Fréttatíminn - 22.07.2016, Blaðsíða 40
…heilsa
Teygjanleiki í vöðva. Til að vernda sinina þarf kálfavöðvinn að vera mjúkur, og nauðynlegt
að teygja vel á vöðvanum svo hann stífni ekki. Einnig er gott að nudda vöðvann, en það
getur hlaupari gert sjálfur með höndunum eða rúllu.
Ný meðferð sem virkar hratt og örugglega. Stefán H. Stefánsson sjúkraþjálfari hjá Sjúkra-
þjálfun Íslands beitir þrýstinuddsmeðferð á vöðva til að leysa hásinavandamál. Meðferðina
þróaði hann sjálfur og er sú fyrsta í heiminum sem tekur á sinavanda með þessum hætti.
Þrýstingur á vöðva. Með rannsókn sinni
hefur Stefán komist að því að með því
að meðhöndla kálfann er hægt að lækna
hásinina. Meðferðin sem hann hefur þróað í
kjölfarið felst í því að beita vöðvann miklum
þrýstingi í stuttan tíma.
Sinin er
bara kaðall,
sem tengir
kálvavöðvann
við beinið.
Unnið í samstarfi við
sjúkraþjálfun Íslands
Stefán H. Stefánsson sjúkraþjálfari þróaði með-ferðina sem er sú fyrsta sem sýnir fram á að hægt
sé að lækna hásinavandamál með
því að meðhöndla kálfavöðva.
Stefán Hafþór Stefánsson
sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun
Íslands hefur þróað nýja meðferð
við hásinavandamálum sem hann
byggir á rannsókn sem hann
vinnur að í meistaranámi
sínu og kynnti nýverið
á ESSKA ráðstefn-
unni. Rannsóknin
er sú fyrsta sem
sýnir fram á að
með því að með-
höndla kálfann
er hægt að lækna
hásinina. Hásina-
vandamál eru mjög
algeng hjá hlaupur-
um og lýsa sér þannig að
sinin bólgnar og það kemur kúla
á hana sem veldur töluverðum
eymslum.
„Meðferð sem ég hef þróað er
þrýstinudd sem virkar best. Ég
nota hnéð og leggst á kálfann
og held þrýstingi í 30 til 45 sek.
Þetta er ógeðslega sárt en svo
finnur fólk bara allt einu hvernig
verkurinn fer að leka í burtu. Eins
nota ég þumalinn og finn strengi
Fljótvirk meðferð sem leysir
hásinavanda hlaupara
Ný hraðvirk og einföld meðferð getur læknað bólgnar og aumar hásinar sem er algengt vandamál hjá hlaupurum.
og held þrýstingi 30 til 45 sek-
úndur. Áhrifin koma strax fram og
fólk finnur léttinn um leið og það
stendur upp af bekknum.“ Álag er
helsta ástæða hásinavandamála
og eru hlauparar og þeir sem
stunda hlaup- og hoppíþróttir
eins og t.d. fótbolta eða körfu-
bolta í stærsta áhættuhóp-
num. Aðrir áhættuþættir eru t.d.
skóbúnaður, undirlag, lag fótar-
ins, aldur, erfðir og ákveðin lyf.
„Sinin er bara kaðall, sem tengir
kálvavöðvann við beinið, með
lítinn teygjanleika. Allur teygj-
anleiki sem er í kerfinu
kemur frá vöðvanum og
ef kálfavöðvinn er stíf-
ur þá er þetta eins og
að fara í teygjustökk
með kaðal. Ef við ætl-
um að vernda og hlífa
sininni verðum við
að hafa kálfavöðvann
mjúkan. Þegar þú hleyp-
ur færðu högg í hverju
skrefi. Kálfavöðvinn og sinin
sem hann tengist, eiga að dempa
höggið, en ef allt er beinstíft þá
magnast höggið upp. Vöðvinn
stýrir dempun og um leið og hann
fer að stífna af álagi þá kippir
fastar í sinina,“ útskýrir Stefán.
Til að halda kálfanum mjúkum
þarf að teygja hann og nudda vel.
Hlauparinn getur nuddað kálfann
sjálfur með höndunum eða með
rúllu.
„Sin er langan tíma að jafna sig
og til þess þarf að gefa henni frið.
Það er gert með því að létta á
vöðvanum og halda honum mjúk-
um.“ Rannsóknir Stefáns sýndu
með ófrávíkjanlegum hætti að sú
meðferð sem hann hefur þróað
er sú sem næst einna mestur ár-
angur með á sem minnstum tíma,
til að mýkja vöðvann og létta á
sininni.
Samstarfsaðilar
Reykjavíkurmaraþonsins:
Í samstarfi við
LAUGARDALSHÖLL 18. OG 19. ÁGÚST 2016
S T Ó R S Ý N I N G I N
• Skemmtilegar uppákomur og fyrirlestrar.
• Yfir 50 fyrirtæki með allt það heitasta fyrir
hlauparann og alla þá sem stunda hreyfingu.
• Vegleg tilboð og afslættir.
• Komdu til að smakka, snerta, sjá og heyra!
A l l A r u p p l ý S i n g A r : w w w . f i t r u n e x p o . i S - / f i t r u n e x p o /