Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 11FRÉTTIR Af síðum Gleymið töfraprinsessunum. Helmass- aðir útherjar í ameríska fótboltanum hafa í mörg ár skipt mun meira máli fyrir afkomuna hjá Walt Disney. En nú þegar þrengir að ESPN, íþróttarás Disney, fjölgar í hópi þeirra sem vilja að samsteypan selji rásina. Greinendur hjá Royal Bank of Canada viðruðu þá skoðun sína á mánu- dag að með því að aðskilja og selja 80% eignarhlut Disney í ESPN, þá myndi það sem eftir væri af fyrirtækinu hækka í verði. Þá væri hægt að gera eitthvað íhaldssamt, eins og að greiða út háan arð. Eða gera eitthvað djarft og kaupa Netflix. ESPN er í vanda statt. Áhorfsmælingar Nielsen áætla að sjónvarpsstöðin hafi misst 555.000 kapaláskrifendur í nóvember og er það næstmesta fækkunin frá upphafi (október á metið). Það þýðir að 88,4 milljónir heimila eru með ESPN, en voru 100 milljónir árið 2011. Hlutabréf í Disney hafa lækkað um 20% frá hæsta verði síðasta árs og heildarvirði félagsins, upp á 176 milljarða dala, er tífaldur væntur EBITDA-hagnaður næsta árs, borið saman við þrettánfaldan á síð- asta ári. Það er alveg rétt að skella skuldinni á ESPN. En núna virðist ekki rétti tíminn til að leggja árar í bát. ESPN er bundið af því að afskrifa dýra sýningarrétti og þarf á sama tíma að hafa áhyggjur af áhorfendum. Hvort sem kaupandinn yrði annað skráð hlutafélag eða umbreytingafjárfestir, þá myndi hann varla borga fullt verð við núverandi aðstæður og Disney er ekki í þeirri stöðu að þurfa að efna til brunaútsölu. Það myndi vissulega bæta margfeldisstuðul samsteypunnar að selja. En hluti af þeim umdeilanlega bata virðist langsóttur; að með því að skera frá ESPN verði Disney sjálft álitlegra á markaðnum. En jafnvel þó að heildarvirði félagsins lækkaði niður í 130 milljarða dala, þá myndi Disney samt vera of stór biti fyrir nokkurt annað fjölmiðla- fyrirtæki. Fjarskiptafyrirtæki eins og Verizon eða tæknifyrirtæki á borð við Apple væru einu mögulegu kaupendurnir, og varla það. Framlag ESPN hefur dregist saman. Stóra kapalstöðvadeildin sem ESPN er hluti af, myndaði áður meira en 60% af rekstrarhagnaði. Undanfarna 12 mánuði hefur hlutfallið lækkað niður í 43%. En ESPN er samt risastór uppspretta fjárstreymis. Aðrir hlutar Disney- veldisins, eins og kvikmyndaframleiðslan, ganga líka í gegnum upp- og niðursveiflur. Þeim er ekki hent á haugana eftir eitt slæmt rekstrartímabil. Það ætti að gefa stjórnendunum meiri tíma til að koma hlutunum í lag, frekar en að sparka ESPN út af vell- inum. LEX AFP Walt Disney: Stolinn bolti Eitt sinn sagðist Jørgen Vig Knuds- torp vonast eftir að verða forstjóri Lego „fyrir lífstíð“. Það verður því að teljast tímamót að maðurinn sem bjargaði danska leikfangaframleið- andanum frá fjárhagslegu stórslysi sé að færa sig um set eftir tólf ár í starfi. Knudstorp getur gert tilkall til að teljast á meðal dugmestu stjórnenda síðastliðinna tíu ára. Hann stýrði framleiðanda á litlum plastkubbum inn í tímabil stóraukinnar sölu og hagnaðar, á meðan nær allir aðrir leikfangaframleiðendur liðu fyrir vaxandi vinsældir stafrænnar af- þreyingar. En þessi 48 ára gamli stjórnandi staðhæfir að sú ákvörðun hans að gerast stjórnarformaður Lego og nýs félags, Lego Brand Group, sé ekki ljúfsár. „Alls ekki ... ég mun halda áfram að fylgja vörumerkinu eftir og vinna fyrir Lego,“ segir hann. Mesta uppstokkun frá 1932 Breytingin sýnir hversu mikla trú og traust fjölskyldan sem stofnaði Lego ber til Knudstorp, sem áður var ráðgjafi hjá McKinsey. Þau hafa í raun fært allan rekstur og stjórnun sem tengist Lego í hendur Knuds- torp og Thomas Kristensen, en sá síðarnefndi er af fjórðu kynslóð fjöl- skyldu stofnandans. Um er að ræða uppstokkun sem er sú umfangsmesta frá því fyrir- tækið var stofnað árið 1932. Kirkbi, fjárfestingarfélag Kristensen- fjölskyldunnar, mun færa tilteknar eignir yfir í Lego Brand Group: 75% eignarhlut fjölskyldunnar í leik- fangaframleiðslunni; 30% eignarhlut í Merlin, sem rekur Legoland skemmtigarðana; sprotafyrirtækið Lego Education, auk ýmissa vöru- merkja og stoðþjónustu. Engar breytingar verða með aðr- ar eignir Kirkbi, þar á meðal fjár- festingar í