Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Qupperneq 11
Helgarblað 8.–11. maí 2015 Fréttir 11
10 lengstu undirskriftalistarnir
3 Vildu verja landið
Ár: 1974 Vefsíða: Engin Skorað á: Alþingi Undirskriftir: 55.522
Nánar: Lengi vel var þetta
mesta þátttaka í undir-
skriftasöfnun á Íslandi, eða
þangað til undirskriftunum
gegn Icesave-samningnum
var safnað saman. Mark-
miðið með söfnuninni Varið
land var að sýna stuðning
við veru varnarliðsins á
Íslandi. Vinstristjórnin
1971–1974 hafði sett það
í stjórnarsáttmála að herinn skyldi fara í áföngum og orti Þórarinn Eldjárn
um þetta ljóðið Við stöndum hér með stjarfa hönd á pung. Ólíklegt var
samt talið að herinn færi því ekki var meirihluti fyrir því í þinginu. Undir-
skriftasöfnunin olli miklum deilum í landinu og urðu mikil málaferli.
Framhaldið: Varnarliðið var áfram á landinu og fór ekki héðan fyrr en árið
2006 eftir 55 ára dvöl.
4 Viðræður við
ESB haldi áfram
Ár: 2014 Vefsíða: Thjod.is Skorað á: Alþingi
Undirskriftir: 53.551
Nánar: Þeir sem stóðu að undirskriftasöfnuninni
hvöttu Alþingi til að leggja til hliðar tillögu til þings-
ályktunar um að dregin yrði til baka umsókn Íslands
um aðild að Evrópusambandinu og að boðað yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Framhaldið: Þingsályktunartillagan var ekki
dregin til baka. Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra afhenti ráðamönnum ESB bréf
í mars síðastliðnum þar sem hann tilkynnti
að ríkisstjórn Íslands ætli ekki að taka upp
aðildarviðræður við ESB á nýjan leik og því
eigi að taka Ísland af lista yfir umsóknarríki.
Þessu var mótmælt harðlega í samfélaginu,
meðal annars fyrir utan Alþingi þar sem
þúsundir manna söfnuðust saman.
5 Magma
kaupi ekki
HS Orku
Ár: 2011 Vefsíða: Orkuaudlindir.is
Skorað á: Alþingi
Undirskriftir: 47.000
Nánar: Björk Guðmunds-
dóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir
og Jón Þórisson settu af
stað undirskriftasöfnun
sem miðaði að því að vinna
gegn samningi um sölu
HS Orku, þriðja stærsta
orkufyrirtækis landsins, til
Magma Energy Sweden AB,
dótturfyrirtækis kanadíska
jarðhitafyrirtækisins
Magma Energy Corp. Óskað
var eftir því að þjóðarat-
kvæðagreiðsla færi fram
um eignarhald á auðlindum
Íslands.
Framhaldið: Magma keypti 98,5% hlut í HS Orku og seldi svo 25% til
Jarðvarma slhf., sem er í eigu íslenskra lífeyrissjóða, fyrir rúma átta
milljarða króna. Magma Energy Corp. yfirtók fyrirtækið Plutonic Power
Corporation og þau sameinuðust í Alterra Power Corp. Engin þjóðarat-
kvæðagreiðsla fór því fram.
6 Gegn vegatollum
Ár: 2011 Vefsíða: Fib.is Skorað á: Alþingi Undirskriftir: 41.525
Nánar: Félag íslenskra biðfreiðaeigenda hvatti almenning til að taka þátt
í undirskriftasöfnun á vefsíðu sinni þar sem mótmælt var hugmyndum
stjórnvalda um vegatolla í ofanálag við „ofurháa eldsneytis- og bif-
reiðaskatta“. Félagið sagði þetta gjörbreytingu á grundvallarhugmyndinni
um þjóðvegi í þágu allra byggða og allra landsmanna.
Framhaldið: Hugmyndin um vegatollana varð ekki að veruleika en síðar á
sama ári nefndu Samtök atvinnulífsins vegatollana sem mögulega fram-
tíðarlausn. Lítil umræða hefur verið um vegatolla undanfarin ár. Helst hafa
þeir verið nefndir í tengslum við hugsanlega lagningu nýrrar Sundabrautar.
