Morgunblaðið - 14.12.2016, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skrokkurinn er eitthvað aumur eftir
átök síðustu daga. Gott nudd eða heiti
potturinn getur bætt þar úr. Vinur í vanda
leitar til þín, þú veist hvað þér ber að gera.
20. apríl - 20. maí
Naut Væntingar fólks almennt, þínar líka, eru
of miklar í dag. Róm var ekki byggð á einum
degi. Þolinmæði er dyggð og þig skortir hana,
viðurkenndu það og reyndu að bæta úr því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst gaman að taka áhættu.
Temdu þér víðsýni og reyndu að sjá hlutina í
víðara samhengi áður en þú ákveður næstu
skref. Þú færð fréttir af fjölgun í fjölskyld-
unni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú snýst til varnar samstarfsmann-
eskju þinni í dag. Engum tekst að slá þig út af
laginu þegar þú ert í þessum ham sem þú
hefur verið í síðustu daga.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú stendur frammi fyrir svo mörgum
möguleikum að það er úr vöndu að ráða.
Láttu það samt ekki aftra þér frá því að
skreppa í frí.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur staðið á beit að undanförnu
og nú er komið að því að halda í við sig og
hreyfa sig aðeins meira. Ekki kvíða því að
taka fyrsta skrefið í uppgjöri við fjölskylduna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Búðu þig undir að þurfa að leggja heil-
mikið á þig á komandi mánuðum. Þú ert á
fullu í félagslífinu og mættir aðeins hægja á
þér. Þú ættir að hugsa betur um heilsuna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þeir eru margir sem dást að þér
og starfi þínu og meðan þú heldur þínu striki
þá áttu hrósið skilið. Veldu vel þá sem þú vilt
umgangast í framtíðinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Af hverju ættir þú að flýta þér
þegar þú veist ekki hvert þú ert að fara?
Sjálfstraustið er í góðu lagi og þú ert jafn-
framt hress. Hvað er hægt að biðja um
meira?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það eru margir lausir endar, sem
þú þarft að hnýta, áður en þú getur slakað á.
Hlustaðu á ráð sem þér eru gefin, þú þarft
ekki að fylgja þeim samt sem áður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sköpunargáfa þín vekur athygli
fólks. Leitaðu innlifunar í bækur, vini, músík
eða ferðalög. Komandi ár verður gott.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður sífellt meðvitaðri um mátt
orða þinna. Ekki taka mikilvægar ákvarðanir
næstu daga, kyrr hugur vinnur best.
Hér er dýrt kveðið hjá Ólafi Stef-ánssyni. Hann skýrir vísuna
svo að „hjón úr næstu sveit, koll-
egar okkar, héldu upp á afmæli á
ferðalagi erlendis og fengu vísu að
því tilefni. Vísan var í dýrari kant-
inum, rétt eins og kampavínið sem
þau veittu. Þetta er langhenda,
oddhent og flughent.
Örn í Túni, efnum búni,
aldrei lúni’ á ferð um heim,
og svanninn brúni á svanadúni,
seint mun fúna ást hjá þeim.
„Haustvísu á ýli“ risti Arnþórr
(Helgason) leirskáld í Leirinn:
Ennþá niður lafir laust
lítið tól að framan.
Tekur nú að nálgast haust,
nætur dvínar gaman.
„Hvað er að heyra, Arnþór?“
spyr Helgi Zimsen:
Ekki rærðu inni í naust.
Ertu að hvíla tólin?
Haldin samt er hátíð traust
hrútanna um jólin.
Arnþórr leirskáld aftur:
Fengitíminn fer nú að,
fýsnir vorar magnast.
Er nú best að þekkja það
þegar ánum gagnast.
Ingólfur Ómar er með á nót-
unum:
Hátíð nálgast helg og skær
hefst þá frí í skólum.
Fengitíminn færist nær
fylgir bústang jólum.
Og loks er Helgi Zimsen með
„vangaveltur í desember“:
Líkt og hamstur hjóli í
horfi á árið líða.
