Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Qupperneq 38
Helgarblað 8.–11. maí 201538 Neytendur
Vesturhrauni 5
Garðabæ
S: 530-2000
Bíldshöfða 16
Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
Akureyri
S: 461-4800
Grjótharður
vinnufatnaður
Skyrta Einstaklega þægileg
flónelskyrta. Með brjóstvösum og
einum símavasa. Bómullarstyrk-
ingar í ermastroffi og öxlum
Buxur Rassvasar, vasar fyrir
hnépúða, síma- og pennavasi
og lykkja fyrir hamar.
Gallar Með útvíkkunarfaldi í
bakið, brjóstvasi, innaná-vasi,
pennavasi, rassvasi, vasar fyrir
hnépúða og símavasi.
Flexitec öryggisskór
Mjög stöðugir Premium-skór
með alveg einstökum Flexitec-
sóla sem var hannaður sam-
kvæmt ráðum bæklunarlæknis.
Mjúkskels
jakki
Tveir hliðarvasar
og brjóstvasi
með rennilás.
Franskur
rennilás á
ermum. Vatns-
heldni 3000mm.
Jakkar Vatteraður, teygja
í baki, hetta sem hægt er
að taka af með rennilás,
loftgöt með rennilás undir
höndum, stroff um úlnliði
og hægt að þrengja með
frönskum rennilás, vasar eru
allir með rennilás og teygja í
mitti að framan, endurskin.
Smíðavesti Yfirfelldur rennilás. Smíðavasara að framan
og aftan. Sterkir beltishankar. Tölur og lykkjur fyrir verkfæri
M
ikill munur er á æfinga
gjöldum yngri flokka
hjá knattspyrnu
félögunum. Þetta
leiðir úttekt DV í
ljós en gerður var samanburður á
félögunum tólf sem eiga sæti í Pepsi
deild karla. Ódýrast er að æfa hjá
Leikni í Reykjavík en dýrast er að æfa
hjá Breiðabliki og ÍA. Í 8. flokki eru
gjöldin hæst hjá Reykjavíkurstór
veldunum Val og KR.
Munurinn á lægstu og hæstu
gjöldunum í hverjum flokki er frá
86 prósentum og upp í 130 pró
sent.
Misjafn fjöldi æfinga
Þess ber að geta að hér er um að
ræða samanburð á hreinni krón
utölu en ýmislegt þarf að taka
inn í reikningsdæmið svo að
samanburðurinn sé fullkom
lega sanngjarn. Til dæmis hvaða
æfingabúnaður er innifalinn
og hvort að félag eða foreldr
ar greiði keppnisferðir, yfirleitt
lendir sá kostnaður þó á foreldr
um. Þá er fjöldi æfinga í hverri
viku í sumum tilvikum misjafn.
Einnig gefst forráðamönnum
kostur á að fá afslátt af æfinga
gjöldum með því að taka þátt í
starfi félaganna. Dæmi um það
er Breiðablik sem veitir forráða
mönnum 12 þúsund króna afslátt
ef þeir hjálpa til við árlegt Síma
mót félagsins.
Hagstæðustu
æfingagjöldin hjá Leikni
Af liðunum tólf í Pepsideild karla
er Leiknir í Breiðholti með hag
stæðustu æfingagjöldin fyrir yngri
flokka sína. Félagið hefur ekki
hækkað gjöldin síðan 2011 og
samkvæmt Guðnýju Sævinsdóttur,
stjórnarmanni í aðalstjórn Leiknis,
verður í lengstu lög reynt að halda
lágum æfingagjöldum. „Stefna fé
lagsins er að öll börn hafi tæki
færi til þess að æfa knattspyrnu
óháð efnahag foreldra og fékk
framkvæmdastjóri Leiknis, Þórð
ur Einarsson, einmitt Jafnréttis
verðlaun KSÍ fyrr á árinu í þessu
samhengi. Mér finnst ámælis
vert að íþróttafélög nýti tækifærið
og hækki æfingagjöld sín eins og
var raunin þegar Reykjavíkurborg
hækkaði frístundastyrkinn sinn.
Þannig rennur upphæðin beint
til íþróttafélaganna í stað þess að
styðja við bakið á foreldrum, sem
hafa þá jafnvel möguleika á að
leyfa börnum sínum að prófa aðr
ar tómstundir,” segir Guðný.
Yfirbygging hjá Leikni
er í lágmarki
En hver er galdurinn? „Við reynum
að halda yfirbyggingunni í algjöru
lágmarki og sjálfboðaliðar skipa
veigamikinn sess í okkar starfi. Við
erum með frábæra þjálfara sem
eru uppaldir í félaginu og vinna sitt
starf með hjartanu þótt þeir séu að
sjálfsögðu launaðir starfsmenn.
Við höldum sjálf um innheimtu,
bara í gamla góða Excel en not
um ekki aðkeypt kerfi til þess eins
og mörg önnur félög,“ segir Guð
ný og bætir við: „Okkur gengur vel
að innheimta æfingagjöld og lægri
upphæðir leiða til þess að fólk er
síður í vanskilum.“ Aðspurð um
stærð félagsins segir Guðný: „Hjá
okkur æfa um 150 drengir í yngri
Leiknir með Lægstu gjöLdin
n Samanburður á liðum í Pepsideild karla n 86–130%
Æfingagjöld Munurinn
á gjöldunum er mikill.
Leiknir Guðný Sævinsdóttir situr í aðal-
stjórn Leiknis.
Breiðablik Daði Rafnsson, yfirþjálfari
yngri flokka hjá Breiðabliki.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Við teljum okk-
ur vera með þjón-
ustu sem réttlætir þetta
verð. Við leggjum mikla
áherslu á að vera með
afar færa þjálfara og nær
öll gjöldin fara í launa-
kostnað.
Daði Rafnsson