Fréttatíminn - 22.07.2016, Qupperneq 30
Um fimmtán þúsund manns hafa tekið þátt í maraþoninu undanfar-in ár og búast má við svipuðum fjölda í ár.
Við fengum Sigurð Sölva Svavars-
son, sjúkraþjálfara hjá Styrk sjúkra-
þjálfun og maximummobility.is, til
að til að fara yfir það hverju þarf
að huga að til að líkaminn sé sem
best undirbúinn undir það álag
sem fylgir löngum hlaupum.
„Það er æðislegt að svífa áfram
án þess að hugsa um nokkuð ann-
að þegar maður er að hlaupa en
hvað manni líður vel og hvað mað-
ur er á góðum tíma en því miður
kannast flestir sem hlaupa reglu-
lega eða æfa hlaup við einhverja
stoðkerfisverki endrum og sinnum.
Allt frá vægum álagaseinkennum
sem hverfa af sjálfu sér yfir í hvim-
leit vandamál sem draga bæði úr
árangri og ánægju við hlaup,“ segir
Sigurður Sölvi og bætir við að al-
gengast sé að þessi einkenni komi
frá hnjám, hásinum eða fótum.
75% álagsmeiðsli
Sigurður Sölvi seg-
ir að sökum þess
hversu einhæft álag
fylgir langhlaupi sé
hægt að segja að allt
að 75% allra hlaupa-
meiðsla séu álagasein-
kenni. „Það undirstrik-
ar nauðsyn þess að meta
vandamálið og vinna í að laga
það frekar en að þurfa að brúsa af
hitakremi og lager af hinum og
þessum stuðningsspelkum. Orsök
einkenna er yfirleitt ekki að finna
þar sem verkurinn er heldur er
hægt að finna orsök hans annars
staðar í hreyfikerfinu. Slakir kvið-
vöðvar, stirðir ökklar og rassvöðv-
ar sem vinna á 50 prósent krafti
eru meðal þess sem þarf að lagfæra
til þess að draga úr álagseikennum
í mjóbaki og hnjám,“ segir Sigurð-
ur Sölvi.
„Runners knee“
Að sögn Sigurðar Sölva hafa sum-
ir ákveðinn vegg sem þeir lenda
á eftir ákveðinn fjölda kílómetra.
„Þar sem einstaklingur getur
hlaupið 10 kílómetra en þarf að
stoppa þar til þess að forðast verki
í mjóbaki eða utanvert í hnénu eða
það sem kallað er „runners knee“.
Þegar líkaminn þreytist hreyfum
við okkur ekki jafn vel og í byrj-
un æfingar. Eftir ákveðinn fjölda
kílómetra koma oft veikleik-
ar í ljós. „Runners knee“
er algengt vandamál
og árstíðarbundið
þar sem einkenn-
um virðist fjölga
töluvert f yrstu
vikurnar í ágúst
á hverju ári sem
eru síðustu vikurn-
ar fyrir Reykjavíkur-
maraþonið. Runners
knee einkenni má oftast
rekja til slakrar virkni rassvöðva
sem taka ekki nægjanlegan þátt
í hreyfingunni. Við minnkaða
virkni þeirra fer lærleggurinn að
leita innávið og sumir kannast við
að hnén fari að slást saman. Við
þetta breytist álagið í hverju skrefi
og álagaseinkennin hlaðast upp
í hnénu,“ segir Sigurður Sölvi og
áréttar að lítið geri að skipta um
hlaupaskó eða fá sér innlegg þar
sem ástigið sé ekki vandamál held-
ur sé það líkamlegs eðlis.
Styrkur og samhæfing
Sigurður Sölvi segir að fagaðil-
ar sem vinna með hlaupurum og
öðru íþróttafólki séu sammála um
að gæði hreyfingar skipti mikið
meira máli heldur en magn. „Þó
að ekki sé til einn réttur hlaupa-
stíll þá eru þekkt algeng hreyfi-
vandamál sem setja aukið álag á
líkamann. Hér þurfa styrkur og
samhæfing að koma saman til þess
að ná árangri. Með þetta í huga
skal leggja áherslu á að hlaupa án
verkja og einkenna frá stoðkerfinu
og vinna í veikleikum sínum með
aukinni styrktarþjálfun, liðleika-
æfingum eða æfingum þar sem
unnið er með hreyfistjórn til þess
að bæta gæði hreyfinga. Þannig
má bæta tímann sinn og auka við
vegalengdir án þess að klakapoki
og bólgueyðandi séu fastur liður
eftir æfingar. Það er góð leið til að
viðhalda vandamáli og auka á það
með tímanum.“
Mikilvægt að vinna
í líkamlegum veikleikum
Reykjavíkurmaraþonið, stærsta hlaup sumarsins, er handan við hornið og allir sem ætla að hlaupa
það eru á lokametrunum í undirbúningnum.
Hvert áttu að fara
ef einkenni gera
vart við sig?
Ef þú kannast við þessi einkenni
og vilt ná betri árangri borgar
sig að leita til sjúkraþjálfara. Þeir
eru sérfræðingar í hreyfingum
og stoðkerfisvandamálum. Auð-
velt er að finna sjúkraþjálfara við
hæfi með því að fara inn á vef
Félags sjúkraþjálfara physio.is
og smella þar á “Ertu að leita að
sjúkraþjálfara?”
Gæði frekar en magn Sigurður Sölvi segir mikilvægt að hlaupa án verkja og passa upp
á álagið.
Með þetta í huga skal leggja
áherslu á að hlaupa án verkja
og einkenna frá stoðkerfinu og
vinna í veikleikum sínum með auk-
inni styrktarþjálfun, liðleikaæfing-
um eða æfingum þar sem unnið er
með hreyfistjórn til þess að bæta
gæði hreyfinga.
…maraþon 6 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016
Runners
knee
Þegar einstak
lingur
getur hlaupið
10 km en
þarf að stoppa
þar til
að forðast ver
ki.
Þú ferð lengra með
SagaPro
Vinsæl vara við tíðum þvaglátum
* Gildir til 11. ágúst.
20%
afsláttur*
í öllum helstu
apótekum og heilsu-
vöruverslunum.