Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Qupperneq 25
Vikublað 7.–9. júlí 2015 Lífsstíll 21
Efnið í hálsmenunum
Viðarhringurinn er úr burstuðum hlyn
og á hann er borin lífræn kókosolía til
að loka viðnum og gefa honum fallegra
útlit og mýkri áferð. Hringirnir eru svo
merktir Inima með brennipenna. Að auki
er svo hægt að fá áletrað til dæmis nafn
barnsins/barna á menið – en það á bara
við um viðarmenin.
Lituðu perlurnar eru úr silíkoni án allra
eiturefna (svo sem BPA, latexi, PVC, þung-
málmum, Cadmium, þalötum (pthalates)
og blýi).
Bandið er slitsterkt silkiband, og men-
inu er lokað með öryggisfestingu en hún
virkar þannig að sé togað mjög fast, að þá
opnast smellan.
Hannar barnvæn hálsmen
n Bjartey notar aðeins hrein og örugg efni n Börn mega naga og toga í hálsmenin
Þ
etta er fyrst og fremst ótrúlega
gaman en viðtökurnar hafa
verið mjög góðar,“ segir Bjart-
ey Ásmundsdóttir sem byrj-
aði í fyrra að hanna og útbúa
falleg hálsmen sem hafa þá sérstöðu
að vera einstaklega barnvæn. Þó að
menin séu ekki hugsuð sem leikföng
eru þau hönnuð þannig að börnum
er óhætt að toga í þau og naga að vild
án þess að þau skemmist eða börnin
hljóti skaða af. Hönnunina kallar hún
Inima, en orðið er rúmenskt og þýð-
ir hjarta. „Hjarta á ágætlega vel við
vegna þess að börnin okkar eru næst
hjarta okkar – og hálsmenin liggja við
hjarta okkar,“ segir hún einlæg.
Tók málin í sínar hendur
„Þegar sonur minn var nokkurra
mánaða þá áttaði ég mig á því að
ég var eiginlega hætt að vera með
hálsmen. Ég var auðvitað mikið með
lítið barn í fanginu sem greip og tog-
aði í allt og stakk upp í sig.“
Þau hálsmen sem Bjartey átti voru
þannig gerð að ekki var óhætt fyrir son
hennar að toga mikið í þau eða stinga
upp í sig. Hún fór að líta í kringum
sig en fann engin barnvæn hálsmen
sem henni leist á. Í kjölfarið fór hún
að hugsa hvort hún gæti kannski
bara búið til hálsmen sjálf. „Eitthvað
sem sonur minn gæti togaði í að vild
án þess að það skemmdist eða væri
hættulegt fyrir hann að stinga upp í
sig. Ég fór að skoða alls konar efni,
bæði á netinu og í föndurbúðum. Ég
fann ekkert hér á landi sem mér leist
á, þannig að ég hef pantað allt að utan.
Ég vildi hafa efnið eins öruggt og lítið
meðhöndlað og mögulegt var,“ útskýr-
ir hún.
Svipað efni og í snuðum
Fyrir valinu varð ómeðhöndlaður
hlynur sem hún ber kókosolíu á sjálf,
og silíkonperlur framleiddar úr svip-
uðu efni og snuð og pelatúttur. Efnið
í perlunum er ekki ólíkt því sem not-
að er í silíkoneldhúsvörur og fyrir vik-
ið eru þær mjög slitsterkar.
„Ég skoðaði meira að segja leik-
föng sonar míns og hafði þau í huga
þegar ég var að leita að rétta efn-
inu. Mér fannst mjög gaman að spá
í þetta,“ segir hún og viðurkennir að
hafa fengið hugmyndina að hálsmen-
unum og leitina að réttu efnunum
gjörsamlega á heilann.
Vildi selja örugga vöru
Allt efni í hálsmenunum er skoðað
og vottað erlendis samkvæmt ör-
yggisstöðlum um barnavörur, en
Bjartey lagði líka áherslu á að fá vott-
un hér á landi. „Ég vildi láta skoða
vöruna á Íslandi sem hálsmen, sem
eina heild, en ekki bara sem litlar
perlur eins og gert var úti.“
Hún leitaði því til fyrirtækis-
ins Norm ráðgjöf ehf. sem tekur að
sér að meta öryggi vöru, hvaða efni
mega vera í vörum fyrir börn og
hvaða leiðbeiningar þurfa að fylgja
vörunum. „Þau hjá Norm gerðu ít-
arlega skýrslu um hálsmenin og
leiðbeindu mér hvað ég þyrfti að
gera til að þau væru hæf til að fara
á markað. Mér fannst nauðsynlegt
að gera þetta enda vildi ég ekki selja
vöruna nema hún væri alveg örugg.“
Í sölu í þremur verslunum
Í upphafi ætlaði Bjartey bara að út-
búa hálsmen fyrir sjálfa sig en það
vatt fljótlega upp á sig. „Ég pantaði
svolítið mikið af perlum í upphafi
og gerði nokkur hálsmen fyrir mig.
Svo fóru vinkonur mínar að prófa,
en margar þeirra eru með börn á
svipuðum aldri og ég. Fljótlega setti
ég upp Facebook-síðu og þá fór
boltinn að rúlla.“ Hálsmen Bjart-
eyjar fengu strax góðar viðtökur á
Facebook og seldi hún mikið í gegn-
um síðuna. Hún ákvað því að útbúa
heimasíðu, sem líka er vefverslun,
til að auðvelda aðgengi og pöntun
á vörunum. Systir hennar hefur ver-
ið henni innan handar í verkefn-
inu og meðal annars aðstoðað hana
með heimasíðuna. Þá eru hálsmen-
in komin í sölu í þremur hönnun-
ar- og gjafavöruverslunum; Litlu
hönnunarbúðinni í Hafnarfirði,
Útgerðinni í Vestmannaeyjum og
versluninni Jötu í Hátúni í Reykja-
vík. n
Fór að útbúa
hálsmen Bjarteyju
fannst vanta barnvæn
hálsmen á markaðinn svo
hún ákvað að búa þau
til sjálf. Mynd ÞorMar Vignir
gunnarSSon
Litríkt Perlurnar sem Bjartey notar eru úr silíkoni, ekki
ósvipuðu efni og snuð og pelatúttur. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
notar brennipenna Bjartey merkir
öll hálsmenin með brennipenna, en það
er líka hægt að fá nafn barns áletrað á
viðarhringina. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
Sólrún Lilja ragnarsdóttir
solrun@dv.is
nokkrar gerðir Bjartey hefur útbúið
nokkrar gerðir af hálsmenum.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af