Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 23
ið en það er eiginlega ekki
hægt að svíkja sjálfa sig og
aðra til lengdar. Mér fannst
maður þurfa að hafa svolít-
inn kjark til að stíga þetta
skref. En sem betur fer á ég
góða fjölskyldu og vini sem
hafa stutt mig eindregið alla
tíð.“
Sólveig var ekki búsett á
Íslandi þegar hún kom út
úr skápnum fyrir sinni fjöl-
skyldu og vinum og segir það
kannski hafa gert henni auð-
veldra fyrir. „Þetta gekk allt
mjög vel. Mamma tók þessu
nokkuð vel.“
Hvorug þeirra segist hafa
upplifað mikla fordóma vegna
kynhneigðar sinnar, þó vissu-
lega hafi þær fengið að heyra
einhverjar athugasemdir á
árum áður. „Auðvitað vitum
við að margir hafa skoðanir á
hinum og þessum hlutum, en
það er bara í góðu lagi,“ segir Anna
Sigríður. „En svo þekkir maður auð-
vitað fólk af okkar kynslóð sem hef-
ur verið lamið og barið úti á götu.
Það voru nokkrir kunningjar okkar
sem lentu í því,“ segir Sólveig.
Barði í sig kjark
Þær ætla að sjálfsögðu mæta í gleði-
gönguna í dag, laugardag, og Anna
Sigríður rifjar upp fyrstu gönguna
sem hún fór í árið 1993. „Maður
þurfti að berja í sig kjark í marga
daga áður en maður fór af stað. Þá
vorum við kannski tuttugu manns
sem gengum niður Laugaveginn.“
Að gangan yrði jafn stór viðburð-
ur eins og hún hefur orðið á síðustu
árum hvarflaði ekki að þeim þegar
þær stóðu skjálfandi á beinunum
á Laugaveginum fyrir um tuttugu
árum. Þær segja það hafa verið dá-
samlegt að fylgjast með göngunni
vaxa og dafna og verða að þessari
miklu fjölskylduhátíð. „Það sem slær
niður í huga minn núna er að það
hljóti að vera ótrúlega hjartaverm-
andi stund fyrir foreldra að geta
horft á þessa göngu og fundið fyrir
þessari viðurkenningu samfélagsins.
Af því foreldrarnir vilja jú börnunum
sínum allt það besta. Þetta er stað-
festing á því að þetta sé bara eðlilegt
og gott,“ segir Anna Sigríður einlæg.
Íhuguðu barneignir
Þær segja Ísland hafa náð mjög
góðum stað hvað réttindi hinsegin
fólks varðar og nú sé baráttan far-
in að teygja sig meira út fyrir land-
steinana. Til dæmis í tengslum við
ættleiðingar samkynhneigðra sem
stranda á því að ættleiðingsamtök
úti í heimi vilja ekki leyfa samkyn-
hneigðum pörum að ættleiða. „Það
hefði ekki verið neitt mál fyrir okk-
ur að ættleiða barn ef við hefðum
ekki verið giftar. Það hefði verið
auðveldara fyrir okkur að skilja, ætt-
leiða, og giftast svo aftur,“ segir Sól-
veig, en þær spáðu aðeins barneign-
ir hér á árum áður. „Það hefði alveg
getað komið til sögunnar en við vor-
um kannski ekki alveg á réttum tíma.
Ef við hefðum verið tíu árum yngri,
þá hefði þetta kannski frekar gerst,“
segir Sólveig. „En annars er ég rosa-
lega ánægð með hvernig þetta hefur
verið hjá okkur,“ segir Anna Sigríður.
„Ef við hefðum átt börn þá hefðum
við þurft að gera hlutina öðruvísi,“
bætir hún við og tekur fram að hún
hafi fengið tækifæri til að umgangast
mörg frábær börn í gegnum tíðina,
sem hafi gefið henni mikið.
Anna Sigríður og Sólveig deila
fjölda áhugamála og eru duglegar að
ferðast saman. Það fer heldur ekki
á milli mála að þær eru mjög sam-
heldnar. „Þó við séum ólíkar að
mörgu leyti þá eigum við ótrúlega
margt sameiginlegt. Það er kannski
það sem heldur okkur saman. Okkur
hefur verið lýst þannig að ég sé eins
og jeppi og þú eins og sportbíll. Það
er kannski ágætis blanda,“ segir Sól-
veig og hlær.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þann 27. júní árið 1996 vannst mikill sigur í réttindabaráttu samkyn-hneigðra hér á landi, og raun í heiminum öll-
um, þegar lög um staðfesta sam-
vist gengu í gildi. Fjögur samkyn-
hneigð pör voru gefin saman hjá
sýslumanninum í Reykjavík þennan
dag og blásið var til mikillar hátíðar
í Borgarleikhúsinu. Þær Anna Sig-
ríður Sigurjónsdóttir myndlistar-
maður og Sólveig M. Jónsdóttir leið-
sögumaður voru eitt þessara para.
Þá voru þær búnar að vera saman í
6 ár. Nú eru árin orðin 26, þar af 20
í staðfestri samvist.
