Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 24
Gott að fara út að leika Á sunnudaginn verður sannkölluð karnivalstemn- ing á barnahátíðinni Kátt á Klambra, Klambratúni, en hátíðin er ætluð börn- um á öllum aldri og fjöl- skyldum þeirra. Fullt af dansi, tónlist, kung fu pöndum, húlla- fjöri og andlitsmálningu. Gott að fara á tónleika Um helgina fara fram Bræðslu- tónleikarnir á Borgarfirði eystri. Nóg verður um að vera því tónleikar verða fjölmargir og fjölbreyttir, auk myndlist- arsýninga og fjölbreytts matar. Gott að kaupa myndlist Myndlistarmarkaður nema við Lista- háskóla Íslands verður haldinn á morgun á Kex og byrjar snemma. Nemendur selja verk sín, skólaverkefni og verkefni sem hafa verið gerð utan skólans. Ásamt myndlist verða nemendur líka með föt til sölu. GOTT UM HELGINA ÓTAKMARKAÐUR LJÓSLEIÐARI ÓTAKMARKAÐUR FARSÍMI + 4GB WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400 4.5X9MM.indd 1 2.6.2016 13:04:43 Fólkið mælir með… Helga Lind Útivist: Nú er ég langt frá því að vera annálaður útivist- argarpur – en á laugardaginn mæli ég með því að fólk gangi með okkur Druslugönguna. Þetta eru 2 km frá Hallgrími og síðan til baka. Done deal. Bók: Story about the Balkans - Slavenka Drakulic. Mikilvæg, nauðsynleg og fáránlega sterk bók. Fléttir ofan af rosalegu of- beldi gegn konum í Bosníustríðinu, stríð sem ennþá er of lítið talað um. Matur: Portobello sveppur. Alltaf. Þorbjörg Roach Útivist: Ég myndi segja að keyra hring inn og gista í tjaldi. Það er eitt- hvað sem mað- ur gerði bara þegar maður var lítill. Bókin: Er búin að vera á ferða- lagi og þar sem ég er ekki með bílpróf er ég búin að lesa uppúr einni bók fyrir bilstjórann: Hvern- ig ég kynntist fiskunum eftir Ota Pavel. Þetta eru einskon- ar æskuminningar höfundarins frá Tékkóslóvakíu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og fyrir það. Matur: Ég segi rjómalagað pasta með steiktu brokkolí, sveppum og parmesanosti, One pan Alfredo pasta. Það á að vera kjúklingur í því en ég set grænmeti í staðinn. Aron Mola Útivist: Þórsmörk. Þar er hægt að ganga út um allt. Þú ert með tvo jökla, ár, skóg og sand. Allt sem íslensk náttúra getur boðið upp á. Bók: Halli Hrekkjusvín og hvern- ig hann fær broskall í hjartað. Bókin fjallar um Halla og hvern- ig hann stríddi öllum krökkunum á leikskólanum. En síðan kemur ein stelpa á leikskólann og segir öllum krökkunum að segja ,,só” sem krakkarnir gera og Halli fær broskall í hjartað og hættir að stríða þeim. Matur: Penne alla vodka, klikkaður pastaréttur eldaður uppúr vodka, tómatpúrru og einhverju svona nice. Kærastan mín kynnti mig fyrir þessu og við eldum þetta oft.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.