Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 28
móðurkviði á föstudegi. „Það var
ekkert að henni. Hún var fullkom-
in, 53 sentimetrar og rúmlega 15
merkur með fullt af hári og það
fannst heldur ekkert að mér. Við
bíðum eftir lokaniðurstöðum úr
rannsóknum í Bandaríkjunum en
okkur hefur verið sagt að það séu
miklar líkur á því að engin skýring
sé til,“ segir Anna Helga.
Þau hjónin ætla ekki að gefast
upp þótt lífið hafi nú tvívegis gefið
þeim þung högg þegar kemur að
frekari barneignum. „Við bíðum
eftir lokaniðurstöðu en við ætl-
um að reyna aftur. Við ætluðum
alltaf að eignast tvö börn og Karen
Björg átti að vera síðasta púslið í
fjölskyldupúslinu okkar. Ég hélt,
eins og svo margt annað fólk, að
við værum ósnertanleg – að ekk-
ert geti komið fyrir okkur og lífið
hrynur þegar maður kemst að því
að svo er ekki. Forgangsröðunin
snýst algjörlega við. Fjölskyldan
skiptir öllu máli. Hér áður fyrr
langaði mann í húsgögn eða rán-
dýra hönnunarhluti. Núna þakkar
maður fyrir hverja einustu mínútu
sem maður fær með sínum nán-
ustu. Við vitum hvað þær stundir
eru dýrmætar og hversu fljótt öllu
getur verið kippt undan manni,“
segir Anna Helga og Andri bæt-
ir við að Jóhanna Bryndís dóttir
þeirra sé helsta ástæðan fyrir því
að þau hafi ekki bara lagst und-
ir sæng. „Fyrstu dagarnir eftir
þetta fóru í alls konar reddingar
og þá sérstaklega í tengslum við
jarðarför hennar. Við héldum
minningarathöfn, kistulagningu
og jarðarför í sömu athöfninni í
Hafnarfjarðarkapellunni 26. maí.
Það var fallegt athöfn þar sem
Ragnhildur Gröndal og Valdimar
sungu,“ segir Andri og bætir við
að hann hafi óttast hvað myndi
gerast eftir athöfnina þegar ekkert
skipulagt væri í gangi.
Karen er að horfa á okkur
„Orð fá ekki lýst hversu erfitt
var að segja fjögurra ára gamalli
dóttur sinni að litla systir hennar
væri dáin – að litla hjartað hennar
væri hætt að slá. Þessari stelpu
sem hafði óskað sér svo heitt að
fá að verða stóra systir og er svo
stolt af þessu mikla hlutverki.
Mér finnst hún hafa verið ótrú-
lega sterk í gegnum þetta ferli allt
saman. Við fengum mikla hjálp
frá sjúkrahússprestinum honum
Eysteini Orra þegar kom að því
að leyfa henni að kveðja, systur
sína. Hún hafði teiknað mynd fyrir
hana og kyssti hana og knúsaði.
Þetta er litla systir hennar og hún
er með á öllum fjölskyldumyndum
sem hún teiknar. Upp á síðkastið
hefur hún verið uppi í himnunum
á myndunum og stundum segir
hún að Karen Björg sé að horfa
á okkur en bara þegar skýin eru
ekki fyrir. Hún var reið fyrstu dag-
ana en hún hefur staðið sig eins og
hetja. Hún er ástæðan fyrir því að
við erum ekki lögst í kör. Að eiga
svona dásamlega unga dóttur sem
þarf á okkur að halda hefur verið
okkar gæfa. Hún hefur gefið okkur
styrk,“ segir Andri.
Auk þess hefur sterkt fjölskyldu-
og vinanet ásamt frábærum vinnu-
veitanda og vinnufélögum lagt
sitt á vogarskálarnar til að hjálpa
í þeim í gegnum þetta erfiða og
þungbæra ferli. „Það fer enginn í
gegnum þetta ferli einsamall. Ég
bjóst ekki við að sitja 36 ára gamall
á fremsta bekk í jarðarför dóttur
minnar. Þetta er stanslaus söknuð-
ur,“ segir Andri.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@amk.is
Líf hjónanna Önnu Helgu Ragnarsdóttur og Andra Þórs Sigurjónssonar fór á hvolf föstudagskvöldið 13. maí síðastliðinn. Anna
Helga var þá gengin 39 vikur og sex
daga með dóttur þeirra og var áætl-
aður fæðingardagur daginn eftir. Á
föstudeginum upplifði Anna Helga
einhverja ónotatilfinningu. Hún
fann ekki fyrir barninu, sem hafði
verið vel virkt daginn áður, og ákvað
að fara ein í skoðun á Landspítalan-
um svona til að losna við paranoj-
una eins og hún orðar það sjálf. Við
skoðun fannst enginn hjartsláttur og
var barnið úrskurðað látið.
„Ég var með samdráttarverki á
fimmtudeginum og hélt að ég væri
að fara af stað. Daginn eftir fann ég
hins vegar enga hreyfingu og fékk
ónota- og hræðslutilfinningu. Ég
ákvað að fara upp á spítala í skoðun
og sagði við sjálfa mig að það væri
nú bara til að losna við paranojuna.
Andri varð meira segja eftir heima
og svæfði fjögurra ára gamla dóttur
okkar Jóhönnu Bryndísi enda héld-
um við bæði að allt væri í góðu lagi.
