Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Side 36
Helgarblað 8.–11. maí 201536 Fólk Viðtal
É
g hef alltaf verið svolítill trúð
ur þótt ég hafi aðeins róast
þegar ég komst á unglingsald
ur. Ég var alltaf syngjandi og
var farin að semja lög aðeins
11 ára. Mamma segir að ég hafi verið
góður krakki en ég held að hún sé að
hlífa mér, því ég held að ég hafi ver
ið dálítið erfið. Ég vildi hafa athygl
ina og ég held að bræður mínir hafi
ekki enn jafnað sig,“ segir leikkonan,
fyrirsætan, söngkonan og dansarinn
Halla Vilhjálmsdóttir sem býr og
starfar í London. Halla, sem er ný
gift, starfar sem fyrirsæta, leikur aðal
hlutverk í væntanlegri kvikmynd og á
von á sínu fyrsta barni. Þar fyrir utan
er hún í krefjandi MBAmastersnámi
við Oxfordháskóla. Það er því í nógu
að snúast.
Heilluð af Shakespeare
Halla fæddist árið 1982 og ólst upp í
miðborg Reykjavíkur í hópi þriggja
systkina. Pabbi hennar, Vilhjálmur
Guðjónsson, er tónlistarmaður en
mamma hennar, Louisa Einarsdóttir,
starfar hjá Icelandair. „Pabbi er mjög
aktífur og ég er mjög lík honum. Í
mömmu rennur hins vegar ekki blóð
ið. Það var gott að alast upp í 101 en
mér líður vel í borgum. Annars á ég
svo yndislega foreldra. Við systkinin
hefðum getað alist upp hvar sem er
og það hefði alltaf verið gaman,“ segir
Halla, sem gekk í Vesturbæjarskóla
og útskrifaðist svo úr Kvennaskólan
um í Reykjavík eftir þriggja ára nám.
„Ég var staðráðin í að fara út að læra
leiklist og var heilluð af Englandi út af
Shakespeare. Mér hefur alltaf fundist
ákveðinn sjarmi yfir enskum leikrit
um og skáldum og af því að mennta
skólanám á Englandi tekur aðeins tvö
ár tók ég Kvennó á ofurhraða. Ég vildi
ekki vera tveimur árum eldri en hinir
nemendurnir. Ég vildi falla sem mest
inn og gera hlutina eftir bestu getu.“
Kynntust fyrir tilviljun
Eiginmaður Höllu heitir Harry Koppel
en hjónin létu pússa sig saman í des
ember í fyrra í Bogatá í Kólumbíu.
Parið ætlaði að halda litla og fallega
athöfn en þegar upp var staðið var
útkoman 200 manna veisla þar sem
faðir brúðarinnar spilaði á saxófón og
Halla flutti þrjú frumsamin lög handa
sínum heittelskaða.
Harry er fæddur í Kólumbíu en
alinn upp að mestum hluta í London.
„Við kynntumst í London fyrir algjöra
tilviljun en við áttum bæði vini frá Ís
landi sem voru að koma að heim
sækja okkur. Þessir vinir hittust í
flugvélinni og enduðu á því að deila
leigubíl inn í London. Þegar þau áttu
flug heim ákváðu þau að deila aftur
leigubíl. Þá hittumst við öll fjögur og
pöntuðum okkur drykki en leigubíll
inn kom of snemma og vinir okkar
ákváðu að drífa sig upp á völl. Okkur
fannst asnalegt að skilja við ósnerta
drykkina og enduðum á því að eiga
mjög áhugaverðar samræður í nokkra
klukkutíma. Og höfum verið saman
síðan.
