Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Síða 34
26 Skrýtið Sakamál Helgarblað 18.–21. desember 2015
Satis.is
Satis ehf | Fákafeni 9 | Sími: 551 5100 | www.satis.is
Sjáðu SKY
með NowTV
netmyndlykli
Ekki lengur þörf að setja upp disk. Kauptu SKY áskrift
af skemmtipakka SKY, Sky Movies eða Sky Sports.
Allir nýjir viðskiptavinir fá Sky Movies frítt
í 3 mánuði og Skemmtipakkann í 2 vikur.
Enginn
binditími
Eitt fullkomnasta VOD kerfi í heimi
Verð frá 3.490 kr. á mán.
Morð í Malibu
n Beausoleil var handtekinn á stolnum bíl n Var í Manson-fjölskyldunni
Þ
ann 6. ágúst, 1969, stöðv-
aði vegalögreglan í Kali-
forníu bílstjóra við San
Luis Obispo. Undir stýri
sat Bobby Beausoleil, 21
árs upprennandi tónlistarmað-
ur og leikari, sem var að auki með-
limur „fjölskyldu“ Charles Manson.
Beausoleil hafði á sínum tíma átt að
leika í kvikmynd Kenneths Anger,
Lucifer Rising, en féll í ónáð hjá An-
ger og því varð ekkert úr verkefninu.
Hvað sem því líður þá kom í ljós
að bíllinn var stolinn og Beausoleil
því handtekinn á staðnum. Bíllinn
tilheyrði 34 ára tónlistarkennara,
Gary Hinman, sem hafði verið
myrtur 27. júlí þetta sama ár.
Lélegt meskalín veldur deilum
Það sem gerst hafði var að Beausoleil
hafði, ásamt vinkonum sínum Susan
Atkins og Mary Brunner, farið heim
til Hinmans 25. júlí. Þangað kom-
in krafðist Beausoleil endurgreiðslu
2.000 Bandaríkjadala sem Hinman
hafði fengið þegar hann seldi mót-
orhjólagenginu Straight Satans, að
sögn Beausoleil, lélegt meskalín.
Hinman neitaði að endurgreiða
féð og brugðu Beausoleil og vin-
konurnar á það ráð að halda hon-
um föngnum á hans eigin heimili, í
Malibu.
Árangurslaus innheimta
Beausoleil var með skammbyssu
í fórum sínum og hótaði að beita
henni ef Hinman yrði ekki að kröf-
um hans. Þeir tókust á, Hinman
hafði betur og náði að afvopna
Beausoleil.
Í stað þess að hafa samband við
lögregluna skilaði Hinman byss-
unni til Beausoleil og sagði þrem-
enningunum að hypja sig. Síðar
kom í ljós að það voru banvæn mis-
tök hjá Hinman, því um miðnæt-
urbil komu Beausoleil og vinkon-
ur hans aftur og með þeim í för var
enginn annar en Charles Manson.
Pólitíski grís
Manson var reiður mjög og skar
í annað eyra Hinman. Einhverra
hluta vegna gerðu Susan og Mary
að sárinu og saumuðu með tann-
þræði. Manson yfirgaf síðan húsið
en gaf Beausoleil þau fyrirmæli að
myrða Hinman. Beausoleil gerði
sem honum var sagt; hann stakk
Hinman til bana og skrifaði með
blóði hans á vegginn – Pólitíski grís.
Leiddar hafa verið líkur að því að
hefði Beausoleil ekki verið hand-
tekinn hefði hann að öllum líkind-
um tekið þátt í hinum alræmdu
Tate-LaBianca morðum sem skóku
Bandaríkin nokkrum dögum síðar,
en að sjálfsögðu er þar um hreinar
getgátur að ræða.
Fjögurra barna faðir í fangelsi
Bobby Beausoleil var sakfelldur
fyrir morð og dæmdur til dauða 18.
apríl 1980. Með nýrri löggjöf árið
1972 breyttist dómurinn í lífstíðar-
fangelsi og árin 1976 til 1979 lauk
Beausoleil við tónlist fyrir kvik-
myndina Lucifer Rising sem var
loks kláruð 1980.
Árið 1981 gekk Beausoleil í
hjónaband með Barböru Ellen
Baston og, þar sem fangelsi í Kali-
forníu bjóða gestum fanga að gista
yfir nótt, er nú fjögurra barna faðir.
Beiðni Beausoleil um reynslu-
lausn var hafnað árið 2010 og dvel-
ur hann enn á bak við lás og slá. n
„Um miðnæturbil
komu Beausoleil
og vinkonur hans aftur og
með þeim í för var enginn
annar en Charles Manson.
Fjögurra barna faðir
Beausoleil er kvæntur,
fjögurra barna faðir.