Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 22.07.2016, Síða 18

Fréttatíminn - 22.07.2016, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 22. júlí 2016 Frystiborðspopp Heidatrubador er listamannsnafn Heiðu Eiríksdóttur sem gerir jafnt lágstemmt þjóðlaga-kántrí-popp og framúrstefnulega tilrauna-hljóða- tónlist. Heiða heldur tónleika í kvöld vegna þess að það vantar alla hættu í líf fólks sem stendur frammi fyrir erfiðustu ákvörðunum sín- um að kvöldi dags við frystiborðið í stórmarkaðinum. Út er komin kassettan Third-Eye Slide-Show með tilraunahlið Heidatrubador. Hvar? Mengi Hvenær? Í kvöld kl. 21 Hvað kostar? 2000 kr. GOTT UM HELGINA HAPPY FRIDAY SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is GASTROPUB Allir kokteilar á hálfvirði á föstudögum frá 23–01 Af ljósi Sýningin Of Light í leikstjórn Samönthy Shay verður frumsýnd í dag. Hugmyndin að verkinu kviknaði á Íslandi en andstæður ljóss og myrkurs hér á landi sendu listakonuna í könnunarleiðangur um hvernig þessar andstæður birt- ast í manneskjum. Tónlistarkonan KÁRYYN semur raftónlist og kór- verk fyrir verkið, Paul Evans sér um hljóðhönnun og útsetningu og Nini Julia Band fléttar hefðbunda tónlist frá Kúrdistan, Georgíu og Sardínu við verkið. Hvar? Tjarnarbíó Hvenær? Í kvöld kl. 20.30 Hvað kostar? 3.900 kr. Nýdönsk á Græna hattinum Hljómsveitin Nýdönsk blæs til tónleika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Ekki er hægt að búast við öðru en að hljómsveitin taki sína helstu slagara og fólk muni fljúga um loftin í sæluvímu við tónlistina dunandi. Hvar? Græni hatturinn Hvenær? Í kvöld kl. 22 Föstudagsforleikur Bræðslunnar Forleikurinn að Bræðsl- unni í Fjarðarborg á Borgarfirði eystri fer fram í kvöld. Fram koma MurM- ur, Úlfur úlfur og Jónas Sigurðsson ásamt Ritvélum framtíðarinn- ar. Tvennir tónleikar verða í Fjarðarborg þetta kvöld. Á þeim fyrri verða sæti og borð en ekki á þeim seinni. Hvar? Fjarðarborg, Borgarfirði eystri Hvenær? Í kvöld kl. 20 og 23.30 Hvað kostar? 3900 kr. Rokkveisla á Gauknum Það verður sannkölluð rokkveisla á Gauknum í kvöld þar sem fjórar stórgóðar rokkhljómsveitir munu stíga á stokk svo þakið mun rifna af húsinu. Um er að ræða Lucy in Blue, Churchhouse Creepers, Ottoman og The Roulette. Hvar? Gaukurinn Hvenær? Í kvöld kl. 20 Kjarvalsleiðsögn Í dag fer fram leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum. Um er að ræða sýningu Jóhannesar S. Kjarval: Hugur og heimur. Á sýningunni gefst gott tækifæri til að kynn- ast mörgum lykilverkum frá ferli listamannsins og fá innsýn í þau meginstef sem voru uppistaðan í lífsverki hans, annars vegar landið í öllum sínum fjölbreytileika og hins vegar það líf og þær tákn- myndir sem Kjarval skynjaði í landinu, það sem hugurinn nemur ekki síður en það sem augað sér. Hvar? Á Kjarvalsstöðum Hvenær? Í dag kl. 14 Clueless í Paradís Alicia Silverstone er í ógleyman- legu hlutverki sem dekurdrósin Cher. Myndin fjallar um hóp forríkra og ofdekraðra krakka í Beverly Hills þar sem allt snýst um vinsældir og að falla inn í hópinn. Myndin er lauslega byggð á skáld- sögunni Emma eftir Jane Austen. Hvar? Bíó Paradís Hvenær? Í kvöld kl. 20 Hvað kostar? 1400 Nýtt myndband Glowie Ungstirnið Glowie efnir til frumsýn- ingarpartýs í tilefni af nýju myndbandi við lagið No Lie. Í tilkynn- ingu segir: Ég fékk hugmynd fyrir myndband þegar vinnslan á laginu „No Lie“ var í gangi, hugmyndin var að gera myndband sem sýnir stílinn minn, hvað mér finnst gaman að gera og sýna bara nákvæmlega hver ég er, enda verður þetta myndband notað til að kynna mig fyrir stærri markaðinum. Hvar? Kex Hostel Hvenær? Í dag kl. 21 Prins Póló & Dj flugvél og geimskip Rás 2 og Húrra efna til sumar- tónleika í dag. Kosmískar lendur verða kannaðar með dj flugvél og geimskip og Prins Póló fjallar um klósettferðir & bílastæðavanda nú- tímamannsins. Hvar? Húrra Hvenær? Í dag kl. 21 Hvað kostar? 2000 kr.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.