Þegar ég kom upp á spítala var ég
send í mónitor til að mæla hjartslátt-
inn hjá barninu. Enginn hjartsláttur
fannst og ekki heldur þegar ég var
látinn snúa mér á alla vegu. Ljós-
móðirinn sagði ekki neitt en ég varð
hrædd þegar ég las í svip hennar.
Ég hringdi í Andra og bað hann um
að koma þar sem það fannst enginn
hjartsláttur hjá barninu. Á sama
tíma kom læknir hlaupandi. Ég var
send í sónar og þegar ég reyndi að
spyrja hvað væri að var mér bara
sagt að liggja kyrr. Síðan kom sér-
fræðingur inn til okkar og þá vissi
ég hvað væri í vændum“ segir Anna
Helga en hún missti fóstur fyrir
tveimur árum – þá komin ellefu vik-
ur á leið. Þá kom einnig sérfræðing-
ur inn til hennar til að færa henni
hin válegu tíðindi.
Fæðingin hluti af sorgarferlinu
Hún segir að um leið og sér-
fræðingurinn hafi labbað inn þá hafi
henni liðið eins og hún væri slegin.
„Andri var á leiðinni þegar hún var
úrskurðuð látin,“ segir Anna Helga
og viðurkennir að þau hafi í raun
flotið í gegnum næstu klukkutíma á
eftir. „Ég vildi fara strax í keisara-
skurð en ég mátti það ekki. Það er
víst hluti af sorgarferlinu að
fæða barnið en mér fannst
það á þeim tíma vera
óyfir stíganlegt að fæða
andvana dóttur í venju-
legri fæðingu.“
Andri skýtur inn í að
þau hafi verið þakklát
fyrir að að fæðingin var
náttúruleg þar sem þau
hefðu annars farið á mis
við svo margt sem þau fengu
að upplifa þessa fáu klukkutíma
sem þau fengu að eyða með dóttur-
inni, sem fékk nafnið Karen Björg,
eftir fæðinguna. Hún kom í heim-
inn klukkan 23.44 á laugardegin-
um 14. maí – sama dag og áætlaður
fæðingardagur hennar var. „Ég fékk
að taka á móti henni, halda á henni
og klæða hana. Við fengum tækifæri
til að skapa ógleymanlegar minn-
ingar með henni Karenu Björgu –
minningar sem enginn getur tekið
frá okkur,“ segir Andri og bætir við
að þessar stundir þeirra hefðu ekki
orðið til nema fyrir tilstilli kæli-
vöggu sem styrktarfélagið Gleym-
-mér-ei gaf Landsspítalanum. Andri
þakkar fyrir sig með því að hlaupa
21 kílómetra í Reykjavíkurmaraþon-
inu til styrktar félaginu og hefur
safnað tæplega 500 þúsund krón-
um. Hann segist hafa verið í betra
formi en hefur engar áhyggjur af því
að hann klári ekki hlaupið.
Engin skýring
Enn sem komið er hefur engin
skýring fundist á því hvað gerð-
ist föstudaginn 13. maí. Hvern-
ig barn, sem var fullkomlega
heilbrigt á fimmtudegi gat dáið í
Stanslaus söknuður
Anna Helga Ragnarsdóttir fæddi andvana dóttur fyrir rúmum tveimur mánuðum. Með hjálp kælivöggu frá samtöku-
num Gleym-mér-ei eignuðust hún og eiginmaður hennar Andri Þór Sigurjónsson ógleymanlegar minningar með dóttur
sinni. Andri Þór hleypur til styrktar samtökunum í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst
Stóra systir Jóhanna Bryndís teiknaði
afskaplega fallega mynd til systur sinnar.
Mynd | Úr einkasafni
Samhent fjölskylda Andri Þór,
Anna Helga og dóttir þeirra
Jóhanna Bryndís hafa gengið
saman í gegnum erfiða tíma eftir
að Karen Björg kom í heiminn og
hvarf jafnskjótt aftur. Mynd | Rut
Mægður Anna Helga heldur hér
á Karenu Björgu skömmu eftir
fæðinguna. Mynd | Úr einkasafni
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016
Fjölskyldan
skiptir öllu
máli. Hér áður fyrr
langaði mann í hús-
gögn eða rándýra
hönnunarhluti. Núna
þakkar maður fyrir
hverja einustu mín-
útu sem maður fær
með sínum nánustu.
Við vitum hvað þær
stundir eru dýrmæt-
ar og hversu fljótt
öllu getur verið kippt
undan manni
Það er
víst hluti af
sorgarferlinu
að
fæða barnið e
n
mér fannst þa
ð á
þeim tíma ver
a
óyfirstíganleg
t.
Hlutastarf
Gæðabakstur / Ömmubakstur auglýsir eftir
morgunhressum einstaklingi í helgar-/
hlutastarf við áfyllingar í verslunum.
Um er að ræða 2x helgar í mánuði (aðra hverja helgi) með
möguleika á fleiri vöktum ef viðkomandi vill meiri vinnu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
Áfyllingar í verslunum
Eftirlit með framstillingum í verslunum
Vinnutími er frá ca. 07:00 - 13:00
Hæfniskröfur:
• Skrifa og tala íslensku
• Bílpróf
• Góð skipulagsfærni
• Stundvísi, reglusemi og sveigjanleiki
• Góð mannleg samskipti
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Snyrtimennska
• Líkamlega hraust/hraustur
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 26. júlí 2016 á netfangið
umsokn@gaedabakstur.is