Harry starfar í banka í því sem
snýr að skuldum ríkisstjórna. Þetta
eru mjög áhugaverð verkefni og hann
ferðast mikið vegna vinnunnar. Þetta
er mjög klár strákur,“ segir hún og
bætir við að það hafi aðallega verið
þrennt við eiginmanninn sem heill
aði hana. „Í fyrsta lagi hvað hann
er svakalega klár og í öðru lagi hvað
hann er fyndinn og í þriðja lagi hvað
hann er ofsalega góður strákur sem
er með hjartað á réttum stað. Þess
ir þrír þættir eru ekki umsemjanlegir
hjá mér og hann hafði þá alla, í stór
um skömmtum.“
Bónorð og Whoopy
Halla segir bónorðið hafa verið
eftirminnilegt. „Hann vildi koma mér
á óvart og mig grunaði ekkert þótt
hann hefði gengið með hringinn í
vasanum í marga mánuði. Nokkrum
sinnum hafði hann ætlað að biðja
mín en ég einhvern veginn eyðilagt
það, alveg óvart. Til dæmis þegar við
fórum til Íslands í afmæli til pabba,
þá ætlaði hann að biðja mín uppi á
Esjunni. Þegar við erum að ganga upp
á Esjuna spyr hann mig hvort ég ætli
að syngja í afmælinu. Ég segi nei, alls
ekki, því ég vilji ekki skyggja á pabba.
Þar með skellti hann hringnum aftur í
vasann. Svo kom að því að hann sagði
mér að hann þyrfti að fara í vinnuferð
og spurði hvort ég vildi ekki koma
með þar sem þetta væri einn af mín
um uppáhaldsstöðum. Ég sagði jú
endilega, en hann vildi ekki segja mér
hvert ferðinni væri heitið, vildi hafa
það „surprise“.
Hins vegar sagðist hann þurfa að
vinna mikið í þessari ferð en mér var
svo sem sama þar sem ég ætlaði þá
bara að skoða mig um í borginni. Svo
komst ég að því að ferðin var einmitt
á afmælisdeginum okkar sem hann
þóttist ekkert hafa vitað um. Við fór
um til Istanbúl en mig hafði einmitt
langað að koma þangað og svo bað
hann mín við Bosporussund sem
skilur að Asíu og Evrópu. Þetta var
mjög táknrænt, undir fallegum boga
við brúna. Ég kveikti ekki á neinu og
var að þykjast vera Whoopy Goldberg
og hætti því ekki þótt hann bæði mig
um það. Vesalings maðurinn var að
reyna að skapa rómantískt andrúms
loft. Þetta var síðan engin vinnuferð,
hann hafði bara búið það til. Þetta
var trúlofunarferð og við vörðum
nokkrum dögum í að skoða borgina
og ræða um brúðkaupið. Þetta var
mjög rómantískt og fallegt. Hann stóð
sig vel, karlinn, og bað mín meira að
segja á íslensku.“
Loksins tilbúin
Halla segist ekki hafa verið tilbúin í
alvarlegt samband fyrr en eftir þrí
tugt. „Þá var ég loksins til í að finna
rétta manninn til að deila með lífinu.
Ég held að þetta sé mikil spurning um
rétta tímasetningu og svo finnur mað
ur hvort þetta er rétt. Fyrir mig skiptir
stuðningur maka miklu máli og Harry
er alltaf fyrstur til að ýta mér af stað í
að láta draumana rætast. Í okkar sam
bandi er ekkert nema stuðningur og
ást í báðar áttir og þá ganga hlutirn
ir upp. Við erum ótrúlega góð saman
og erum bestu vinir. Það er svo gam
an að vera samferða manneskju sem
hefur áhuga á sömu hlutunum en
getur samt kennt manni eitthvað nýtt.
Þótt við séum svipuð á margan hátt
komum við úr ólíkum heimum. Okk
ur leiðist aldrei og við höfum lært að
treysta hvort öðru, sér í lagi í gegn
um fjallgöngur. Við klifum til dæmis
hæsta tindinn á Suðurskautslandinu
en það var rosaleg ferð.”
Fljótlega eftir brúðkaupið varð
Halla óvænt ófrísk. „Ég er að verða
mamma,“ segir hún og eftirvæntingin
leynir sér ekki. „Við eigum von á lítilli
stelpu 2. október sem við höfum
þegar ákveðið að verði skírð í höfuðið
á mömmu. Mamma heitir svo heppi
legu nafni – Louisa – sem er alþjóð
legt, fallegt og kvenlegt. Sjálf heiti ég
eftir ömmu minni svo það hentar
vel að hún fái nafn ömmu sinnar. Ég
hef verið hraust á meðgöngunni og
hef gaman af því að breytast í laginu.
