Morgunblaðið - 14.12.2016, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Demókratargeta ekkisætt sig við
að Donald Trump
hafi unnið forseta-
kosningarnar. Svo sem skilj-
anlegt, og fleiri en þeir eiga erf-
itt. Vikurnar eftir kjördag hefur
komið hvert útspilið af öðru til
að sanna að Trump hafi alls ekki
unnið. Hillary geti enn fengið
gamla lykilinn sinn að Hvíta
húsinu aftur.
Í marga daga eftir kosningar
voru skipulögð mótmæli í fjölda
borga gegn úrslitunum. En
þrátt fyrir að göngurnar hafi
staðið furðu lengi, „sjálfboða-
liðum“ verið greitt fyrir að taka
þátt og hefðbundin skemmdar-
verk unnin á bílum og búðum og
almennum eignum, þá virtist
niðurstaðan ekki ætla að breyt-
ast.
Þá áttuðu menn sig skyndi-
lega á því að svokallað kjör-
mannakerfi hefði tryggt Trump
sigurinn með sama hætti og
kjörmannakerfið var notað af
George Bush til að hrifsa Hvíta
húsið af Al Gore, þótt hann segð-
ist hafa fundið upp internetið.
Hillary fékk fleiri atkvæði á
landsvísu en mun færri kjör-
menn. Ekki væri hægt að una
því að þetta fáránlega kerfi, sem
virtist sérhannað fyrir Trump,
réði niðurstöðunni.
Umræðan logaði í nokkra
daga en það sljákkaði í henni
þegar bent var á að kerfið væri
meira en þrisvar sinnum eldra
en frú Clinton og í allar þessar
aldir verið rætt í alvöru um að
breyta því. Samt var gert til-
hlaup á kjörmennina til að fá þá
til að hlaupast undan merkjum.
Það virtist ekki ætla að ganga.
Þá áttuðu demókratar sig á
því að í fjórum ríkjum Banda-
ríkjanna hefði Trump unnið
naumlega, svo sem í Pennsilv-
aníu þar sem Trump hafði „að-
eins“ unnið með 66 þúsund at-
kvæða mun. Hófst nú mikill
atgangur um að fá endurtaln-
ingu. Forsetaframbjóðandinn og
græninginn Stein, sem ekki
hafði fengið mörg atkvæði í
kosningunum, var fenginn til að
gera kröfur um endurtalningu,
studdur af demókrötum, með
vísun í hversu mjótt var á mun-
unum og að grunsemdir væru
um svindl í kosningunum. Safn-
aði Stein milljónum dollara í
„baráttuna“ og mun það sem
hún nær ekki að eyða renna í
hennar eigin vasa. Stein krafðist
endurtalningar í fjórum ríkjum
þar sem litlu hafði munað. At-
hygli vakti að hún bað ekki um
endurtalningu í því ríki þar sem
munurinn var minnstur. Ástæða
þess hlýtur að vera önnur en sú
að í því ríki fór Hillary með
nauman sigur af hólmi.
Ekki hafði Stein mikið upp úr
krafsinu. Endurtalningu er lokið
í Wisconsin og þar vann Trump í
annað sinn og fékk nú 131 at-
kvæði meira en í fyrri talningu!
Þannig fór sú sjó-
ferð.
Næsta kenning
sem fjölmiðlamenn
um allan heim tóku
þátt í að fabúlera um var nýja
hættan. Falsfréttahættan, sem
er óhugnanlegri en fuglaflensan.
Fölsuðu fréttirnar tryggðu kjör
Trumps. Ríkissnáðinn sem á
Fésbók, ákafur stuðningsmaður
demókrata, hefur lofað að hið
mikla fyrirtæki hans muni taka
fyrir falsfréttir. Við fyrstu sýn
virðist öllum fréttaskýrendum
heims bera saman um að fals-
fréttirnar hafi nær allar komið
frá stuðningsmönnum Trump.
