Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 7.–9. júlí 2015 Kvendýrin þurfa blóð n Enn ekki sannað að um lúsmý sé að ræða n Sýni hafa ekki verið send utan til rannsókna E nn hafa ekki verið send nein sýni utan til rannsókna. Ég er enn að bíða eftir upplýs­ ingum um sérfræðing sem gæti skoðað mýið,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Hann segir lúsmýið, sem í deiglunni hefur verið undanfar­ ið, ekki endilega vera nýjan land­ nema: „Ég hef ekki trú á því að þetta sé nýtt. Í síðustu viku sköpuð­ ust einfaldlega sérstakar aðstæð­ ur og skilyrði fyrir lúsmýið til að ná sér í blóð og verpa. Hlý austanáttin datt niður og við það hlýnaði enn meira vestanlands. Svo virðist vera sem það hafi hentað mýinu afar vel en fyrir utan það þarf gott skjól og á bakvið skjólveggi sumarhúsa er auðvitað logn.“ Á kvöldin fara smádýr á kreik „Þær eru virkastar á hlýjum og kyrrum kvöldum þar sem skjól er gott. Þegar ein fer af stað, leyfir sér að drekka blóð, fara allar hinar af stað líka.“ Hann segir ástæðu þess ein­ faldlega þá að á kvöldin fari margt í smádýraríkinu á kreik. „Sá tími hentar mörgum svöllurum vel.“ Erling bætir því við að lúsmýið sé allt annars eðlis en bitmýið: „Bitmýið er miklu stærra á meðan lúsmýið er minna og heldur sig í stærri hópum. Menn verja sig því ekki því þeir verða þess ekki varir. Bit lúsmýsins eru því ekki svæsnari heldur fleiri.“ Kvendýrin þurfa blóð Hann segir mýið ekki deyja þegar það bíti önnur dýr. Það væri ekki til mikils að bíta bara og deyja. „Kven­ dýrin bíta en ekki karldýrin. Kven­ flugurnar þurfa blóð til að fram­ leiða eggin sín og koma þeim frá sér. Karldýrin þurfa það ekki, þeir hafa næga orku til að gera sitt.“ Hann bætir því við að erfitt sé að segja hvort lúsmýinu muni fjölga en lúsmýið virðist hafa dreifst á suðvestanverðu landinu: allt frá Hafnarfjalli, austur á Laugarvatn og suður í Hafnarfjörð. Tilvalin máltíð Sigurður Valgeirsson, upplýsinga­ fulltrúi Fjármálaeftirlitsins og einn gagnrýnenda Kiljunnar, var bit­ inn illa af mýi fyrir nokkru í gamla bænum í Hafnarfirði. Hann telur að um lúsmý hafi verið að ræða en segist sjaldan hafa verið stunginn af mýi. „Ég fór í ferðalag þessa helgi og gisti rétt hjá Akureyri, fór síðan að­ eins austur og kom svo heim. Ég varð var við kláða að morgni mánu­ dags á leið minni í vinnuna og hélt að það væri þurrkur. Í vinnunni klæjaði mig svo mikið að ég leit í spegil og sá þá að þetta voru fjöl­ mörg bit.“ Hann segir sig hafa verið tilvalda máltíð þar sem hann lá á maganum ofan á sænginni með opinn glugga aðfaranótt mánudagsins. Trymblar landsins fórnarlömb „Annars er ég með ákveðna kenn­ ingu varðandi fórnarlömb mýsins. Það er nefnilega þannig að Karl Tómasson, sem lenti svo illa í mý­ inu þarna um daginn, var trommari í hljómsveitinni Gildrunni, sem var starfrækt hér á árum áður. Sjálfur var ég trommari í hljómsveitinni Spöðunum. Mýið virðist því herja á trommara landsins,“ segir Sigurður að lokum og hlær. n Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is Lúsmýið heldur sig í stærri hópum „Þær eru virkastar á hlýjum og kyrrum kvöldum þar sem skjól er gott.“ Mynd www. edGefLyfishinG.coM sigurður Valgeirsson Hefur sjaldan verið stunginn af mýi. erling Ólafsson Segir að enn hafi ekki verið send sýni utan til rannsókna. Mynd siGurdur sTefan Jonsson „Mýið virðist því herja á trommara landsins dreift um suðvestanvert landið Lúsmýið virðist hafa dreifst á suðvestanverðu landinu: allt frá Hafnarfjalli, austur á Laugar- vatn og suður í Hafnarfjörð. 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is FYRIRTÆKJA ÞJÓNUSTA Við sækjum og sendum endurgjaldslaust. Sparaðu starfsfólki tíma og fjármuni. Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki. ÚRVAL FÆÐUBÓTAREFNA Glæsibæ & Holtagörðum Netverslun: www.sportlif.is Sterkustu brennslu- töflur í Evrópu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.