Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 18.–21. desember 2015 „Fann allt smella saman í sálinni“ n Þrjátíu árum eftir að Brynja var ættleidd frá Srí Lanka leitar hún nú upprunans n Tilfinninga þrungin stund að fá fæðingarvottorðið öllum sem eru skyldir mér. Núna er ég komin með staðinn, héraðið þar sem ég fæddist, er komin með fjöl- skyldunafnið þannig að það þrengir mjög leitina. Sem er gott. Ég veit um eina hér á landi sem er lengra kom- in í þessu ferli, sem var ættleidd frá Tyrklandi. Hún fór að leita að for- eldrum sínum og fann systkini sín. Þannig að núna er hún í sambandi við þau í dag.“ Brynja kveðst enn vera að ná sér eftir tilfinningarússíbanaferðina á miðvikudag og að hún muni vega það og meta í rólegheitum hvort hún ráðist í upprunaleitina. Það er þó eitthvað sem henni finnst hún verða að gera. Óvissuför „Ég er að vega og meta líka hvern- ig ég kem út úr þessu. Þetta tekur gífurlega á andlega. Að takast á við svona upplýsingar, svona grunnupp- lýsingar sem virka svo einfaldar og sjálfsagðar fyrir marga en eru í raun- inni stórt og erfitt skref fyrir mig. Ég er að renna blint í sjóinn og finnst frábært hvað þetta hefur gengið hratt og vel fyrir sig núna til að byrja mér, því ég hélt að það myndi taka marga mánuði að fá svona upplýs- ingar. Þannig að ég veit þegar kem- ur að þessari ferð, ég mun auðvitað fara þarna út, veit ekki hvenær en það verður endapunkturinn á þessu og ég veit ekkert hvernig tilfinningar það mun framkalla. Þegar ég fer út og stíg inn í þetta land, þessa menn- ingu sem er allt öðruvísi en ég er vön. Það verður eitthvert sjokk. Þetta er eitthvað sem ég verð að gera og mér finnst ég bara tilbúin í það núna.“ Þakklát móður sinni Aðspurð hvaða tilfinningar hún teldi að það myndi framkalla að hitta loksins líffræðilega móður sína á Srí Lanka og hvort einhverjar spurn- ingar myndu vakna, segir Brynja að það yrðu engar spurningar í raun. Hún yrði bara þakklát. „Ég held ég myndi bara gráta út í eitt, af þakklæti og gleði. Yfir því að hún gaf mér tækifæri á nýju og betra lífi. Að vera ættleiddur gefur manni öðruvísi sýn á lífið. Maður er þakk- látur fyrir allt. Allt það smáa, maður fer að hugsa út í það hvað maður er heppinn í rauninni, miðað við að- stæðurnar sem eru þarna úti. Þetta var stríðshrjáð land og mjög mikil fá- tækt, sem er eflaust ástæðan fyrir því að hún gaf mig til ættleiðingar. Eina sem ég gæti komið upp úr mér væri bara þakklæti. Ef ég myndi mæta henni þá myndi ég bara faðma hana fyrir það sem hún gerði fyrir mig. Maður getur ekki einu sinni ímynd- að sér hversu mikinn styrk þarf til að gefa barnið sitt til ættleiðingar og vita að maður muni aldrei sjá það aftur. Maður treystir hinni manneskjunni, sem maður þekkir ekki neitt, til að gefa barninu gott líf. Það er það eina sem maður getur treyst á. Það er svo- lítið mögnuð tilfinning. Nú á ég sjálf barn og ég hugsa bara: „Vá, hvað ef þetta hefði verið ég?“ Ef ég hefði ekki getað gefið barninu mínu svona gott líf og þyrfti að gefa því á annan hátt líf með því að gefa það til ættleiðingar og ætti enga aðra kosti. Þetta er ein dýrmætasta gjöf sem mér hefur verið gefin. Tækifærið á nýju lífi. Þannig að ég sé lífið í öðruvísi ljósi vegna þessa. Ég ætla því að njóta og vera þakklát. Ég er bara þakklát, alltaf. Það hefur alltaf fylgt mér. Ég get ekki lýst því, það er sérstakt.“ Lífsbjörg að komast til Íslands Brynja var í hópi barna sem ætt- leidd voru frá Srí Lanka á árunum 1984 til 1986. Brynja telur að tíma- setningin sé líklega vegna þess að þá var vopnahlé í landinu og tækifær- ið var notað til að koma börnum á betri staði með ættleiðingu. Á Akra- nesi eru sex stelpur þaðan á svipuð- um aldri. Þann 14. desember síðastliðinn voru nákvæmlega 30 ár síðan Brynja kom til Íslands, sex vikna gömul og veikburða. Í fæðingarvottorðinu sem hún fékk í vikunni fékk hún einnig staðfestan fæðingardag sinn. „Það stóðst alveg, en stundum getur það skekkst því að upplýsingar geta verið á reiki. En ég er enn að koma mér á jörðina, að melta þess- ar upplýsingar sem færa mig nær því hver ég hefði getað verið. Ég hefði örugglega ekki lifað af, vegna þess hvernig ástandið á mér var úti á Srí Lanka. Ég var veik eins og svo mörg börn voru þarna úti. En við sem kom- um til Íslands á þessum tíma höfum braggast ótrúlega vel. Það hefur verið séð afskaplega vel um okkur og mað- ur er innilega þakklátur fyrir það. Þegar ég græt yfir þessum upplýsing- um þá er það ekki af því ég er sorg- mædd. Það er af þakklæti og gleði. Ég hlakka til að sjá hvað þetta ferli gefur mér og hvernig það mun þroska mig. Ég verð allavega ekki söm eftir þetta. Nú er fyrsta púsluspilið, af vonandi mörgum, fundið.“ n „Ef ég myndi mæta henni þá myndi ég bara faðma hana fyrir það sem hún gerði fyr- ir mig. Maður getur ekki einu sinni ímyndað sér hversu mikinn styrk þarf til að gefa barnið sitt til ættleiðingar. Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Bætiefni www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland BENSÍN BÆTIEFNI Fyrir allar bensínvélar með eða án hvarfakúts · Hreinsar bensíndælu, leiðslur og innspýtingarkerfi. · Kemur í veg fyrir botnfall í soggrein, túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun · Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnisskynjara. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í elds- neytiskerfi og sprengirými. · Kemur í veg fyrir stíflaða ventla. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. DÍSEL BÆTIEFNI Fyrir allar díselvélar þ.m.t. common rail og öðrum olíuverkum · Hreinsar eldsneytiskerfi og brennslukerfi. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. · Kemur í veg fyrir botnfall í túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í eldsneytisgeymi. · Minnkar bank í mótor. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. SÓTAGNASÍUHREINSIR Hreinsiefni til að hreinsa kolefni og sótagnir úr sótagnasíum. · Losar um og fjarlægir kolefn- isagnir úr sótagnasíu. · Ekki þarf að taka kút úr við hreinsun. · Sparar peninga þar sem ekki þarf að skipta um sótagnasíu. (þetta fer eftir ástandi á sótagnasíu) · Efnið er ekki eldfimt. · Málm- og öskulaus formúla · Gufar upp án þess að skilja eftir sig óhreinindi fyrir allar vélar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.