Lekarnir frá Wikileaks benda til
annars, en munið að þeir komu
frá Pútín. Fésbók boðar að stór-
veldið muni úthýsa ósönnum
fréttum. Þetta sé að sjálfsögðu
ekki ritskoðun. Það mat getur
verið rétt og má til dæmis minna
á að Stalín, sem ekki var þó al-
góður, lét aldrei eyða sönnum
fréttum um Sovétríkin. Hann
treysti þeim mönnum full-
komlega sem fóru faglega yfir
málið af hans hálfu. En svo var
þetta fölskufréttatal orðið
óbærilega hlægilegt líka.
En þá hljóp á snærið hjá
demókrötum, einmitt þegar þeir
voru teknir að örvænta um að
Trump kynni að hafa unnið for-
setakosningarnar vestra. Wash-
ington Post „lak“ skýslu frá CIA
um að það hefðu verið hakkarar
Wikileaks með kunn tengsl við
Rússa sem hefðu hakkað sig inn
í tölvupósta helstu forsprakka
Demókrataflokksins og mark-
mið aðgerðarinnar hefði verið að
stuðla að því að Trump ynni en
ekki Hillary. Það var sem sagt
Pútín sem vann en ekki Trump
og alls ekki hægt að halda því
fram að Hillary hefði tapað.
Vandinn er sá að CIA segir að
engin ný gögn hafi komið fram
heldur sé þetta nýtt mat, sem
Alríkislögreglan FBI sé ekki
sammála. Og það er ekki eini
vandinn. Þegar Wikileaks tók að
leka tölvupóstum innan úr kerfi
demókrata neituðu þeir starfs-
menn sem nafngreindir voru í
skjölunum að staðfesta að tölvu-
póstarnir væru frá þeim. Þeir
freistuðust til að ýta undir kenn-
ingar um að þetta væri hreinn
skáldskapur. Þetta var skilj-
anlegt, því póstarnir voru mjög
óþægilegir fyrir þá. En þar með
hófust engar rannsóknir á
meintu hakki, fyrst þetta var
bara gabb.
Það er erfitt að horfast í augu
við að hefðu tölvupóstar starfs-
manna demókrata ekki verið svo
fullir af óþægilegum undir-
málum þá hefði ekkert gert til
þótt einhver hefði hakkað sig
inn í þá.
En þessi dauðaleit demókrata
að galdradrykk sem geri mönn-
um fært með einum sopa að
vinna kosningarnar sem þeir
töpuðu er dálítið brjóstumkenn-
anleg.
Nýtt haldreipi
keypt daglega}Geimverurnar einar eftir
V
estur í Bandaríkjunum valdi tíma-
ritið Time Donald Trump, tilvon-
andi forseta Bandaríkjanna, sem
mann ársins. það kom varla á
óvart, hann var vel að þeirri út-
nefningu kominn. Trump sigraði nefnilega í
forsetakosningunum vestan hafs þó að fæstir
hafi gert því skóna – menn voru meira að segja
sannfærðir um að hann myndi ekki einu sinni
komast í gegnum prófkjör vestan hafs, enda
annálaður hórkarl og svikahrappur, áráttulyg-
ari sem kunnur er fyrir kvenfyrirlitningu og
kynþáttahatur.
Í kjölfar sigurs Trumps hafa ýmsir velt því
fyrir sér hvernig Trump fór að því að vinna, því
ekki er hann vinsæll vestan hafs – samkvæmt
nýjustu tölum fékk Hillary Clinton 2,83 millj-
ónum fleiri atkvæði (menn eru víst enn að telja
vestan hafs). Sem stendur berast böndin að Rússum, enda
bendir margt til þess að þeir hafi haft hönd í bagga, þó að
ekki verði farið nánar út í þá sálma hér. Fyrir vikið finnst
og mörgum að réttur handhafi titilsins „Maður ársins“ sé
Vladimír Pútín Rússlandsforseti.
Margir hafa einmitt dálæti á Pútín, enda þykir hann
vörpulegur og fastur fyrir. Austur í Rússíá er hann líka í
metum, nýtur mikilla vinsælda, ef marka má skoðana-
kannanir. Í því ljósi má kannski rýna í það hvernig honum
farnast við að stjórna ríki sínu, þar sem hann er nánast
alráður.
