávar-
réttapanna, en hér til hliðar er hægt að
klippa út 1.500 króna inneign í slíka pönnu.
T
exasborgarar er hamborgara-
staður með
klassísku „am-
erísku“ sniði.
Þar eru bornir
fram stórir 140 gramma
hamborgarar í sérbök-
uðu brauði með sósu,
jöklasalati, tómötum og
rauðlauk. „Mig langaði til
að breyta til og opna allt
öðruvísi stað en Sjávar-
barinn. Ég ákvað því að
opna hamborgarastað,“
segir Magnús.
„Ég fæ mikið af vinnu-
hópum í hádeginu, iðnað-
armenn og skrifstofufólk, og það eru
alltaf einhverjir sem vilja alls ekki
fisk. Þá geta þeir farið yfir á Texas-
borgara. Svo eru aðrir sem vilja alls
ekki hamborgara heldur bara fisk, og
þá geta þeir hoppað yfir á Sjávarbar-
inn. Þannig hafa staðirnir stutt hvor
annan þó að þarna sé alveg hvor sín
línan í matargerð. Stundum er mjög
mikið að gera á Texasborgurum og
svo öfugt.“
Á Texasborgurum er kjötið hakkað
á staðnum og hamborgararnir útbún-
ir þannig að þeir fái rétta bragðið og
áferð. Texas-ostborgarinn er langvin-
sælasti hamborgarinn á matseðlin-
um, en þarna er einnig boðið upp á
grænmetisborgara og lúxusborgara
með beikoni og béarnaise. Svo koma
reglulega hamborgarar á matseðilinn
sem tengjast árstíðinni hverju sinni,
t.d. lambaborgari á vorin og hrein-
dýraborgari á haustin.
Lifandi hafnarmenning
Þegar Magnús Ingi hóf veitinga-
rekstur við Grandagarð var hann sá
eini sem var þar með opið veitinga-
hús á kvöldin. Margt hefur þó breyst
úti á Granda á síðustu árum og nú
fjölgar veitingahúsunum stöðugt á
þessu svæði. „Ég fagna hverjum nýj-
um stað sem er opnaður hér,“ segir
Magnús. „Staðirnir styðja hver ann-
an, og allir staðirnir hafa sína sér-
stöðu. Þetta svæði er alltaf að verða
betra og betra. Hér er einnig mikið af
flottum söfnum, eins og Hvalasafnið,
Sjóminjasafnið, og Sögusafnið, sem
draga til sín mikið af fólki og það skilar
sér til okkar. Þetta er mjög skemmtileg
þróun. Við erum hægt og rólega að ná
upp svipaðri menningu eins og er að
finna á Íslandsbryggju í Kaupmanna-
höfn og öðrum skandinavískum
hafnarborgum. Það eru stöðugt fleiri
sem vilja hefja rekstur úti á Granda.
Aðgengið hingað úr miðbænum
er sömuleiðis alltaf batna, t.d. með
skemmtilegum gönguleiðum í gegn-
um hafnarsvæðið. Þetta verður bara
betra og betra.“
Allar frekari upplýsingar um
matseðla og opnunartíma má finna á
vefsíðunum texasborgarar.is og sjav-
arbarinn.is. n
Ferskir sjávarréttir
Gegn verð-
hækkunum
Þrátt fyrir að margir birgjar hafi
hækkað verðið hjá sér talsvert á
undanförnum árum hefur verðið
á veisluþjónustu Magnúsar, Mínir
menn, haldist óbreytt í mörg ár. Og
það stendur alls ekki til að hækka
það. Það er þeirra framlag til að
halda verðbólgu í skefjum svo að
lánin okkar allra haldi ekki enda-
laust áfram að hækka. Klassíska
hlaðborðið okkar kostar 1.990 kr.
á mann og verðið á öðrum hlað-
borðum og veislumat er í sama
dúr. Skoðaðu matseðlana á vefn-
um þeirra, minirmenn.is.
Ekta „amerískir“ hamborgarar
Matreiðslumeistari
Magnús Ingi Magnússon,
eigandi Sjávarbarsins og
Texasborgara, með girni-
lega sjávarréttapönnu.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
amerískur Yfirbragðið er
amerískt í Texasborgurum.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
Texasborgari Ekta
amerískur hamborgari úr
sérhökkuðu nautakjöti ásamt
frönskum og sósu.
Heimilislegur sjávarréttastaður