Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Page 2
Helgarblað 18.–21. desember 20152 Fréttir Hefur hafið afplánun Birkir Kristinsson, fyrrverandi viðskiptastjóri hjá Glitni, hefur hafið afplánun fangelsisdóms- ins sem hann hlaut á dögunum. Hann er mættur á Kvíabryggju, að því er Stundin greinir frá. Birkir, sem varði mark karlalandsliðsins í knattspyrnu um árabil, hlaut fjögurra ára fangelsisdóm fyrir umboðssvik, markaðsmisnotk- un og brot á lögum um ársreikn- inga í tengslum við 3,8 milljarða lánveitingu til félags í eigu Birkis árið 2007. Birkir er fimmti fanginn á Kvíabryggju um þessar mundir, sem áberandi var í viðskiptalíf- inu fyrir hrun. Fyrir eru þar fjórir menn sem stýrðu Kaupþingi. Vantraust eykst Tæpur þriðjungur Íslendinga vantreystir Þjóðkirkjunni, sam- kvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. 37 prósent svara því til að þau beri mikið traust til kirkjunn- ar. Þeim sem treysta henni hefur fækkað um þrjú prósentustig á einu ári. Síðasti þriðjungurinn, 30 prósent, ber hvorki mikið né lítið traust til Þjóðkirkjunnar. 71 pró- sent þeirra sem taka afstöðu vill aðskilnað ríkis og kirkju. Fram kemur að þeir sem kysu Fram- sóknarflokkinn eru hliðhollastir Þjóðkirkjunni en fæstir kjósenda Bjartrar framtíðar og Pírata. Öll börn í Kulusuuk fá íslenskar jólagjafir Mikil fátækt á svæðinu og því allur gangur á því hvort börn fái glaðning F jórða árið í röð verður íslensk- um jólagjöfum dreift til barna í Grænlandi á vegum Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands. „Þrjú síðast- liðin ár höfum við farið til Nuuk og heimsótt þar barnaheimilið Pitu með jólapakka. Þar dvelja börn sem hafa verið tekin frá foreldrum sínum af ýmsum ástæðum,“ segir Róbert Lag- erman, einn af vöskum liðsmönn- um Hróksins. „Í ár fengum við hins vegar þá hugdettu að fara dagsferð til Kulusuuk og gefa öllum börnum í þorpinu jólapakka. Það eru um sjötíu börn,“ segir Hrafn og bendir á að fá- tækt á svæðinu sé mikil og allur gang- ur á því hvort að krakkar í Kulusuuk fái glaðning í tilefni jólanna. Prjónahópur lagði hönd á plóg Fjölmörg fyrirtæki og einstakir vel- gjörðarmenn hafa lagt hönd á plóg og vinna Hróksmenn að verkefninu í nánu samstarfi við Kalak, vinafélag Ís- lands og Grænlands. Það er þó óhætt að segja að potturinn og pannan í starfinu sé Hrafn Jökulsson, sem fyrr á árinu fékk viðurkenningu Barna- heilla – Save the Children á Íslandi fyrir mannúðarstarf sitt fyrir börn hérlendis og á Grænlandi. Mikið hef- ur mætt á Hrafni í desember við að skipuleggja ferðina. „Ég er snortinn yfir þeim mikla velvilja sem fyrirtæki og einstaklingar hafa sýnt okkur. Það eru margir sem hafa stutt okkur með ráðum og dáð í gegnum árin en svo slást reglulega nýir í hópinn. Meðal annars var prjónahópur í Gerðubergi sem prjónaði gjafir handa grænlensk- um börnum,“ segir Hrafn brosandi. Dugmikill hópur sjálfboðaliða tók sig saman og pakkaði inn gjöfunum, sem síðan voru sendar í fraktflugi til Grænlands. „Vinir okkar hjá Flugfé- lagi Íslands hafa reynst okkur afar vel og stutt okkur með ráðum og dáð í gegnum árin. Við fljúgum svo fjór- ir til Kulusuuk þann 22. desember og afhendum börnunum í þorpinu gjaf- irnar,“ segir Hrafn. Að sögn Róberts rætist þar langþráður draumur: „Við verðum að sjálfsögðu klæddir upp eins og jólasveinar í tilefni dagsins,“ segir hann og hlær. Vill stórauka samvinnu við Grænland Síðastliðin tólf ár hafa Hrafn og Ró- bert, á vegum Hróksins, staðið að fjölmörgum uppákomum fyrir græn- lensk börn. Áherslan var á að kynna skáklistina fyrir nágrönnum okkar en góðgerðarstarfið einskorðast ekki við reitina sextíu og fjóra. Sem