Þú veist það kannski ekki, lesandi góður, en Rússland,
sem eitt sinn taldist stórveldi, er í raun ámóta
stórt og Spánn ef litið er til þjóðarframleiðslu á
mann og minna en Suður-Kórea – þar eru
Rússar í þrettánda sæti ríkja heims. Nærfellt
fimmtungur þjóðarinnar lifir undir hungur-
mörkum og íbúarnir eru almennt fátækari en
íbúar Kasakstan til að mynda. Rússar eru í 119.
sæti þjóða hvað varðar ungbarnadauða, næst
fyrir neðan Srí Lanka. Meðal lífslíkur karla eru
ekki nema 65 ár. Eitt af því sem skýrir það er að
drykkja er almennari í Rússlandi en gengur og
gerist: alkóhólistar eru fleiri þar en nokkurs
staðar á byggðu bóli – drykkja hefur tvöfaldast
á síðustu tuttugu árum.
Hvað um framtíðina? Nú, svo vill til að
Rússar eyða minna í menntun en flestar þjóðir
heims, minna en Gambía til að mynda, svo ekki
eiga þeir eftir að bæta við sig í menntun og
tækni. Kannski er það skynsamlegt í ljósi þess hve Rúss-
um fækkar. Það eina sem þeir eiga er vopn, já og flugvélar
og sprengjur á við þær sem rignt hefur yfir almenna borg-
ara í Aleppo undanfarnar vikur.
Sem ég skrifa þetta rifast upp fyrir mér að í grein sem ég
las í sumar var Rússlandi líkt við fulla fótboltabullu, ein-
hvern sem orðið hefur undir í lífinu fyrir eigin aulagang, en
er búinn að læra það að ef hann hefur nógu hátt, er nógu
mikill hrotti þá taka allir eftir honum og sumir gera meira
að segja eins og hann vill. Í þessa uppskrift vantar eiginlega
bara setninguna: og lýgur nógu liðugt, til þess að maður sjái
fyrir sér Rússland Pútíns. arnim@mbl.si
Árni
Matthíasson
Pistill
Fulla fótboltabullan
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Framlög ríkissjóðs ítengslum við breytingar álífeyrismálum opinberrastarfsmanna hækka veru-
lega í nýju frumvarpi Bjarna Bene-
diktssonar, fjármála- og efnahags-
ráðherra, um lífeyrisréttindi opin-
berra starfsmanna frá því sem var í
fyrra frumvarpi, sem dagaði uppi á
seinasta þingi.
Fyrsta umræða um frumvarpið
fór fram á Alþingi í gær. Það er
byggt á samkomulagi ríkisins, sveit-
arfélaga og bandalaga opinberra
starfsmanna frá í september sl. en
félög opinberra starfsmanna gagn-
rýndu hins vegar upphaflega frum-
varpið í haust harðlega.
Fram kom í máli Bjarna er
hann mælti fyrir frumvarpinu í gær
að í nýja frumvarpinu sé komið
verulega til móts við þessi sjónarmið
þó að niðurstaða hafi ekki legið fyrir
í viðræðum við stéttarfélögin.
Framlag ríkisins til sérstaks
lífeyrisaukasjóðs er hækkað og rík-
issjóður mun jafnframt greiða fram-
lag til A-deildar Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins til að koma
áfallinni stöðu sjóðsins í jafnvægi.
Ábyrgist óbreytt réttindi
Stéttarfélögin gagnrýndu að í
upphaflega frumvarpinu hafi ein-
göngu verið talað um að virkir
greiðendur til A-deildar LSR ættu
að njóta lífeyrisaukans, sem á að
tryggja að enginn verði fyrir rétt-
indaskerðingu við umsamdar breyt-
ingar í lífeyrismálum. Samkomu-
lagið hafi hins vegar gengið út á að
allir núverandi sjóðsfélagar eigi rétt
á þessum lífeyrisauka. Til að koma
til móts við þessa gagnrýni er nú
tekið fram í frumvarpinu að ríkis-
sjóður ábyrgist óbreytt réttindi líf-
eyrisþega og sjóðfélaga sem orðnir
eru 60 ára fyrir gildistöku nýrra
samþykkta með breyttum lögum.
