Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 22. júlí 2016 Léttar, lágværar og fyrirferðalitlar rafstöðvar fyrir sumarbústaðinn, ferðavagninn og húsbílinn. ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Breski rithöfundurinn J.G. Ball- ard sagði að vísindaskáldskapur ætti ekki bara að fjalla um himin- geima í fjarlægri framtíð. Nóg væri að horfa á alþjóðaflugvelli og far- þegaþotur til að átta sig á að við lif- um nú þegar í fjarstæðukenndum veruleika þar sem hægt er að kom- ast á milli fjarlægra heimshorna á augabragði. Tilfinningin var einhvern veg- inn þannig þegar ég og kærastan mín vorum allt í einu lent í Istan- búl á föstudaginn fyrir viku, eftir að hafa verið á Íslandi. Við höfð- um nánast gleymt því að við þurft- um að millilenda þar á leiðinni til Argentínu. Að minnsta kosti höfð- um við gleymt að kíkja almenni- lega á hversu lengi við yrðum þar. Í ljós kom að við höfðum tuttugu klukkutíma. Auðvitað vissum við af hryðjuverkaárásinni á flugvellin- um í Istanbúl í lok júní en höfðum þó ekki hugsað mikið um þennan næsta áfangastað okkar. Óvænt sigling milli Evrópu og Asíu Við fórum á flugvallarhótelið sem Turkish Airlines skaffaði okkur. Ekki nenntum við að hanga bara þar en það var orðið of seint til að skoða Ægisif (Hagia Sophia). Við kíkjum þá bara einhvern daginn aftur til Istanbúl, hugsuðum við, og skoðum hana þá. Í staðinn skelltum við okkur því í siglingu um Bospórussundið um kvöldið. 50 evrur án áfengis, 70 með. Tókum fyrri kostinn því hinn virtist of dýr. Hverdagsleg túristaákvörðun sem virtist voða- lega mikilvæg í augnablikinu. Stór- skemmtilegt skip með innbyggð- um veitingastað sigldi eftir þessum sögufræga örmjóa sjó og undir bæði Bospórusbrúna og systur- brú hennar, Faith Sultan Mehmet- brúna. Þær brúa Evrópu og Asíu og hafa því margvíslegt táknrænt gildi fyrir bæði Istanbúl og Tyrkland. Einhleypir karlar mega ekki dansa Þetta var fallegt sumarkvöld, heitt var í lofti og kæruleysislegur andi sveif yfir vötnum. Það var auðvelt að tala við Tyrkina á skipinu, þeir voru mjög vinalegir og stríðnir. Við Helgi Hrafn Guðmundsson millilenti í Tyrklandi á leið sinni til Suður-Ameríku. Í staðinn fyrir að hanga á flugvallarhóteli ákvað hann að kíkja niður í miðbæ Ist- anbúl á fallegu sumarkvöldi og sigldi á Bospórussundi. Örfáum klukkustundum síðar var hann, eins og milljónir Tyrkja og margir ferðamenn, staddur í miðju valdaráni og ógnvænlegum aðstæðum. Hann slapp alveg sjálfur en kenndi í brjósti um hina vinalegu tyrknesku þjóð. Á þeim tveimur sól- arhringum sem hann var í Tyrklandi létust 300 manns og 1000 slösuðust. Helgi Hrafn Guðmundsson ritstjorn@frettatiminn.is Þegar ég lenti í miðju valdaráni Símamynd af mér á skipinu á Bospórussundi. Klukkan er um það bil ellefu um kvöld og valdaránið er hafið. Ég veit hins vegar ekkert af því. 22:30 Bospórusbrú og Faith Sultan Mehmet-brú, sem liggur líka yfir Bospórussund, er lokað af hermönnum. Umferð- arteppa myndast á báðum. Ég sigli undir báðar brýr um þetta leyti, dáist að stærð þeirra og sögulegu um- hverfi í kring. Ekkert bendir til annars en að um ósköp venjulegt kvöld sé að ræða. Ég tek myndir af þeim með snjallsímanum mínum en þar sem myrkur hefur skollið á eru þær lélegar og ekkert óvenjulegt sést á þeim. 22:50 Orrustuþotur sjást á lofti yfir höfuðborginni Ankara og herþyrlur í Istanbúl. Ég sé nokkrar herþyrlur af skipinu en pæli ekki í því. 23:00 Binali Yldirim for- sætisráðherra segir þjóðinni að her landsins undirbúi aðgerðir en lofar að stjórnvöld ráði við hann. Magadanssýning hefst á skipinu mínu. 00:15 Herinn hefur brotist inn í höfuðstöðvar TRT, tyrkneska ríkisútvarpsins. Samkvæmt yfirlýsingu, sem er lesin er í beinni útsendingu af fréttamanni, hefur herinn tekið yfir stjórn landsins til að koma böndum á stjórnarskrárbundna röð og reglu í landinu. Recep Tayip Erdogan forseti er sakaður um ólýðræðislega stjórn. Útgöngubanni og herlögum er komið á. Ég er nýkominn í smárútu sem á að flytja mig aftur á hótelið. Bílstjórinn segir ekkert en hækkar í útvarpinu og ég heyri yfirlýsinguna án þess að skilja neitt í henni fyrir utan orðin „demokrasi“ og „militer“. Skyndilega er gífurleg bílaumferð í miðborg Istanbúl. 