7 Burt með
verðtrygginguna
Ár: 2011 Vefsíða: Heimilin.is Skorað á: Alþingi Undirskriftir: 37.743
Nánar: Hagsmunasamtök heimilanna
stóðu fyrir undirskriftasöfnun
um afnám verðtryggingar-
innar og „stökkbreyttra“
lána, enda mörg
heimili í illa stödd
eftir bankahrunið.
Yfirskrift hennar
var: „Í nafni
almanna-
hagsmuna
krefjumst
við undirrituð
almennra
og réttlátra
leiðréttinga á
stökkbreyttum
lánum heimilanna
og afnáms verð-
tryggingar.“
Framhaldið:
Verðtryggingin var
ekki afnumin en árið
2013 var tilkynnt um
leiðréttingu verðtryggðra
húsnæðislána. Hægt var að
samþykkja leiðréttinguna á
síðasta ári og í byrjun þessa
árs og fyrir þá einstaklinga hefur hún þegar
tekið gildi. Reiknað er með að afnám verð-
tryggingar á nýjum neytendalánum hefjist í
síðasta lagi á næsta ári.
8 Á móti Icesave III
Ár: 2011 Vefsíða: Kjosum.is Undirskriftir: 37.000 Skorað á: Forseta
Nánar: Samninganefnd undir forystu bandaríska lögmannsins Lee
Buchheit lagði fram nýjan Icesave-samning sem þótti mun betri en sá
síðasti. Alþingi samþykkti samninginn. Ný undirskriftasöfnun var hafin,
enda var víðtæk óánægja með Icesave-málið í samfélaginu.
Framhaldið: Forsetinn neitaði í annað sinn að samþykkja samninginn og
vísaði honum einnig í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar höfnuðu samningnum
um 60% þeirra sem greiddu atkvæði. Eftirlitsstofnun EFTA brást við með
því að höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum vegna meintra brota Íslands.
Dómur féll 2013 og var Íslands sýknað af öllum liðum málsins.
9 Vildu óbreytt
veiðigjald
Ár: 2013 Vefsíða: Petitions24.com Skorað á: Forseta
Undirskriftir: 34.882
Nánar: Ísak Jónsson og Agnar Kristján Þorsteinsson
stóðu fyrir undirskriftasöfnun um óbreytt
veiðigjald. Hvöttu þeir Ólaf Ragnar til að
undirrita ekki lagafrumvarp Alþingis um
breytingar á lögum þar sem skilgreind voru
þau gjöld sem útgerðinni ber að greiða
fyrir afnot af fiskaveiðiauðlind okkar. Í
staðinn var forsetinn hvattur til að vísa
málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Framhaldið: Þrátt fyrir undirskrift-
irnar samþykkti forseti Íslands lögin.
Veiðigjöld eiga að lækka um 1,8 millj-
arða króna á þessu ári.
10 Vildu ekki EES
Ár: 1991 Vefsíða: Engin Undirskriftir: 34.738 Skorað á: Forseta Íslands
Nánar: Áhugahópurinn Þjóðaratkvæði um EES-málið hóf undirskriftasöfn-
un til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópska efna-
hagssvæðinu. Meðal annars óttuðust menn afleiðingar aukins viðskipta-
frelsis. Skorað var á Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta Íslands, að
leggja málið fyrir dóm þjóðarinnar.
Framhaldið: Vigdís samþykkti lögin og fóru þau því ekki í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Síðar sagðist hún hafa íhugað að segja af sér vegna
staðfestingarinnar. Núna deila menn með reglulegu millibili um það hvort
Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki. Ein af mótrökunum þar eru þau sömu og
andstæðingar EES-samningsins höfðu uppi, eða að samningurinn feli í sér
framsal á sjálfstæði þjóðarinnar, sem sé ekki ásættanlegt.
stórum málum n Flestir hafa krafist þess að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni„Hann er algjörlega
óútreiknanlegur