Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Qupperneq 22
Vikublað 7.–9. júlí 201518 Sport
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði (í húsi Innrammarans) • Sími 568 0400 • www.fabrik.is
tölvuviðgerðir
Fullt verð 12.250,-
FABRIK
TÖLVUÞJÓNUSTA
· Ástandsskoðun
· rykhreinsun
· vírushreinsun
· Óæskilegur hugbúnaður
fjarlægður
Sumartilboð
4.990,-
Hröð og góð þjónusta!
Full yfirferð
(Windows-tölvur)
S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k .
bilo@bilo. is • w w w. b i l o. i s
Skoðaðu heimasíðuna okkar
ww
w.
bi
lo
.is
Ef
þú
er
t í b
ílahugleiðingum?
... með okkur!
FRÁ KR. 48.900
Skemmtikraftur
tennisvallarins
n Dustin Brown slær í gegn á Wimbledon n Seldi gistingu í húsbílnum og gerði við tennisspaða
D
ustin Brown er nafn sem
er á vörum margra íþrótta-
áhugamanna eftir sigur
hans á Rafael Nadal, einum
besta tenniskappa heims,
á Wimbledon-mótinu sögufræga í
tennis. Það er óhætt að segja að leið
Dustins að atvinnumennsku í tennis
hafi verið öðruvísi en flestra keppi-
nauta hans. Á meðan margir efnilegir
tennisspilarar æfa við fullkomnar að-
stæður í rándýrum íþróttaskólum
þá æfði Brown sig með því að spila
við vini sína í almenningsgörðum á
Jamaíku.
Útlitið og leikstíllinn vekur athygli
Hann vekur athygli á tennismótun-
um sem hann keppir í. Ekki síst fyrir
útlitið í íþrótt þar sem keppendur eru
sífellt einsleitari. Hann er dökkur á
hörund og skartar eftirtektarverðum
„dreadlocks“-fléttum, en hann hefur
ekki skert hár sitt í meira en áratug.
Stíll hans er einnig, að sögn kunn-
ugra, ólíkur stíl annarra því hann er
þekktur fyrir glæfralegt sóknarspil og
oft ber kappið hann ofurliði í þeim
efnum. Hann velur yfirleitt flottari
kostinn frekar en þann skynsamlega
sem er kannski merki um það hann
hefur ekki notið leiðsagnar þjálfara í
gegnum árin.
Harður af sér
Dustin Brown er þrítugur að aldri.
Hann er fæddur í borginni Celle í
Þýskalandi en faðir hans er frá Jama-
íku en móður hans er þýsk. Hann
var hæfileikaríkur íþróttamaður og
æfði fjölmargar íþróttir en ákvað að
einbeita sér að tennis átta ára gam-
all. Á ellefta ári flutti hann til Jama-
íku ásamt foreldrum sínum. Þar var
umhverfið talsvert öðruvísi, illa hirt-
ir vellir í almenningsgörðum og að-
búnaður slæmur enda tennisíþróttin
ekki háttskrifuð þar í landi. Haft er
eftir honum að þessi reynsla hafi gert
hann harðan af sér og að hann hafi
þurft að hafa fyrir hlutunum.
Útsjónarsamur í fjármálum
Þegar Dustin var 19 ára, árið 2004, þá
flutti fjölskyldan aftur til Þýskalands
til þess að koma tennisferli hans á
skrið. Foreldrar hans, sem ekki voru
sérstaklega efnaðir, tóku lán til þess
að fjárfesta í forláta Volkswagen-hús-
bíl en í bílnum voru þrjú rúm og kló-
settaðstaða. Dustin ferðast um alla
Evrópu í bílnum til þess að taka þátt
í mótum minni spámanna í tennis-
íþróttinni og sparaði sér þannig hót-
elkostnað. Hann hafði lítið sem ekk-
ert milli handanna og þurfti því að
vera útsjónarsamur. Fólk tengt mót-
unum bauð honum stundum í mat
og stundum leigði
hann út rúm í bíln-
um sínum til annarra
spilara og náði því að
öngla saman pen-
ingum fyrir næsta
mót. Hann fjárfesti
í vél til að gera við
netið í tennisspöð-
unum og bauð öðr-
um keppendum upp
á þá þjónustu; 5 evrur
á spaða. Á meðan aðr-
ir keppendur hvíldu
sig í hótel herbergjum
sínum þá vann hann við viðgerðirnar
langt fram á nótt.
Sigurinn á Nadal
tryggir 14 milljónir
Markmiðið var komast í hóp 100
bestu tennisleikara heims og það
tókst. Í dag er hann í 80. sæti með-
al sterkustu tennisleikara heims og
hefur það nokkuð gott. Sigurinn á
Nadal tryggir honum verðlaun upp
á að minnsta kosti 14 milljónir en því
miður endaði ferðalag hans þegar
Serbinn Viktor Troicki bar sigurorð
af honum í 3.umferð mótsins. Þrátt
fyrir nokkra velgengni, sem hefur
gert það að verkum að Dustin er far-
inn að gista á hefðbundnum keppn-
ishótelum, þá hefur gamli lífsstíll-
inn blessunarlega haft áhrif á hann.
Í viðtali við Independent í fyrra vakti
athygli að hann fór sjálfur á þvottahús
til að þvo búninginn sinn eftir leik-
dag. „Þvottahúsið á keppnisstaðnum
ætlaði rukka 220 krónur fyrir stakan
sokk, það er bara rugl,“ sagði Dustin
Brown. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Á flugi Brown
er þekktur
fyrir glæfralegan
sóknarleik og
reynir oft hið flotta
og óvænta í stað
þess að velja skyn-
samlega kostinn.
Dustin Brown Leið
hans að atvinnumennsku í
tennis hefur averið sérstök.
MyND BPI