Nú er eins og fyrr segir áætlað
að ríkið þurfi að leggja A-deildinni
til 106,8 milljarða eingreiðslu (líf-
eyrisauka) til að bæta upp rétt-
indatapið við það að lífeyristöku-
aldur hækkar úr 65 árum í 67, sem
er 9,5 milljarða kr. hækkun frá eldra
frumvarpinu.
Í greinargerð nýja frumvarps-
ins segir að í hækkun kostnaðar-
matsins muni mest um að nú er gert
ráð fyrir að framlag ríkisins tekur
mið af áætluðum tryggingafræðileg-
um forsendum fyrir framtíðar-
skuldbindingum sjóðsins í árslok
2016 í stað þess að miðað var við árs-
lok 2015 í fyrra frumvarpinu. Það er
nú metið á um 106,8 milljarða kr. í
stað 97,3 milljarða áður. „Skýrist
það að mestu af frambúðaráhrifum á
sjóðinn af miklum launahækkunum
sem hafa átt sér stað á árinu 2016 í
samræmi við kjarasamninga opin-
berra starfsmanna. Í annan stað var
staða þegar áfallinna skuldbindinga
jákvæð um 6 [milljarða kr.] miðað
við árslok 2015 samkvæmt fyrra
mati. Staðan hefur nú snúist í að
vera neikvæð sem nemur 10,4 [millj-
örðum kr.] miðað við árslok 2016
samkvæmt endurskoðuðu mati og
er gert ráð fyrir að ríkissjóður leggi
A-deild LSR til framlag sem því
nemur. Þetta stafar að mestu leyti
af því að ávöxtun á eignum LSR hef-
ur verið slök á yfirstandandi ári,
m.a. vegna virðisrýrnunar erlendra
eigna í íslenskum krónum sem leiðir
af mikilli styrkingu á gengi krón-
unnar á árinu samhliða því að vaxta-
kjör á erlendum fjármálamörkuðum
hafa verið í sögulegu lágmarki.
Samanlögð hækkun kostnaðarmats-
ins vegna þessara tveggja þátta
nemur því um 25,9 [milljörðum kr.]
miðað við það frumvarp sem áður
var lagt fram.“
Kostnaðurinn hækk-
ar um 26 milljarða
Morgunblaðið/Golli
Atvinna Jafna á lífeyrisréttindi á öllum vinnumarkaðinum. Heildaráhrif
þess fyrir ríki, sveitarfélög og fyrirtæki þeirra eru um 165 milljarðar.
Kennarasamband Íslands hefur
ekki hvikað frá gagnrýni sinni á
lífeyrisfrumvarpið í yfirlýsingu
sem það sendi frá sér í gær. Þar
er bent á að skynsamlegra sé að
fara þá leið að loka A-deildum
LSR og Brúar (lífeyrissjóðs
starfsmanna sveitarfélaga) fyrir
nýjum sjóðfélögum: Með því sé
hægt að koma í veg fyrir að
gengið sé á réttindi núverandi
sjóðfélaga og inngreiðslur af
svipaðri stærðargráðu og felst í
samkomulaginu kæmu í veg fyr-
ir að hækka þyrfti iðgjöld launa-
greiðenda í sjóðina. Þetta sé
raunhæf leið til þess að ljúka
málinu fyrir áramót. Bjarni
Benediktsson tók ekki undir
þessa hugmynd um lokun deild-
anna sjóðanna við umræður á
Alþingi í gær og sagði að með
því væri kerfinu viðhaldið eins
og það er í dag og fæli það í sér
ákvörðun um að jöfnun lífeyris-
réttindanna ætti sér stað á
næstu áratugum.
Loka A-deild
LSR og Brúar
KÍ ÍTREKAR GAGNRÝNI