dæmi má nefna söfnun fyrir nýju tónlistarhúsi í Kulusuuk þegar hið eldra brann, ár- legar ferðir grænlenskra barna til þess að læra að synda á Íslandi og auðvit- að jólaheimsóknirnar. En af hverju Grænland? Í samtali við DV fyrr á ár- inu sagði Hrafn: „Grænlendingar eru besta og blíðlyndasta þjóð sem ég hef kynnst, gjörsneyddir hroka og yf- irlæti. Þeir líta á Íslendinga sem vini sína og við ættum að hugsa miklu meira til þeirra. Í raun og veru er ótrúlegt hversu fáir Íslendingar hafa heimsótt landið. Margir hafa heim- sótt lönd á fjarlægustu stöðum jarðar- kringlunnar en aldrei stigið niður fæti á Grænlandi. Grænlendingar, eins og fleiri, glíma við ýmsa erfiðleika en framtíðin er björt. Við eigum að stór- auka samvinnu við nágranna okkar á Grænlandi og Færeyjum.“ Svo mörg voru þau orð. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Verðlaunaðir Hrafn fékk verðlaun Barnaheilla – Save the Children árið 2015 fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda. Við hlið hans er Róbert Lagerman en lengst til hægri er Stefán Þór Herbertsson, formað- ur Kalak – vinafélags Íslands og Grænlands. Fullfermi Stefán Þór Herbertsson, formaður Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, kom pakkafarganinu í frakt til Grænlands. Pakkarnir verða svo afhentir þann 22. desember. Jólapakkar Hér sjást Róbert og Hrafn ásamt hjónunum Isavaraq og Vivi Petrus- sen, sem reka heimili í Nuuk fyrir börn sem ekki geta verið heima hjá sér vegna erfiðra aðstæðna. Þeir félagar komu færandi hendi í fyrra en núna er stefnan sett á Kulusuuk. Gleði Fjölmörg grænlensk börn hafa notið gjafmildi Hróksins og Kalak síðustu tólf ár. F yrir fimm árum rakst Ástríður Halldórsdóttir á vinkonu sína á förnum vegi. Sú starfaði sem blaðamaður á DV og sá um að bera spurningu dagsins undir veg- farendur. Hún greip vinkonu sína traustataki og í ljósi árstíðarinnar var spurningin: „Ertu farin/n að huga að jólum?“ Ástríði vafðist ekki tunga um tönn og var henn- ar svar fullkomlega laust við há- tíðlega helgislepju: „Nei, jólin eru fyrir aumingja.“ Ummælin voru að sjálfsgögðu sögð í gríni en í kjöl- farið var smellt af mynd þar sem Ástríður gerði sitt besta til að túlka reiði, pirring og fýlu, allt í senn. Eins og sjá má er óhætt er að segja að henni hafi tekist vel upp. Ástríð- ur skellihló að uppátækinu þegar blaðamaður DV hafði samband við hana á dögunum. Hún gerði sér enga grein fyrir því að ummælin yrðu birt á sínum tíma og brá því nokkuð þegar hún sá myndina af sér á síðum blaðsins. Þau féllu hins vegar í góðan jarðveg og síðan þá hafa ummælin reglu- lega verið rifjuð upp á samfélags- miðlum. Árið í ár er engin undan- tekning og meðal annars deildi tónlistarmaðurinn Barði Jóhanns- son ummælum Ástríðar á Face- book-síðu sinni í nýliðinni viku og vöktu þau mikla lukku. „Ég hef svo sannarlega orðið vör við að þessu sé deilt í kringum hátíðarnar og flestum finnst þetta mjög fyndið. Það er gott að geta glatt fólk,“ segir Ástríður hlæjandi í símann. Hún er stödd í Þýskalandi þar sem hún ætlar að halda upp á jólin þetta árið en ýmislegt hefur breyst síðan að svar hennar birtist á síðum DV. „Ég er búin að eignast tvö börn síðan og því er óhætt að segja að ég myndi svara þessari spurningu á annan hátt í dag. Ég er löngu far- in að huga að jólum,“ segir Ástríður Halldórsdóttir. n bjornth@dv.is „Nei, jólin eru fyrir aumingja“ Fimm ára grín í spurningu dagsins lifir góðu lífi á samfélagsmiðlum Fúl, reið og pirruð Myndin af Ástríði undir- strikaði ískalda afstöðu hennar til jólanna. Mokkajakkar - Fatnaður Leðurjakkar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.