Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Qupperneq 41
Helgarblað 18.–21. desember 2015 Menning 33 2015 Kæst og söltuð skata Sterk kæst tindabikkja Reykt tindabikkja Saltfiskur Plokkfiskur Steiktar fiskbollur Grjónagrautur með slátri Rúgbrauð, smjör og síldarsalöt Flatkökur með hangikjöti Skonsur með rúllupylsu Gulrætur, rófur, kartöflur, hnoðmör, hamsatólg og brætt smjör. Eftirréttur: Jólamöndlugrautur og íslenskar smákökur. Möndlugjöf fyrir heppna matargesti Aðeins 4150.- pr mann 1/2 gjald fyrir 6-12 ára Frítt fyrir 5 ára og yngri Pantið tímanlega Geirsgötu 7c · 101 Reykjavík · 511 2300 www.hofnin.is jólabókaflóðinu, og listaháskóla­ verkefni sem fanga athygli þjóðar­ innar – allt þetta kemur fyrir í bók­ inni – en fyrst og fremst fjallar Heimska um sýnileika, það að vera stöðugt sjáanlegur og geta séð aðra, og það hvernig mann­ skepnan tekst á við tilvist í beinni útsendingu. Bókin gerist á Ísafirði í fram­ tíðinni, þegar samfélagsmiðl­ ar og eftirlitsvæðingin hafa sam­ tvinnast þannig að allir geta fylgst með öllum, öllum stundum. Áki og Leníta eru rithöfundar og fyrr­ verandi hjón sem nýta sýnileikann sem vopn til að hefna sín á hvort öðru – eftir að þau skrifa óvart sömu bókina í hvort í sínu lagi. DV ræddi við Eirík Örn um Heimsku, tíðarandann og játn­ ingar, netlöggur og sýnileika. Ítarlegra viðtal við höfundinn má finna á menningarsíðu dv.is. Að troðast framhjá netlöggunni til að sjást Heimska tekst mjög skýrt á við sam­ félagið í dag, þeir sem hafa lesið bókina snemma í haust hafa vafa­ laust getað speglað nokkur helstu fréttamál vetrarins í skáldsögunni. Bókin tekst á við tíðarandann sem við erum öll svo undirorpin – tíðar­ anda sem mótar hvert okkar svo skýrt að það kæmi manni varla á óvart ef tveir rithöfundar myndu skrifa sömu bókina á sama tíma eins og parið í Heimsku. Einn vinur blaðamanns kom reyndar með þá kenningu að bloggskrif Eiríks um bækurnar væru til þess að festa sér hugmyndirnar, svo enginn annar skrifaði bókina á undan honum – er það rétt? „Þegar ég skrifaði Illsku hafði ég stöðugar áhyggjur af því að verða einhvern veginn of seinn – að hún yrði „búin“ þegar ég loks næði að klára hana. Kannski ekki að neinn annar myndi skrifa hana en að hún yrði ekki „relevant“. Það hefur svo reynst vera þveröfugt – sem er auðvitað áhyggjuefni út af fyrir sig [innsk.blm. bókin fjall­ aði meðal annars um útlendinga­ hatur og uppgang hægri popúlisma í Evrópu]. En það gerði það að verk­ um að ég var nokkuð afslappaðri á meðan ég skrifaði Heimsku, sem ég þagði mestmegnis yfir þar til ég var búinn að skrifa. Ég skilaði hins vegar handritinu svo snemma – bloggaði eiginlega mest til að reyna að ná utan um hugmyndirnar, að fá skýra mynd af því sjálfur hvað ég hefði gert. Og maður veit það aldrei fyrr en eftir á, ég skrifa ekki með „intellektinu“ heldur ósjálfrátt, „instinktíft“,“ segir Eiríkur. „Ég held að öruggasta leiðin til þess að segja ekkert um eða við tíðarandann sé að ætla sér það – ef eitthvað er óstöðugt og hverfult þá er það tíðarandinn. Það hljómar hálf barnalega að segja það en ég vil bara skrifa bækur um lífið sem ég lifi, heiminn í kringum mig, bækur sem ég vil lesa, allar þær klisjur. Ég skrifaði lokaútgáfuna af Heimsku í Víetnam – sem er alræðisríki, þar sem með manni er fylgst. Ég þurfti svo að fara krókaleiðir til að komast inn á Facebook og láta fylgjast með mér hinum megin frá. Ég lagði það beinlínis á mig að troðast framhjá netlöggunni til að sjást, til að vera með í hysteríunni – og það þegar ég hafði ferðast yfir hálfan hnött­ inn með það fyrir augum að geta verið í friði. Og það kom mér ekk­ ert á óvart. Og þar lá líka lykillinn að því að klára hana – að ég gat séð hvað hún var í raun persónuleg.