Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 24
Katrín Bessadóttir
katrin@frettatiminn.is
„Við ætlum að vera á Arnarhóli í
dag á stóra sviðinu og minnast þess
að það eru 3 ár síðan Gylfi vinur
okkar Ægisson ætlaði að kæra okk-
ur fyrir leggangaáróður – og spila
auðvitað lagið sem reitti hann
svona mikið til reiði,“ segir Sig-
ríður Eir Zophoníasardóttir, eða
Sigga sem skipar hljómsveitina Evu
ásamt Völu Höskuldsdóttur. Margir
muna eftir fjaðrafokinu í kringum
Hinsegin hátíðina 2013 þegar Gylfi
Ægisson gagnrýndi gleðigönguna
og ekki síst frammistöðu Hljóm-
sveitarinnar Evu þegar þær stjórn-
uðu hátíðinni á Arnarhóli og hót-
aði þeim lögsókn fyrir fyrrnefndan
leggangaáróður. „Hann var voða
reiður yfir laginu „Hver er kall-
inn?“ af því það kemur brú í laginu
þar sem við syngjum „hver vill ekki
tvö leg, tvö leg“. Þetta er líklega
besta kæruefni sem ég veit um.
Við tölum alltaf um þetta þegar við
spilum lagið,“ segir Sigga en þær
Vala bera þó engan kala til Gylfa
fyrir vikið og kæran varð aldrei að
veruleika.
Hinsegin sögur og
baðstofustemning
Á sunnudagskvöldið heldur Eva
síðan tónleika á Kiki sem er orðinn
er árviss viðburður. „Það er orðin
hefð hjá okkur að vera með tón-
leika á Kiki á hinsegin dögum og
reifa síðasta árið. Við ætlum bara
að hafa baðstofustemningu, erum
vanar því að spjalla svolítið milli
laga, förum aðeins inn á hinsegin
sögur og spilum lögin okkar. Venju-
lega höfum við verið í upptaktin-
um fyrir Hinsegin daga og spilað á
miðvikudeginum en núna erum við
á sunnudeginum að loka hátíðinni
áður en fólk fer inn í venjulega lífið
sitt aftur.“
Sigga segir þær Völu fara um víð-
an völl þegar þær spjalla milli laga
en í ár er þeim hugleikin umræð-
an um hinsegin málefni. „Við vilj-
um hvetja til þess að við höldum
spilunum á lofti allan ársins hring.
Hinsegin dagar eru alveg geggjað-
ir og allskonar málefni fljúga upp í
loftið á þessum tíma. Ég held að við
þurfum að vera duglegri að halda
hlutunum á lofti, alltaf,“ segir Sigga
en bætir við að vissulega sé hópur
fólks sem er ötull allt árið við að
halda hinsegin umræðu gangandi.
Lykillinn að tala við börnin
Í umræðunni um hinsegin fólk er
oft mikil áhersla lögð á ungt fólk
sem er að stíga fyrstu skrefin út úr
skápnum og eldra fólk sem man
tímana tvenna í hinsegin mál-
um. Sigga segir þetta góðra gjalda
vert en þó verði að fara í rótina
og eyða fordómum áður en þeir
byrja að skemma út frá sér. „Ég
held að lykillinn að þessu öllu sé
að tala við börnin okkar. Verandi
orðin hinsegin foreldri ég finn
fyrir svo geðveikislega mörgum
veggjum sem við erum að rekast
á, strax,“ segir Sigga en hún á 18
mánaða gamla dóttur með unnu-
stu sinni, Tótlu Sæmundsdóttur.
„Núna erum við tvær mæður og
við höfum alveg fengið að heyra
„æ hún er nú svolítið mikið í bláu“,
svona eins og það sé verið að segja
að við megum alveg vera hinsegin
foreldrar og hinsegin fjölskylda en
við ættum nú kannski ekki að vera
að búa til lesbíur úr börnunum
okkar. Þetta eru skilaboðin þó að
þau séu kannski ómeðvituð,“ segir
Sigga sem segist einnig strax taka
eftir því í kringum sig að börn eru
sett í „heterónormatívt“ eða gagn-
kynhneigt samhengi, litlar stelp-
ur spurðar hvort þær séu skotnar
í strákum og þar fram eftir götun-
um.
Hljómsveitin Eva var stofnuð fyr-
ir um 5 árum og hefur hún kom-
ið jafnoft fram á hinsegin dögum.
„Mér finnst ótrúlega mikilvægt að
taka virkan þátt og ég fer alltaf í ein-
hvern meyran gír. Fer að hugsa um
fólkið sem er búið að labba á und-
an manni og þá sem koma á eftir
manni og hvað maður getur gert.“
Tónleikar Evu eru á Kiki á sunnu-
dagskvöld og hefjast klukkan 21.
Þriggja ára afmæli leggangaáróðursins
Baðstofustemning og hinsegin sögur – hver vill ekki tvö leg?
Vala og Sigga í Hljómsveitinni Evu verða á Arnarhóli í dag að spila lagið sem reitti Gylfa Ægisson til reiði og á Kiki annað kvöld með
baðstofustemningu og hinsegin sögur. Mynd | Rut
Við fögnum fjölbreytileikanum
Til hamingju
með daginn
…reykjavík pride 4 | amk… LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2016
Ég held að lyk-
illinn að þessu
öllu sé að tala við
börnin okkar. Ver-
andi orðin hinsegin
foreldri ég finn fyrir
svo geðveikislega
mörgum veggjum
sem við erum að
rekast á, strax.