Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Síða 19
Vikublað 7.–9. júlí 2015 Kynningarblað - Grillsumarið 3
Angus-, Limosin- og Galloway-
steikur frá fjölskyldubúi
Ekkert toppar beint frá býli
Reka eitt frumlegasta kaffihús landsins í Garði í Eyjafjarðarsveit
V
ið erum að selja nauta-
kjöt beint frá býli og erum
með okkar eigin vottuðu
kjötvinnslu heima á bæn-
um,“ segir Einar Örn Aðal-
steinsson bóndasonur.
Ásamt því að selja nautakjöt
beint frá býli reka þau Einar og
eigin kona hans, Sesselja Barðdal,
eitt frumlegasta kaffihús lands-
ins, staðsett í stærstu fjósbyggingu
landsins að Garði í Eyjafjarðar-
sveit einungis tíu kílómetra sunn-
an við Akureyri, á móti Hrafnagili
og Jólahúsinu víðfræga
Kaffi Kú
Kaffihúsið er staðsett á svölum yfir
fjósinu, geta þá gestir fengið sér
hressingu í rólegheitum á meðan
fylgst er með hátæknivæddri starf-
seminni. Kýrnar ganga um frjálsar
og leyfa róbótanum að mjólka þær
eftir eigin hentugleika á meðan
kálfarnir leika sér á þar til gerðu
svæði. Segir Einar í samtali við DV
að vegna vinsælda þurfi brátt að
stækka staðinn sem var opnað-
ur í september 2011. „Viðtökurn-
ar hafa verið frábærar og við erum
mjög þakklát heimamönnum,“
segir Einar en stór hluti þeirra sem
heimsæki staðinn er Íslendingar
sem gjarnan nýta heimsóknina til
að kaupa nautakjöt í leiðinni.
Einar segir að hugmyndin um
kaffihúsið hafi komið af sjálfu sér
því um leið og byrjað var að mjólka
í fjósinu fór fólk að koma og vildi
sjá hvað væri um að vera þarna
inni og sjá þessa fimm róbóta sem
sjá um erfiðisvinnuna í fjósinu.
„Við pabbi hefðum aldrei þorað
að fara af stað með svona rekstur
ef ekki hefði verið fyrir það að hún
Sesselja er lærður þjónn og þekkti
því vel til þess sem þurfti að gera,
svo skemmdi ekki fyrir að syst-
ir hennar og maður hennar reka
Sauðárkróksbakarí en þaðan kem-
ur margt af sætabrauðinu sem er á
boðstólum á kaffihúsinu.“ Opið er
alla daga á sumrin en um helgar á
veturna en alltaf er hægt að hafa
samband og kaupa kjöt á staðn-
um.
Engin verksmiðja
Boðið er upp á fría heimsendingu
af kjöti hvert á land sem er. bæði
ferskt og frosið, allt saman án allra
aukaefna. „Ég sel ekki kjöt nema
það sé búið að meyrna í tíu daga
að minnsta kosti, helst tvær vikur,“
segir Einar, en þetta gerir að verk-
um að hægt er að skella því beint
á grillið. Hamborgararnir eru mjög
vinsælir enda er um að ræða ekta
120 gramma borgara.
Einar segir að allt þeirra nauta-
kjöt sé selt beint frá býli og reynt
sé að afgreiða pantanir um leið og
þær berast en bæði vegna mikillar
eftirspurnar og þess að einnig þarf
að ala gripina þá getur mynd-
ast smá biðlisti eftir kjötinu. „Við
erum með fastakúnna um allt
land, sendum mikið á Siglufjörð,
Neskaupstað og auðvitað líka til
höfuðborgarinnar,“ segir Einar og
kunna viðskiptavinir hans vel að
meta ferskt kjöt án aukaefna. Er-
lendir ferðamenn eru einnig mjög
hrifnir af framtakinu og eru dug-
legir að taka með sér kjötbita.
Helst eru það þó heimamenn sem
koma reglulega í heimsókn enda
er það öðruvísi stemning að borða
steik sem þú veist hvaðan kemur.
Viðskiptavinum standa til boða
fjölmargir pakkar flestir um 10 kíló
að þyngd sem hægt er að finna á
heimasíðunni nautakjot.is. „Við
sáum ákveðna möguleika í því
að bjóða upp á minni magninn-
kaup en hafa þekkst í verslun á
nautakjöti beint frá býli og ná
þannig frekar til ört stækkandi
hóps sem vill kaupa nautakjöt án
íblöndunar efna, einnig getur við-
skiptavinur sett saman sinn eig-
in pakka eins stóran og hann vill,“
segir Einar að lokum. n