nokkrum stórum félögum á danska hlutabréfamarkaðinum og í vindorkuverum. Sem nýr stjórnarformaður Lego og nýju vörumerkissamsteypunnar, er það vald sem Knudstorp hefur verið falið til marks um hvernig hon- um tókst að endurlífga fyrirtækið. Hann kom inn í ofþanið og fjárhags- lega veikburða leikfangaframleiðslu- fyrirtæki. Aðeins 35 ára að aldri tókst honum fljótlega að snúa rekstrinum við og sótti svo í fram- haldinu vöxt inn á bandaríska og kínverska markaðinn, sem skilað hefur Lego árlegri 17% tekjuaukn- ingu að jafnaði síðan 2004. Knudstorp segir að stjórnunar- breytingarnar komi að mestu til að hans eigin ósk, en honum fannst far- ið að „teygjast fullmikið á sér“ undanfarin ár með stjórnarstörfum í ýmsum fyrirtækjum sem tengjast Lego, til viðbótar við forstjóra- hlutverkið. Forstjórinn ekki danskur Knudstorp telur að nýja verka- skiptingin muni gefa honum svig- rúm til að skoða ný og ókönnuð tæki- færi fyrir Lego-vörumerkið, en hann segir líka mikilvægt að „bæta ekki við lagi af skrifræði“. Vinna hans muni að miklu leyti fara fram á stjórnarfundum Lego, hjá góðgerðarsjóðnum Lego Founda- tion, og hugsanlega hjá skemmti- garðafyrirtækinu Merlin Entertain- ments. Hann heldur því líka fram að skipulagsbreytingarnar muni gefa nýja forstjóranum, Bali Padda, auk- ið frelsi. Padda er Breti og núver- andi rekstrarstjóri Lego, og hefur hann starfað hjá fyrirtækinu í 14 ár. Hann verður fyrsti forstjóri fyrir- tækisins sem ekki er danskur að uppruna. En hann segist ákveðinn í að halda höfuðstöðvum fyrirtækisins í svefnbænum Billund, á miðjum Jótlandsskaganum. Padda tekur við leikfangafram- leiðanda sem er í fantaformi, þó sumir hafi áhyggjur af því hversu sjálfbær vaxtarhraðinn er. Hann segir að helstu áherslumálin verði að efla getu og sveigjanleika Lego. Hann nefnir nýja verksmiðju í Kína sem dæmi. „Það þarf að tryggja að erfðaefni Lego verði þar til staðar, með sömu gæðin og sömu menninguna. Búum við yfir nægilegum krafti til að tvö- faldast, eða þrefaldast?“ spyr hann. Slík stækkun er ekki einfalt mál. Lego hefur þegar fjölgað starfs- mönnum um fjórðung á undan- gengnu ári og hyggst auk þess stækka við sig í Ungverjalandi og Mexíkó. Nær til 10% barna í heiminum Ekki stendur til að draga úr metn- aðinum. Knudstorp bendir á að í dag nái Lego ekki til nema 10% af öllum börnum heimsins, og eru þau flest í hópi þeirra ríkustu. Hann veltir því fyrir sér að auka þetta hlutfall með nýjum tólum sem hann hefur yfir að ráða, eins og Lego Education sem býr til kennslugögn fyrir skóla um allan heim. Hann bætir við að Kína, Indland og Afríka (Lego finnst varla á tveimur síðarnefndu markaðs- svæðunum) muni verða stóru vaxt- armarkaðirnir í framtíðinni. Í samræmi við þá hefð hjá Lego sem kölluð er „tveir í kassa“ – þar sem sá sem gegnir starfi í dag og sá sem á að taka við af honum verja mörgum mánuðum saman – munu Knudstorp og Padda verja mestum hluta vetrarins saman. Knudstorp segist þurfa að „hafa það hugfast að ég gæti varpað skugga á hvern þann sem tekur við af mér,“ en hann segist vita að Padda muni ekki eiga í neinum vandræðum með að segja honum að „hafa sig hægan“ ef þess reynist þörf. Padda segist einfaldlega hafa ekkert við þetta fyrirkomulag að at- huga enda „traust samband“ á milli þeirra félaga, þar sem þeir geti út- kljáð hvers kyns ágreiningsmál. Knudstorp viðurkennir að þessi tíðindi séu „stærsta breytingin hjá Lego í mjög langan tíma“. En bætir við að ólíkt því þegar hann kom fyrst inn í fyrirtækið, þá sé breytingin núna „skipulögð úr sterkri stöðu“. Leggja drög að framtíð byggðri á Lego-kubbum Eftir Richard Milne í Billund Töluverðar breytingar verða gerðar á Lego- samsteypunni og mun for- stjórinn færa sig í sæti stjórnarformanns. AFP Jørgen Vig Knudstorp kynnti breytingarnar hjá Lego í fyrradag en hann tekur nú við stjórnarformennsku eftir að hafa snúið rekstri fyrirtækisins við. Cuxhavengata 1 • Hafnarfirði • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is Við horfum til hafs Sérhæfum okkur í sölu á: Grunnur að góðum viðskiptum • Sjávarútvegsfyrirtækjum • Aflaheimildum • Skipum & bátum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.