00:30 Erdogan forseti birtist á skjá snjallsíma sem fréttamaður heldur á í beinni útsendingu á tyrknesku útgáfu CNN. Hann hvetur þjóð sína til að fara út á götur og mótmæla aðgerðum hersins. Hann lofar að þeir sem skipuleggi valdaránið fái makleg málagjöld. Bílstjórinn okkar hefur skutlað öðrum ferða- mönnum á hótel í miðborg Istanbúl, rétt hjá Bospórussundi. Ég og kærastan mín erum ein eftir í smárútunni sem þarf nú að keyra okkur 40 mínútna leið. Útvarpið er stillt á hæsta styrk og við heyrum í Erdogan án þess að vita það. Bílstjórinn reynir að komast að Bospórusbrú en hún er algerlega lokuð með risastórum vörubílum. Við vitum ekki af skriðdrekum á brúnni sjálfri. Sem betur fer kannski. 01:00 Við erum einhvers staðar á krákustígum í Istanbúl. Bílstjórinn kemur að öllum leiðum lokuðum. Okkur er farið að gruna að eitthvað meira sé að en umferðarteppa. Herinn ræðst á þinghúsið í Ankara. 01:30 Bílstjórinn okkar hefur komist langa leið í gegnum Istanbúl þó að hann hafi einungis getað þrætt venjulegar götur borgarinnar. Allar hraðbrautir og stofnleiðir eru lokaðar af hernum. 02:30 Við komumst heim á hótelið. Við heyrum í sprengingum og herþotum. 05:00 Þegar sólin kemur upp á laugardeginum kemur í ljós að valdaránið hefur mistekist. Erdogan hvetur þjóð sína út á götur. Við erum hvött af hótelstarfsmönnum að halda okkur innandyra. Við fljúgum úr landi daginn eftir. 6 og 1/2 tími í sögu Tyrklands tókum myndir á símana okkar af Bospórusbrúnni sem kvöldsólin skein á. Það var kyrrð yfir henni. Bílar mjökuðust yfir hana á með- an við vorum beint undir henni. Föstudagsumferðin í Istanbúl hugs- uðum við. Eftir kvöldmat í skipinu var magadanssýning og tyrkneskt dansiball á þilfarinu. Á miðanum stóð „Please be advised that single men are not allowed to dance“. Það þótti okkur merkilegt en þetta virtist dauður lagabókstafur. Und- ir lokin var tryllt stemning á dans- gólfinu og fjölmargir einhleypir krakkar skemmtu sér vel. Skipið kom í höfn – rétt við Bospórusbrúna – á slaginu 12 á miðnætti. Túristum var smalað í litlar rútur til að skutla þeim á hót- elin sín. Útvarpið stillt í botn Þegar í smárútuna okkar var komið stillti bílstjórinn útvarpið á hæsta styrk. Klukkan var 15 mínútur gengin í eitt. Aðrir túristar í rút- unni voru á hótelum í miðbænum, steinsnar frá höfninni. Þó að um- ferðin hefði þyngst gífurlega var bílstjórinn snöggur að skutla þeim heim. Nú vorum við ein eftir í rút- unni. Hótelið okkar var í um hálf- tíma fjarlægð. Í dúndrandi útvarpinu heyrðum við alvarlegar raddir á tyrknesku en skildum ekki hvað sagt var. Heyrðum bara orðin „demokrasi“ og „militer“ endurtekin í sífellu. Bílstjórinn reyndi að keyra upp að Bospórusbrúnni til að fara yfir hana, en skyndilega voru þar gríðarstórir f lutningabílar sem stöðvuðu alla umferð. Hann keyrði því áfram. Okkur var farið að gruna að maðkur væri í mysunni en gátum alls ekki áttað okkur á hvað væri að gerast. Hræðileg sjón Smárútan brunaði í gegnum Ist- anbúl langt yfir hámarkshraða og stundum á móti umferð. All- ar hraðbrautir og stofnleiðir voru lokaðar og bílstjórinn þurfti því að þræða krákustíga. Við keyrðum í gegnum óteljandi götur og þurft- um margoft að snúa við þegar í ljós kom að þeim var lokað. Tveir og hálfur klukkutími leið áður en við komumst heim á hótelið. Við vor- um heppin að lenda ekki í skotlínu eða keyra í flasið á skriðdrekum á þessari leið. En við vissum það ekki þá. Enda vorum við ekki með net í símunum. Og þó við hefðum verið með net hafði herinn lokað fyrir samfélagsmiðla. Við vissum ekki að við værum í raun í stórhættu. Við heyrðum samt í sprengingum og sáum vopn- aða hermenn á götuhornum.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.