Löngu er sumars farið frí,
finnst þó sumarblíða
Þessi skemmtilegu orðaskipti
urðu á Boðnarmiði. – Stefán Rögn-
valdsson:
Þegar nálgast lífsins lok
lækkar sólarbaugur.
Eftir mikið amstur, rok
endar þú sem draugur.
Ágústa Ósk Jónsdóttir svaraði:
Í gröf vil sofa í góðum reit
genginn er lífsins stigi,
þessir draugar, það ég veit
þeir eru bara lygi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vangaveltur og
fengitíminn fer í hönd
Í klípu
„ÉG BAÐ UM FEGRUNARYFIRHALNINGU
– STÍLISTA, EKKI STÍL.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GELTIÐ HANS ER VERRA EN BITIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að reyna að laga
kramið hjarta.
ÉG VAR EINU
SINNI HNULLUNGUR,
NÚ ER ÉG STEIN-
VALA
ÞAÐ ER
LÓÐIÐ!
VEÐRUNAR-
KÚRINN!
HVERNIG
LÍÐUR
KARLI?
BETUR!
HANN SEGIR AÐ
ÞÚ SÉRT HONUM
HVATNING TIL ÞESS
AÐ LIFA!
Í
ALVÖRU?!
JAFNVEL EFTIR
AÐ ÉG SENDI
HANN Í ÞESSA
FYRIRSÁT!
JÁ!
HANN VILL LIFA
TIL ÞESS AÐ GETA
KYRKT ÞIG!
Víkverji hefur aldrei haft mikinnáhuga á herjum og veltir því oft
fyrir sér hve miklu mætti koma til
leiðar til að bæta mannlífið ef allur
sá tími og peningar sem fara í að
reka heri færi í brýnni verkefni.
x x x
Einn er þó sá her, sem Víkverjigetur ekki fengið af sér að gagn-
rýna. Hjálpræðisherinn hefur lagt
áherslu á að styðja þá sem minnst
hafa á milli handanna. Hjálpræðis-
herinn hefur verið fastur punktur í
miðbæ Reykjavíkur og haft höfuð-
stöðvar sínar í Kirkjustræti 2 í rúma
öld. Það verða viðbrigði þegar hann
flytur í nýjar höfuðstöðvar á Suður-
landsbraut.
x x x
Hjálpræðisherinn leggur áherslu áað hjálpa þeim, sem eru heim-
ilislausir og utangarðs. Hann hefur
rekið súpueldhús í Kirkjustræti, en
því þurfti að loka þegar húsnæðið
var selt. Nú eru uppi hugmyndir um
að fara nýjar leiðir og er í þeim efn-
um horft til fordæma annars staðar,
súpurútu, sem rekin hefur verið í
Ósló, og eldhúsbíla í Bandaríkj-
unum.
x x x
Jólaveislan á aðfangadagskvöldhefur verið fastur liður hjá
Hjálpræðishernum í fjöldamörg ár.
Í veislunni er lesið jólaguðspjall,
borðaður jólamatur og dansað
kringum jólatréð með jólasveinum,
sem koma í heimsókn. Að lokum eru
gestir leystir út með gjöfum. Eins og
fram kemur í nýjasta tölublaði Her-
ópsins voru um 200 manns skráðir í
mat bæði sem sjálfboðaliðar og gest-
ir þegar veislan var haldin í Ráðhúsi
Reykjavíkur í fyrra. Er það fjöl-
mennasta veisla Hjálpræðishersins
frá upphafi.
x x x
Jólaveislan verður einnig haldin íRáðhúsinu á aðfangadagskvöld
þessi jól. Í Herópinu kemur fram að
jafnvel sé búist við fleiri gestum nú
um jólin, einkum vegna aukins fjölda
hælisleitenda hér á landi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Mínir sauðir heyra raust mína og ég
þekki þá og þeir fylgja mér. Ég gef
þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að
eilífu glatast og enginn skal slíta þá úr
hendi minni.
(Jóhannesarguðspjall 10:27-28)
STUÐNINGSSOKKAR
FYRIR FERÐALAGIÐ
mbl.is
alltaf - allstaðar