Stelpan er líka alltaf á fullu. Það má
líklega segja að hún sé dálítið lík
mömmu sinni; alltaf í fimleikum.“
Elskar Ísland
Eftir útskrift úr Guildford School
of Acting árið 2004 starfaði Halla
fyrir ITV og BBC um tíma en kom
svo heim og fór í Þjóðleikhúsið, lék
í Áramótaskaupinu, kvikmyndinni
Astrópíu og varð þáttastjórnandi ís
lenska XFactors meðal annars. En
þar sem hún var með umboðsmann
ytra ákvað hún að halda aftur til Bret
lands. „Ég hef alltaf verið fiðrildi og
hef alltaf viljað búa í útlöndum. Ég
sakna samt alltaf fólksins míns. Það
hræðir mig að stofna fjölskyldu hér
án þess að hafa fjölskyldunetið en
fjölskyldan mín er á Íslandi og hans
í Kólumbíu. Mamma mun þó koma
fyrst eftir fæðinguna og kenna mér
aðeins á móðurhlutverkið. Einhverra
hluta vegna hefur Harry alltaf ver
ið heillaður af Íslandi. Hann hafði
meira að segja ferðast um landið einn
á bíl þegar hann var yngri. Ég grínast
stundum með það að hann hafi ver
ið að bíða eftir því að eignast íslenska
eiginkonu. Hann vill ólmur flytja til
Íslands og skoðar reglulega fasteigna
auglýsingarnar og lætur sig dreyma
um lítið hús við sjóinn. Ég er alltaf til
í að kíkja heim og íhuga alltaf vel öll
þau verkefni heima sem mér bjóð
ast. Ég elska Ísland en er alveg eins
til í að fara eitthvað annað. Ef Harry
fengi spennandi atvinnutækifæri er
lendis þá væri ég opin fyrir að skoða
það og sjá hvaða möguleika ég hefði
á þeim slóðum. Enda er heimilið þar
sem hjartað er.“
Laus við áhyggjur
Hún segir að XFactorævintýrið hafi
verið skemmtileg áskorun. „En um
leið mjög erfið. Það er ekki einfalt að
vera maður sjálfur undir leikstjórn.
Það var mjög skrítin en góð reynsla
og eitthvað sem ég væri til í að reyna
aftur,“ segir hún og bætir við að hún
hafi alltaf verið laus við áhyggjur af
frammistöðu sinni. „Ef ég klúðra þá
bara klúðra ég. Það er enginn að fara
að deyja þótt ég detti á sviðinu eða
segi eitthvað vitlaust. Maður myndi
bara reyna að bæta úr slíku eftir bestu
getu og vona það besta. Og eins ef
einhverjum finnst að ég ætti að gera
hlutina öðruvísi þá er bara fínt að
fólk sé með mismunandi skoðanir.
Annars hefur mér alltaf fundist mik
ilvægt að vera góð fyrirmynd. Ég hef
alltaf sett mér þá kröfu. Mér finnst
skipta máli að fólk í áberandi stöðu
axli ábyrgð, reyni að láta gott af sér
leiða og breyta rétt. Það er svo mikið
klúður þegar fólk fer að hafa neikvæð
áhrif.“
Illa borgað leikhús
Upp á síðkastið hefur Halla mest
unnið sem fyrirsæta. „Ég hef bara ekki
haft efni á því að vera í leikhúsunum.
Það er illa borgað og samningar til
svo langs tíma að maður getur ekki
gert neitt annað á meðan. Fyrirsætu
störf, auglýsingar og sjónvarpsverk
efni eru mun betur borguð þótt þau
séu á niðurleið líka. Þetta er leiðinleg
þróun,“ segir hún en bætir svo við að
það sé einnig önnur ástæða fyrir því
að hún sé ekki að leitast eftir því að
vinna í leikhúsum. „Ég er gift kona og
get ekki verið í burtu öll kvöld og all
ar helgar. Því tímabili er lokið hjá mér.
„Ég er
að verða
mamma“
Leikkonan, söngkonan, fyrirsætan og dansarinn Halla Vilhjálmsdóttir stendur á tímamótum.
Halla býr í London, er nýgift og á von á sínu fyrsta barni. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Höllu um
ástina, ferilinn, kjaftasögurnar, þroskann, draumana, dótturina sem hún ber undir belti og krefjandi
námið, en Halla er í MBA-námi við Oxford-háskóla.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Ófrísk í námi
Halla er í MBA-námi
við Oxford-háskóla.
„Þá var ég
loksins til
í að finna rétta
manninn til að
deila með lífinu