Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016SJÁVARÚTVEGUR Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Vörur fyrir sjávarútveginn Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Við sérhæfum okkur í miðlun á sviði fyrirtækja, sjávarútvegs og fjármögnunar. www.vidskiptahusid.is Fyrirtækjamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf Humarinn er hluti af veisluhaldi jólanna hjá mörgum en þar seg- ir Pétur að markaðurinn glími við framboðsvanda. „Sá humar sem veiddist á nýloknu veiði- tímabili var frekar stór og vinnsla á humri hjá framleið- endum miðast við að koma sem mestu heilu, með haus og klóm, í útflutning. Þar sem halinn er einungis um 30% af heild- arþunga humarsins þá fæst betra verð fyrir hann heilan. Það sem slitið er fyrir halaframleiðsl- una er því frekar dýrt. Einnig hefur humarkvótinn verið að minka undanfarin ár. Hum- arhalar eru því ekki fáanlegir í eins miklu magni og óskandi væri, og reynum við að hamstra allan þann humar sem við get- um fengið. Einnig hefur eftrisp- urnin verið að aukast mikið með fjölgun ferðamanna, enda hum- arinn frábær matur.“ Er ástandið ekki þannig að lesendur verði að óttast að koma að tómum frystum þegar á að kaupa humar í jóla- og ára- mótaboðin en málin gætu farið að vandast nær páskum og orð- ið humarskortur í verslunum. „Humarveiðitímabilið er frá apríl fram í nóvember og ekki von á meiri humri á markað fyrr en í aprílbyrjun.“ Morgunblaðið/Kristinn Framboðið af humri er ekki nóg til að mæta eftirspurn markaðarins. Verður humarskortur næstu páska? Pétur Þorleifsson, framkvæmda- stjóri Norðanfisks, segir að þegar komi að sjávarfangi hafi unga fólkið allt aðrar óskir en eldri kynslóðirnar. Honum sýnist að neysla á fiski standi nokkurn veginn í stað en neytendur kaupi fjölbreyttari vöru: „Við höfum lengi selt frosin fiskflök í neyt- endapakkningum, og meira unna vöru á borð við plokkfisk, fisk- bollur og fisk- gratín, auk ýsu, þorsks og fleiri tegunda í raspi. Þessi hefðbundni íslenski fiskur stendur enn fyrir sínu en innflutning- urinn er alltaf að aukast á þeim fisk- tegundum sem ekki veiðast hér við land, í takt við eftirspurn eftir t.d. túnfiski, hamachi, risarækjum, kóngakrabba og hörpuskel. Á skömmum tíma hefur vöruúrvalið okkar tvöfaldast og erum við núna með 300 vörunúmer í sölu. Vitaskuld má skýra eftirspurnina eftir þessum tegundum með þeim uppgangi sem verið hefur í veitingageira með fjölg- un ferðamanna, en Íslendingar elda þessar tegundir líka heima, eru dug- legir að borða sushi og góð sala er í risarækjum og hörpuskel í versl- unum.“ Raspa og steikja fyrir HB Granda Árið 2014 urðu breytingar á eignarhaldi Norðanfisks þegar HB Grandi eignaðist allt hlutafé fyrir- tækisins. Áður hafði HB Grandi átt 25% eignarhlut á móti Brimi sem einnig átti fjórðung og Kjarnafæði sem átti helming hlutafjár. Pétur seg- ir Kjarnafæði hafa viljað selja og HB Grandi gjarnan kaupa og vissulega séu ákveðin samlegðaráhrif á milli starfsemi HB Granda og Norðanfisks sem einblínir á sölu sjávarafurða til neytenda og veitingastaða. „Samlegð- aráhrifin hafa meðal annars komið fram á sviði vöruþróunar. HB Grandi fjárfesti í svokallaðri formunarvél frá Marel sem formar flökin í bita sem við síðan setjum í rasp og for- steikjum, og HB Grandi selur á er- lenda markaði. Innlendi markaðurinn skipar þó langsamlega stærstan sess í okkar daglega rekstri.