Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Side 46
38 Fólk Helgarblað 18.–21. desember 2015
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjum á
heimilinu
með því að
hlaða snjall-
símann og
stærri raftæki
á einum og
sama staðnum
Tengill með USB
Sniðug lausn fyrir hvert heimili og fyrirtæki
Hafðu
samband
við okkur
eða næsta
löggilda
rafverktaka
Vissirðu að þau
eru alkóhólistar?
n Fíkn fræga fólksins er misáberandi n Sumir tóku ferilinn fram yfir áfengið
G
lamúrlífið er ekki alltaf dans
á rósum og margar af þekkt-
ustu stjörnunum hafa glímt
við áfengis- og lyfjafíkn.
Stundum er fólk að flýja erf-
iðleika og álag með því að deyfa sig
með vímugjöfum, en stundum verð-
ur það einfaldlega hluti af glamúr-
lífinu að vera sífellt að fá sér í glas.
Margir hafa náð að fara leynt með
fíknina á meðan aðrir eru meira
áberandi með sín vandamál. Þá eru
líka dæmi um fólk sem tók fíkn-
ina föstum tökum áður en það varð
frægt. Hér eru nokkur dæmi um
þekkta einstaklinga sem hafa glímt
við áfengis- og/eða lyfjafíkn án þess
að það hafi verið mjög áberandi fyrir
aðra en þeirra nánustu. n
Saknar sopans Kristin Davis
sem fór með hlutverk hinnar siðprúðu Charlotte í sjón
varpsþáttunum Sex and the City glímdi við alvarlegan
áfengisvanda frá því hún var unglingur og þangað til
hún varð 22 ára. Þá varð hún að velja á milli áfengisins
og starfsframans. Ef hún hefði haldið áfram á þeirri
braut sem hún var á er ekki víst að hún hefði lifað fram
að þrítugu, sögðu læknar henni. Það er mikill alkóhólismi
í fjölskyldunni hennar og það var strax ljóst að hún réð
sjálf ekki við drykkjuna. Hún hefur í seinni tíð viðurkennt
að hún sakni þess stundum að fá sér í glas. Áfengið hafi
auðveldað henni að slaka á og vera hún sjálf.
Fékk skorpulifur
Billie Holiday glímdi við alvarlega áfengis
sýki frá unga aldri. Æskuárin voru erfið,
en móðir hennar var vændiskona og sjálf
starfaði Holiday í móttöku vændishúss um
tíma áður en söngferillinn hófst. Áfengis
drykkjan hafði mikil áhrif á líkamlega heilsu
hennar. Hún fékk skorpulifur og læknar ráð
lögðu henni að hætta að drekka. Holiday
gat hins vegar ekki staðist áfengið og hún
lést aðeins 44 ára gömul.
Skammaðist sín Ewan McGregor misnotaði áfengi um
tíma þótt það virðist aldrei hafa bitnað á leikferli hans. Drykkjan hafði hins vegar
áhrif á hann persónulega. Hann segist til dæmis hafa verið gjörsamlega sturl
aður með áfengi þegar hann lék í kvikmyndinni Trainspotting. Hann segist hafa
verið fljótur að fara úr því að vera glaður drykkjumaður yfir í að vera maður sem
hann skammaðist sín fyrir. Sem betur fer gerði hann sér grein fyrir vandanum
og greip inn í áður en hann fór að missa það sem hann hafði unnið svo hart
að. McGregor man vel eftir augnablikinu þegar hann áttaði sig. Hann hitti
Iggy Pop en var svo fullur að hann gerði sig að algjöru fífli. Í minningunni er það
vandræðalegasta augnablik lífs hans.
Hjálpaði fíknin? Johnny
Depp hefur glímt við við áfengisfíkn þótt það hafi
ekkert bitnað á leikferli hans. Það er jafnvel spurn
ing hvort áfengið hafi hjálpað honum að
túlka karaktera á borð við Jack
Sparrow í Pirates of the
Caribbean. Hann
fór á kostum í
því hlutverki en
Sparrow þessi
átti líklega að
vera undir áhrifum
áfengis öllum stundum.
Allavega miðað við hvernig
hann hagaði sér.
Náði sér á strik Ben Affleck fór í
meðferð árið 2001 eftir að hafa átt erfitt tímabil sem ein
kenndist af drykkju og hálfgerðu vonleysi bæði í einkalífi
og starfi. Hann átti sína lágpunkta í kvikmyndabransan
um á meðan hann drakk sem mest. Myndirnar hans voru
slakar og hann fékk slæma dóma. Hann náði sér hins vegar
aftur á strik eftir að hafa farið í meðferð og hefur gert frá
bæra hluti síðan. Hann fékk meira að segja Óskarsverðlaun
fyrir kvikmyndina Argo, árið 2013. Hann hefur þó ekki alveg
haldið sig frá Bakkusi því hann hefur stöku sinnum sést með
drykk í hönd. Það virðist þó ekki hafa áhrif á feril hans.
Fékk taugasjúkdóm
Daniel Radcliffe er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
galdrastrákurinn Harry Potter. Hann var aðeins 11 ára
gamall þegar fyrsta myndin var frumsýnd og mikið álag
fylgdi því að verða frægur svona ungur. Það hafði sitt
að segja þegar hann fór að drekka áfengi. Svo greindist
hann með taugasjúkdóm sem gerir honum stundum
erfitt fyrir við daglegar athafnir. Hann var stundum svo
slæmur við tökur á Harry Pottermyndunum að það varð
að gera hlé á meðan verstu köstin riðu yfir. Þetta eru
stærstu áhrifaþættirnir sem vöktu upp áfengisfíknina í
honum. Hann gerði sér grein fyrir vandanum árið 2010 og
ákvað að hætta að drekka. Hann féll hins vegar og hefur
ekki náð að verða edrú aftur.
Fíkill í kjölfar
aðgerðar Jamie Lee Curtis
varð háð verkjalyfjum í kjölfar lýta
aðgerðar. Hún byrjaði að nota of mikið
af verkjalyfjum sem hún fékk eftir
aðgerðina og skolaði þeim niður með
áfengi. Sem betur fer gerði hún sér fljótt
grein fyrir vandanum og tók á honum.
Hún lítur á það sem eitt sitt helsta afrek í
lífinu að hafa náð tökum á fíkninni.
Stjórnlaus Betty
Ford, fyrrverandi forsetafrú Banda
ríkjanna, tilkynnti það opinberlega
árið 1970 að hún glímdi við áfeng
issýki. Þegar hún fór að ná tökum á
vandanum opinberaði hún einnig að
bæði faðir hennar og bróðir glímdu
við sömu fíkn. Þegar verst lét var
frú Ford alveg stjórnlaus í drykkju
og pilluáti, en samt tókst henni
að sjá um fjölskylduna og koma
opinberlega fram þegar þess þurfti.
Það var ekki fyrr en árið 1978 að
hún fór loks í meðferð og þá hætti
maður hennar, Gerald Ford, einnig
að drekka henni til stuðnings.