Morgunblaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 Samræmd próf í les- skilningi og læsi á stærðfræði og nátt- úrufræði, sem kallast PISA, hafa verið lögð fyrir 15 ára unglinga í tugum landa á þriggja ára fresti frá aldamót- um. Árangur íslenskra unglinga á prófinu sem var lagt fyrir 2015 er heldur dapurlegur. Þeir standa sig verr en jafnaldrar annars staðar á Norðurlönd- unum og útkoman er líka lakari en verið hef- ur hjá nemendum hér á landi. Árið 2009 var einkunn íslenskra nemenda til dæmis skárri að jafnaði en meðaltal OECD-landa, en nú var hún síðri. Um þetta má lesa í skýrslu sem liggur frammi á vef Mennta- málastofnunar (https://mms.is/). Ég veit ekki fremur en aðrir hvað veldur þessari hraklegu útkomu. Mér finnst ekki ótrúlegt að hún standi í einhverju sambandi við hreyfingarleysi og óholla lífshætti. Ég get mér samt til að önnur ástæða vegi þyngra. Áður en ég greini frá tilgátu minni ætla ég að rifja upp svolitla sögu. Þegar PISA-könnun var fyrst lögð fyrir árið 2000 héldu flestir sem höfðu skoðun á málinu að finnskt skólakerfi væri frumstætt. Fjárútlát til þess voru með minna móti og kennslustundir sem nemendur fengu á ári færri en víða annars staðar. Finnar höfðu ekki breytt skólum sínum í samræmi við nýjustu tísku í opinberum rekstri, þar sem átti að líkja eftir samkeppni á mark- aði. Það bættist svo við annan út- kjálkabrag hjá þeim að kennarar og skólar höfðu sjálfræði um námsefni og námsmat. Lítið var um stöðlun og aðhald af hálfu stjórnvalda. Það kom því verulega á óvart að finnskir ung- lingar voru í efsta sæti og stóðu sig betur en jafnaldrar í öðrum löndum. Um þetta má lesa í bók eftir Pasi Sahlberg sem heitir Finnish Les- sons og kom út árið 2011. Sahlberg hóf feril sinn sem kenn- ari í stærðfræði og raungreinum við finnskan menntaskóla en gegnir nú prófessorsstöðum í menntavísindum við háskóla bæði í Finnlandi og Bandaríkjunum. Hann er einn þeirra fræðimanna sem mest hafa rannsakað niðurstöður PISA- kannana. Í The Handbook of Global Education Policy sem kom út fyrr á þessu ári (2016) er kafli eftir hann þar sem segir meðal annars að PISA-prófin hafi ýtt undir viðleitni stjórnvalda til „umbóta“ í mennta- málum, eða það sem hann kallar „the Global Education Reform Movement“ og skammstafar GERM. Þessi skammstöfun er orða- leikur því „germ“ getur merkt sýkil og Sahlberg líkir umræddri viðleitni við plágu sem herjar á menntakerfi heimsins. Hann segir að helstu einkenni þessarar umbótaplágu séu að stjórnvöld: Noti samræmdar mæl- ingar á árangri til að veita skólum aðhald; Staðli námskröfur og kennsluhætti; Komi á samkeppni milli skóla; Auki áherslu á lestur, stærðfræði og náttúrufræði á kostn- að annarra greina; Noti aðferðir sem hafa mótast hjá fyrirtækjum á markaði til að innleiða breytingar. Í stuttu máli lýsir hann þessum far- aldri svo að hann auki á ýmis ein- kenni sem finnska skólakerfið hafði í minni mæli en skólakerfi flestra annarra landa þegar í ljós kom að það skaraði fram úr. Og hver er ár- angurinn? Greining Sahlbergs sýnir að í löndum þar sem mest kveður að „umbótum“ af þessu tagi fara ein- kunnir á PISA-prófum lækkandi. Samkenni þessa stjórnunarlega bægslagangs sem spillir árangri skóla virðist vera lítið traust til kennara, tilraunir til að veita þeim aðhald, passa að þeir innleiði réttar breytingar og þar fram eftir göt- unum. En víða þar sem niðurstöður PISA eru með betra móti, segir Sahlberg, hafa kennarar faglegt sjálfstæði og ákveða bæði hvað er kennt og hvernig árangur nemenda er metinn. Það er svo sem gömul saga og ný að traust og virðing laða fram það besta sem í mönnum býr. Það er líka gömul saga og ný að það er ekki hægt að kenna öðru vísi en eftir eig- in höfði og fáir gera það vel undir mikilli pressu. Í skóla þarf að vera slaki á tímanum, ráðrúm til að endurtaka og byrja upp á nýtt, grípa óvænt tækifæri sem upp koma, bregða á leik og fara alls konar útúr- dúra. Þetta var sagan og nú kemur til- gátan. Ég get mér til að vandi okkar sé sama umbótaplágan og herjar á menntakerfi margra landa. Þessi plága er ráðríki, ofstjórn og van- traust. Allt þetta er borið fram í bland við kröfur um að kennsla sé löguð að þankagangi sem á kannski við í fyrirtækjum sem framleiða vörur og þjónustu í samkeppni um hylli kaupenda, en minnkar hvorki kostnað né bætir árangur í skólum. Mér þykir þessi tilgáta sennileg vegna þess að mín takmarkaða reynsla kemur þokkalega heim við það sem Sahlberg segir. Mér hefur sýnst að kennarar lagi starf sitt að þörfum nemenda þegar þeir geta treyst því að það sem þeir byggja upp í dag verði ekki jafnað við jörðu með einhverjum miðstýrðum stór- framkvæmdum á morgun. Ef kennarar á hverjum stað fá að gera sínar umbætur í friði fyrir stjórnvöldum er von til að kerfið mjakist smám saman í rétta átt. Fyrsta skref út úr ógöngum skól- anna gæti til dæmis verið að fjar- lægja stimpilklukkurnar. Þær eru sýnilegustu táknin um að litið sé á kennara sem lítilþæga undirsáta fremur en fagmenn sem við treystum. Umbótaplágan Eftir Atla Harðarson »Árangur 15 ára ung- linga á PISA-prófi 2015 vekur spurningar um hvort „umbætur“ séu að eyðileggja íslenska skóla. Atli Harðarson Höfundur er heimspekingur og kennari við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 TAKTU ÞÁTT Í AÐ BYGGJA BRUNNA Í AFRÍKU ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK! SENDU HJÁLP NÚNA MEÐ ÞVÍ AÐ - greiða valgreiðslu í heimabanka – 2500 kr. - hringja í söfnunarsíma 907 2003 – 2500 kr. - leggja til framlag á framlag.is - gefa gjafabréf á gjofsemgefur.is - leggja inn á söfnunarreikning okkar 0334-26-50886, kt. 450670-0499 PIPAR\TBW A -SÍA -165297

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.