“ Skinnpakkaðir bitar Nýjasta viðbótin við vöruúrvalið er ferskur fiskur sem seldur er í pakkn- ingum sem hver rúmar um einn eða tvo skammta. „Neytendur kalla æ meira eftir vöru sem er tilbúin eða því sem næst, og fljótlegt að elda. Frosin vara í fjölskyldupakkningum er því smám saman að víkja fyrir ferskum fiski sem skorinn hefur verið í bita og er nánast tilbúinn til eldunar. Þessum vörum pökkum við inn í „skinnpakkn- ingar“ og dreifum í verslanir, en stefnt er á að hefja dreifingu á þess- um vörum í byrjun næsta árs. Þessi nýja vara frá Norðanfiski minnir á þróunina á mörkuðum er- lendis. Þannig voru gerðir svipaðir hlutir með Saucy Fish-línunni í Bret- landi, og til þess gert að gera fiskinn aðgengilegri fyrir unga kaupendur sem vita ekki endilega hvað á að gera við heilt flak.“ Laxinn og bleikjan að styrkjast Breytingarnar sem orðið hafa hjá neytendum eru slíkar að sumar vörur sem áður voru á allra borðum finnast varla lengur. „Við erum ekki lengur með þverskorna ýsu og þverskorinn lax. Ein af þeim vörum sem við fáum hvað mest þakklæti fyrir er þegar við getum sett þorskkinnar með beini í sölu. Þá hringja gömlu karlarnir mjög ánægðir með að hafa getað fundið þessa vöru og eldað eins og þeir eru vanir frá fyrri tíð.“ Sú tegund sem sækir hvað hraðast á er laxinn. „Neytendur virðast mjög meðvitaðir um hollustuna í laxinum, enda auðugur af ómegafitusýrum og D-vítamíni. Sama gildir með bleikj- una – bleiku fisktegundirnar eru að vinna mikið á, og kannski er sú þróun að hluta vegna vinsælda sushi og aukinnar heilsuvitundar lands- manna.“ Reyktur og grafinn lax rjúka út á þessum árstíma Desember er besti sölumánuður- inn hjá Norðanfiski. Pétur segir hefð- bundnu vörurnar standa nokkurn veginn í stað en mun meira er selt af humri og reyktum og gröfnum laxi. Er eftirspurnin eftir reyktum og gröfnum laxi slík að Norðanfiskur og aðrir framleiðendur virðast varla hafa undan. Bendir Pétur á merkilegt fyrir- bæri sem á sér stað í laxasölunni í desember. „Alla aðra mánuði ársins er salan á reyktum laxi tvöfalt meiri en salan á gröfnum, en snýst svo við í desember þegar grafni laxinn selst í þrefalt meira magni.“ Norðanfiskur framleiðir einnig og selur graflaxsósu og greinilegt er að landinn vill ekki spara sósuna á lax- inn. „Það lætur nærri að seljist ein sósupakkning fyrir hverja pakkningu af reyktum eða gröfnum laxi.“ Vöruframboðið hefur tvö- faldast á nokkrum árum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Markaðurinn kallar eftir fiski í bitum sem auðvelt er að elda. Meira er flutt inn af tegundum sem ekki veið- ast í kringum Ísland, s.s. túnfiski, risarækjum og hörpuskel. Pétur Þorleifsson Hefðbundinn þorskhnakki stendur alltaf fyrir sínu, en neytendur vilja líka prufa nýjar tegundir sem áður hefu þótt framandi. Veitingastaðirnir skýra þróunina að hluta, en líka breyttar neysluvenjur s.s. auknar vinsældir sushi. STJÓRNUNARHÆTTIR Ný skýrsla Landbúnaðar- og mat- vælastofnunar SÞ (FAO) sýnir að á heimsvísu hallar mjög á konur í sjávarútvegi. Samsetning stjórna 100 stærstu sjávarútvegsfyrir- tækja heims var skoðuð og kom í ljós að hjá því 71 fyrirtæki sem veittu FAO upplýsingar var helm- ingur stjórna eingöngu skipaður karlmönnum og engin kona í leið- togastöðu hjá fyrirtækjunum. Hjá aðeins 16% fyrirtækjanna fylla konur meira en fimmtung stjórnar- sæta. Noregur kom best út úr mæling- unni, þá Kína og Ísland ai@mbl.is Fáar konur í stjórnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.