„Ég bað Sólveigar“
„Við vorum eiginlega búnar að
ákveða það að grípa fyrsta
tækifæri sem gæfist til að láta
gefa okkur saman,“ segir Anna
Sigríður, en Sólveig grípur
kímin fram í fyrir henni, þar
sem við sitjum á kaffihúsi í
miðbænum. „Þú varst búin að
ákveða það, en ég vildi bíða
aðeins. Leyfa þessu að ganga í
gegn.“ Það var semsagt Anna
Sigríður sem átti frumkvæð-
ið. „Já, ég bað Sólveigar,“ segir
hún örlítið feimnislega og þær
brosa báðar. Ennþá eins og
ástfangnir unglingar eftir 20
ára hjónaband. „Mér fannst
svo mikilvægt að gera þetta
sama dag og lögin gengu gildi.
Ég var búin að bíða eftir þessu
svo lengi í mínu hjarta,“ bætir
Anna Sigríður við.
„Ég var hins vegar svolítið
smeyk við þennan dag, en lét
til leiðast. Og þegar það spurð-
ist út að við værum að hugsa
um þennan dag þá var hringt í
okkur frá Samtökunum ‘78 og
við beðnar um að vera í fram-
línunni,“ segir Sólveig. Þær
slógu til og sjá svo sannarlega
ekki eftir að hafa látið gefa sig
saman fyrir opnum tjöldum.
„Þetta var svo jákvætt og við
fengum mjög góð viðbrögð. Það var
eins og gleðibylgja væri í loftinu.
Þannig upplifðum við það allavega,“
segir Anna Sigríður.
„Ókunnugt fólk óskaði okkur til
hamingju á götum úti og litlir krakk-
ar hlupu eftir okkur og óskuðu okk-
ur til hamingju. Það var alveg frá-
bært,“ segir Sólveig. „Þetta var ekki
bara í fréttum hér á landi heldur
um allan heim og svona lagað hefur
mikil áhrif,“ bætir hún við.
Mikil frelsistilfinning
Þetta var fallegur dagur sem þær
áttu saman fyrir tuttugu árum.
Og þrátt fyrir fjölmiðlaathyglina
sveif rómantíkin yfir vötnum. „Við
tjölduðum öllu okkar besta,“ segir
Anna Sigríður og brosir. „Svo héld-
um við litla veislu heima hjá foreldr-
um mínum og fórum í brúðkaups-
ferð, reyndar ári síðar. Við fórum í
fjögurra daga gönguferð frá Hval-
firði að Laugarvatni og lentum í
miklum ævintýrum, þau fraus til
dæmis og snjóaði.“
Þær segja að eftir að lögin voru
samþykkt þá hafi allt orðið miklu
einfaldara – það var formlega búið
að viðurkenna rétt þeirra til að vera
saman. „Frelsistilfinningin var því-
líkt mikil,“ segir Sólveig. En fyr-
ir utan frelsið öðluðust þær sömu
réttindi og hjón af gagnstæðu kyni.
Það breytti öllu. „Ég var orðin kon-
an hennar og þar með nánasti að-
standandi. Það skiptir miklu máli.
Til dæmis ef hún myndi slasast
alvarlega og lenda á spítala, þá fengi
ég ekki að hitta hana nema af því
hún er konan mín. Svo auðvitað í
sambandi við erfðamál við fráfall
og slíkt. Hér áður fyrr var hægt að
hrekja manneskju af heimili sínu við
fráfall hins aðilans, þó þeir einstak-
lingar hefðu búið saman í mörg ár,“
segir Sólveig.
„Ég hafði til dæmis nokkrum sinn-
um sent beiðni til Hagstofunnar um
að skrá okkur í sambúð en því var
alltaf hafnað,“ segir Anna Sigríður til
að benda á hve réttleysið var mikið.
Heppnar með sitt fólk
Anna Sigríður er 55 ára og Sól-
veig 54, en þær komu báðar út úr
skápnum fyrir fjölskyldu og vin-
um rétt rúmlega tvítugar. Á þeim
tíma var umræðan í samfélaginu
svo sannarlega ekki jafn jákvæð
og opin og hún er í dag, en báðar
eru þær heppnar með fólkið kring-
um sig og fréttunum var vel tekið í
báðum fjölskyldum. Anna Sigríður
segir þetta þó hafa verið erfitt ferli
fyrir sig. „Þetta var töluvert átak.
Ég reyndi allt til að falla inn í norm-
„Það var eins og gleðibylgja
væri í loftinu“
Anna Sigríður og Sólveig voru gefnar saman hjá sýslumanninum í Reykjavík sama dag og lög um staðfesta samvist
tóku gildi. Síðan eru liðin tuttugu ár og þær eru enn í hamingjusömu hjónabandi. Ókunnugt fólk – fullorðnir og börn –
stoppaði þær úti á götu á sínum tíma og óskaði þeim til hamingju. Gleðin var allsráðandi.
Stór dagur Anna Sigríður og Sólveig sjá ekki eftir því að hafa
verið í framlínunni þegar fyrstu pörin voru gefin saman í stað-
festa samvist. Þær segja mikla gleði hafa legið í loftinu.
Hátíð Eftir að pörin höfðu verið gefin saman var blásið til
mikillar hátíðar í Borgarleikhúsinu. Vigdís Finnbogadóttir,
þáverandi forseti, óskar hér Önnu og Sólveigu til hamingju.
20 ára hjónaband
Sólveig segir að þeim
Önnu sé stundum lýst
sem jeppa og sportbíl
– það sé líklega ágætis
blanda. Mynd | Rut
Ókunnugt fólk
óskaði okkur
til hamingju á götum
úti og litlir krakkar
hlupu eftir okkur
og óskuðu okkur til
hamingju. Það var
alveg frábært.
…xxx3 | amk… LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016