Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 1

Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  293. tölublað  104. árgangur  dagar til jóla 10 Þvörusleikir kemur í kvöld www.jolamjolk.is UPPRUNI ÍSLEND- INGA BROTINN TIL MERGJAR GAMAN AÐ SKOÐA FUGLA SAMAN ÍMYNDUNARAFLIÐ FÆR LAUSAN TAUMINN FRÆÐSLURIT FYRIR BÖRN 12 BARNABÆKUR 41ÁRDAGAR ÍSLENDINGA 38 Morgunblaðið/Golli Veitt í Selá Bændur í Vopnafirði minnka búrekstur og láta rentur af ám duga.  Einungis er fullur búrekstur á um fjórðungi þeirra lögbýla sem eru skráð með búrekstur í Vopna- firði. Ein helsta ástæða þess er að auðmenn hafa keypt fjölda jarða á svæðinu og eiga þær veiðirétt að Selá, Hofsá, Sunnudalsá og Vestur- dalsá. Einnig hafa margir bændur minnkað umsvif sín og látið rentur af ánum duga að hluta til eða að öllu leyti. Björn Halldórsson rekur ásamt fleirum stærsta búið á svæðinu. Hann segist ekki vera sérstaklega bjartsýnn á að búrekstur verði á jörðunum í framtíðinni. »6 Búrekstur minnkar og fleiri jarðir eru í eigu auðmanna Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Það er ljóst að þær breytingar sem fylgja þessu frumvarpi munu kalla eftir töluvert hærra framlagi af rík- isins hálfu til þess að styðja við jöfn- un lífeyrisréttinda,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, er hann mælti fyrir nýju frumvarpi um grundvallar- breytingar á lífeyrismálum opin- berra starfsmanna á Alþingi í gær. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá fyrra frumvarpi sem dagaði uppi á seinasta þingi. Framlög ríkisins hafa verið hækkuð og sagði Bjarni að það kæmi fram í frumvarpi til fjár- aukalaga 2016 sem væntanlega verð- ur lagt fram á þingi í dag og munaði þar tugum milljarða á því framlagi sem þarf að koma frá ríkinu til að breytingarnar í lífeyrismálum gætu gengið eftir. Þetta væri hátt í 30 milljörðum hærri fjárhæð en áður var gert ráð fyrir, sem gjaldfærist á þessu ári. Skv. frumvarpinu hækkar ein- greiðsla í svonefndan lífeyrisauka um 9,5 milljarða frá fyrra frumvarpi og fer upp í 106,8 milljarða og einnig þarf ríkið að leggja A-deild Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins til hátt framlag vegna þess að staðan hefur versnað mjög á þessu ári og er nei- kvæð um 10,4 milljarða. Ávöxtun á eignum LSR er sögð hafa verið slök á þessu ári, m.a. vegna virðisrýrn- unar erlendra eigna í íslenskum krónum. Kennarasamband Íslands ítrekaði í gær gagnrýni sína á frumvarpið. Bætt við tugum milljarða  Breytingar á lífeyrisfrumvarpinu kalla á hærra framlag ríkisins til að koma á jöfnun lífeyrisréttinda  Jafna þarf stöðu LSR vegna slakrar ávöxtunar á árinu MKostnaðurinn hækkar »22 Vitalí Tsjurkin, sendiherra Rúss- lands hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í gærkvöldi að átökunum í austurhluta Aleppo í Sýrlandi væri lokið. Allur borgarhlutinn væri nú á valdi stjórnarhers landsins eftir meira en fjögurra ára mannskæð átök við uppreisnarmenn sem náðu borgarhlutanum á sitt vald árið 2012. Fyrr í gær skýrði sendiherrann frá því að samkomulag hefði náðst um að leyfa uppreisnarmönnum og íbúum austurhlutans að fara þaðan. Málið var rætt á neyðarfundi ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Samantha Power, sendiherra Bandaríkjanna, sagði að eftirlits- menn þyrftu að fylgjast með því að fólkið fengi að fara frá austurhluta Aleppo óáreitt. Íbúar skotnir til bana Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu að mannréttindaskrif- stofa samtakanna hefði fengið trú- verðugar upplýsingar um að a.m.k. 82 óbreyttir borgarar hefðu verið skotnir til bana í austurhluta Aleppo í gær, þeirra á meðal börn. Talsmað- ur Sýrlandshers neitaði því. »20 Bardögum lokið  Samið um að fólk fái að flýja Aleppo Þrátt fyrir erfiðar stjórnarmyndunarviðræður undanfarnar vikur og stór mál sem liggja fyrir Alþingi var létt yfir þingmönnum í þingsal í gær. Í það minnsta brostu nokkrir af nýliðum þingsins, en hér má sjá frá vinstri Rósu Björk Brynjólfsdóttur, Andrés Inga Jónsson, Kolbein Óttarsson Proppé, Ara Trausta Guðmundsson og Hildi Sverrisdóttur, sem kom inn á þing fyrir Ólöfu Nordal sem er í veikindaleyfi. Nýliðarnir slógu á létta strengi við þingstörfin Morgunblaðið/Ófeigur Afgreiða þarf stór mál fyrir áramót á Alþingi Íslendinga  Stór hluti öku- manna á höfuð- borgarsvæðinu er ekki enn kom- inn á vetrardekk, að mati fram- kvæmdastjóra Sólningar. Hann segir algengara að ökumenn skipti ónegldum dekkjum út fyrir negld, enda komi þau betur út í við- námsprófunum. Gríðarleg svif- ryksmengun var í Reykjavík sl. laugardag, eða sextánfalt meiri en heilsuverndarmörk og á við gott gamlárskvöld. »14 Sextánföld svif- ryksmengun Nagladekkin valda mengun. Íbúðalánasjóði (ÍLS) hefur gengið vel að selja fasteignir sínar það sem af er árinu. Salan er í fullu samræmi við áætlanir, að sögn Ágústs Kr. Björnssonar, forstöðumanns fulln- ustueigna hjá ÍLS. Í byrjun ársins var gert ráð fyrir að selja 900 eignir á árinu. Hinn 8. desember síðastlið- inn var búið að selja 859 eignir. „Góð sala hefur verið á flestum markaðssvæðum og í einstökum landshlutum. Áberandi að fast- eignamarkaður á Suðurnesjum hef- ur verið góður og mikil sala eigna hefur verið þar. Þá hefur sala eigna ÍLS gengið vel á flestum svæðum landsins,“ að því er kemur fram í svari Ágústs við fyrirspurn Morgun- blaðsins. »4 Mikil sala fasteigna ÍLS á Suðurnesjum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjanesbær Fasteignamarkaður á Suðurnesjum er áberandi góður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.