Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Qupperneq 27
Vikublað 7.–9. júlí 2015 Menning 23 Minnistöflur www.birkiaska.is Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og nemendum í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Bodyflex Strong Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.  Birkilaufstöflur Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva- jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og dregur úr bólgum. Evonia færir hárrótinni næringu og styrk til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia notaði íslenska ull og litaði með jurtum sem hún tíndi sjálf hér heima á sumr- in. Hún var með fjórar til fimm konur í vinnu við að vefa, en hún litaði ullina og gerði fyrirmyndir sem þær ófu eftir.“ Kynnin af aðferðum og fagurfræði veflistarinnar telur Hrafnhildur enn fremur að hafi haft áhrif á það hvernig Júlíana nálgaðist málverkið. „Áður var það línan og teikningin sem voru ríkj- andi í málverkunum frekar en liturinn – hún aðskilur formin. En það hvern- ig áferðin virkar í vefnaðinum, hvern- ig litirnir blandast og það er ekki einn litur hér og annar þar. Það er þetta sem gerist í málverkinu hjá henni, það verð- ur mýkra og fyrir vikið verður það ljóð- rænna,“ segir Hrafnhildur og nefnir til dæmis mynd af Heklu frá árinu 1936. „Litirnir ganga yfir hver í annan og það verður einhver þoka, dalalæða eða ég veit ekki hvað. Þetta verður svo ljóð- rænt. Maður veit ekki hvort þetta eru kindur eða heysátur í forgrunninum, það er óljóst en skiptir ekki öllu máli.“ „Svona er ég“ „Júlíana og Ruth áttu það líka sameig- inlegt að vera svolítið fælnar. Þær vildu ekki láta horfa á sig. Þegar Júlíana mál- aði í Vestmannaeyjum faldi hún sig á milli steina og þoldi ekki að fólk væri að glápa á hana. Þannig að þær hafa báðar verið svolítið einrænar og átt erfitt með að expónera sig.“ Innhverfa og sjálfsgagnrýni krist- allast í sjálfsmyndunum sem sýndar eru á Kjarvalsstöðum. Hvorug reyn- ir að fela eða fegra útlit sitt og sálar- ástand. Í sjálfsmyndum Ruthar op- inberar hún meðal annars ótta sinn við að missa sjónina, en Júlíana mál- ar sjálfa sig augnalausa. „Júlíana mál- ar sig eins og hauskúpu. Það þarf styrk til að mála svona myndir. Þetta er svo varnarlaust, en hún segir „svona er ég, svona lít ég út innan frá,““ útskýrir Hrafnhildur. Hrafnhildur mun leiðbeina gestum um sýninguna ásamt Helgu Hjörvar sunnudaginn 12. júlí klukkan 15.00. n „Það er þetta sem gerist í málverk- inu hjá henni, það verður mýkra og fyrir vikið verður það ljóðrænna Hekla (1936) Þetta verk er gott dæmi um hvernig vefnaðurinn hafði áhrif á það hvernig Júlíana nálgaðist myndlistina. Litirnir ganga hver yfir í annan og skapa einhvers konar þoku eða dalalæðu. Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon ruth Smith Sjálfsmyndir Ruthar eru alvarlegar og uppfullar af sjálfsgagnrýni. framleiðslu á íslensku jöklavatni. Við hverri hreyfingu Gira bregst hljómsveitin við. Hann lyftir upp höndum, hann lýtur höfði, hann stappar niður fæti og sveitin svarar. Þarna er gítarleikari með síðan, grá- an hökutöpp eins og satýr sem hef- ur tekið sér bólfestu í líkama afa þíns, rennigítarleikari sem slædar á kjölt- unni, bassaleikari sem grúvar sömu lúppurnar aftur og aftur, trommuleik- ari og síðhærður, bartamikill, ber- brjósta slagverksleikari sem ým- ist lemur í gong eða járnpípur með hamri, blæs einn tón í básúnu eða sargar á eftirheimsendalega fiðlu. Þetta er eins langt frá því að vera glaðvær danstónlist og hugsast getur en í kringum mig hreyfir fólk sig í takt- föstum transi – og ég líka. Þetta er ekki dans hinna dauðu eða illu, heldur þeirra sem þora að stara inn í myrkr- ið sem býr djúpt í sálinni á okkur öll- um – myrkrið sem er betra að vera í tengslum við en láta taka völdin. Eft- ir einn og hálfan tíma er mig farið að verkja í eyrun. Ég tek því því fagnandi þegar sveitin þakkar fyrir sig og kveð- ur – þrátt fyrir að samkvæmt dagskrá eigi hún að spila klukkutíma lengur. Lestu rýni um tónleika Iggy Pop, Public Enemy og Belle & Sebastion á DV.is/menning n kristjan@dv.is Svanir Tónleikar Michael Gira og félaga í Swans voru einn af hápunktum ATP Iceland tónlistarhátíðarinnar í Reykjanesbæ um helgina. „Og Gira lyftir báð- um höndum á loft og stýrir flæðinu eins og myrkrahöfðingi, tónandi Póseidon, eða vondur iðnjöfur sem handstýr- ir framleiðslu á íslensku jöklavatni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.