“ Einlægni í hysterískri hakkavél Eftir að hafa kynnst því að vera ávallt sýnilegur verður það hrein­ lega óþægilegt að vera ekki til sýnis. Út frá þessari vangaveltu kviknaði bókin og í einum kafla fáum við innsýn í líf nokkurra bæjar búa á því augnabliki sem hið stöðugu eftirlit stöðvast í nokkur augnablik – viðbrögðin og tilfinn­ ingarnar. Eiríkur segir að við skrif bókarinnar hafi tilfinningar hans í garð sýnileikans breyst umtalsvert. „Ég byrjaði að skrifa Heimsku mjög sympatískur í garð þessa sýnileikaþjóðfélags – en einhvern veginn kom ég út úr henni með miklu meira óþol á samfélagsmiðl­ um og þannig hóp­performönsum en ég átti von á. Ég hef tekið þátt í öllu sem ég gat á internetinu frá því að ég fékk fyrst innhringitengingu árið 1995 og hef notið þess inni­ lega, eignast vini, haldið sambandi við fólk um allan heim, ritstýrt vefritum og bloggað – tekið þátt í íslensku menningarsamfélagi á hátt sem mér hefði aldrei verið kleift að gera án þess. En einhvern veginn er mér farið að finnast þetta allt alveg fullkomlega óþolandi. Að maður skuli varla geta gert neitt lengur sem er ekki sýning fyrir einhvern – og ég held mér finnist næstum verstar tilraunirnar til ein­ lægni, að þær skuli allar lenda í þessari hysterísku hakkavél,“ segir Eiríkur. Allt „sínískt“ nema persónuleg kynni Í vetur hefur nokkuð verið rætt um játningakúltúr samtímans á Íslandi, þessi tilhneiging hefur birst í játn­ ingaviðtölum helgarblaða á undan­ förnum áratugum og sjálfsævisögu­ legum skrifum rithöfunda, en kannski er mikilvægasta nýja játn­ ingatæknin stöðuupp færslur sam­ félagsmiðla – þar sem allir og ömm­ ur þeirra geta opnað sig fyrir stærri hóp en nokkurn tímann hefur verið mögulegt í fortíðinni. „Það er auðvitað erfitt að ætla að kommenta eitthvað á játn­ ingakúltúrinn, nema til að hrósa honum, án þess að koma út úr því einsog hvínandi skíthæll. Og auðvitað hefur hann opnað á alls konar umræðu sem var tímabær og nauðsynleg. Sannleikurinn gjörir yður frjálsan og það allt saman. En hann er líka frekur herra – og það er ekki allt satt sem virðist vera satt og ekki allt logið sem er skáldskapur. Kannski er ekkert einlægara og ær­ legra en kaldhæðnin þegar til kast­ anna kemur. Hún hefur það í öllu falli fram yfir einlægnina að vera ekki jafn yfirdrepsfull, sá sem talar af kaldhæðni krýnir sig ekki sam­ tímis – hvorki með þyrnum eða gulli. En svo er vandinn á endan­ um sá að það er ekkert svæði eftir sem er ekki „performatíft“, ekkert svæði þar sem maður „bara er“ og í slíku samfélagi verður næstum allt „sínískt“ utan raunverulegra, náinna, persónulegra kynna. Strax og við missum takið hvert á öðru – eins og þegar Áki og Leníta skilja í Heimsku – verður fjarlægðin svo mikil,“ segir Eiríkur. n Menance var mikið gagnrýnd fyrir áherslur sínar á stjórnmálaþróun­ ina, en hér er hún alveg fjarverandi. Er First Order heimsveldið? Ef svo er, hvers vegna er þá lýðveldið til líka, og ef þeir eru það ekki, hvers vegna er þá til andspyrnuhreyfing og hvað er sambandið milli hennar og lýðveld­ isins? Hver vann eiginlega stríðið eft­ ir fall keisarans, er þetta það sama eða eitthvað annað? „En ekki hugsa of mikið,“ segir Abrams, „líttu frekar á enn aðra hasarsenuna.“ Bætt er fyrir syndir fyrri mynda með því að láta allar hetjur undir sjö­ tugu tilheyra minnihlutahópum en vondu kallarnir fá enn að vera hvítir og því kannski ekki að undra að þeir séu örlítið áttavilltir hvað hlutverk sín áhrærir. Sith og herarmur veldis­ ins takast á, en eru hér eins og smá­ strákar að rífast frekar en Moff og Vader. Þegar Kylo Reese (nei, Ren, sorrí) tekur af sér hjálminn lítur hann út eins og Justin Trudeau, ný­ kjörinn forsætisráðherra Kanada, og maður veit að þetta fríða andlit mun ekki endast lengi óskaddað. Söguþráðurinn gengur að mestu út á heimskulegar ákvarðanir allra persóna. „Ég nenni þessu ekki, ég er farinn,“ „Eftirlýst vélmenni? Ég veit, förum með þau á barinn,“ kannski var það alltaf þannig. Menn valsa inn og út úr höfuðstöðvum óvina eins og þeim hentar og stormsveitar­ hermennirnir hafa ekki enn lært að skjóta. Samræðurnar eru ekki jafn hrópandi vondar eins og oft hjá Lucas en ekki góðar heldur og persónusköpun er að mestu fjarver­ andi. Gamli góði Sóló fær þó loks senuna sem honum var neitað um í „Jedi“. Manni þykir nú þrátt fyrir allt svo vænt um þetta allt saman að ekki er annað hægt en að skemmta sér vel, jafnvel þótt fátt komi á óvart. En maður lifir enn í voninni um að sjá einhvern tímann raunverulega góða SW­mynd í fyrsta sinn síðan 1980. Kannski verða „spinoff“­myndirnar betri? n Geta stormsveitarhermenn grátið? „Einhvern veginn er mér farið að finnast þetta allt alveg fullkomlega óþolandi. Að maður skuli varla geta gert neitt lengur sem er ekki sýning fyrir einhvern

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.