Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Það skiptir miklu máli að vera með skýra mynd á því sem þú vilt gera, eða vera. Góður undirbún-ingur á karakter og því
andliti sem þú vilt sýna skilar sér
margfalt. Einnig skiptir máli að
líða þægilega og vera öruggur,“
segir Gógó, dragdrottning Íslands
árið 2015. Gógó er innblásin frá
bandarískri húsmóður frá sjötta
og sjöunda áratugnum. „Brosið er
hennar styrkleiki því er áherslan
sett á varirnar og hvernig má gera
því hátt undir höfði. Það er mik-
ilvægt að ýta undir það sem þú
elskar í fari þínu.“
Undirbúningurinn hjá Gógó tek-
ur um tvær klukkustundir. Fyrir
gleðigöngu helgarinnar vaknar
hún klukkan 8 og hefst þá vinnan.
„Ég byrja á að raka mig svo tekur
förðunin svolítinn tíma. Kærastan
mín er förðunarfræðingur svo það
kemur sér vel til aðstoðar. Lykil-
atriði er góður varablýantur og
gerviaugnhár, ég gæti klætt mig í
drag með því einu saman. Annars
eru vörurnar frá Beautybarnum í
Kringlunni þær sem ég nota helst.“
Fyrir byrjendur í dragi hvetur
Gógó alla til þess að vera óhrædda
við að prófa sig áfram. „Það eru
allskyns hugmyndir innra með
manni sem má leyfa að springa út.
Vinkonur þínar, eða vinir, eiga ef-
laust allt sem þú þarft til að byrja.
Það mun koma þér á óvart hversu
margir vilja hjálpa þér og hafa
gaman af því. Einbeittu þér að því
að hafa gaman og aldrei pæla í því
hvað öðrum finnst, það er ekki þitt
vandamál.“
Gógó er full eftirvæntingar fyrir
gleðigöngunni en hún lifir fyrir
að skemmta fólki. „Þetta er það
skemmtilegasta sem ég geri. Þemað
í ár eru skrímsli og álfar. Það var of
týpískt fyrir mig að vera álfur svo
ég kaus skrímslið. Ég verð drottn-
ing skrímslanna – svört regnboga-
gyðja. Litapallettan er byggð á
regnboganum sem birtist þegar
olía mætir vatni. Fangar regn-
bogann en líka myrkrið.“ Gógó
saumaði kjólinn sinn sjálf. „Ég er
að leggja lokahönd á kjólinn. Þetta
„lúkk“ er svolítið öðruvísi en ég er
vön, en gríðarlega spennandi.“
Drag-ðu þig upp
Dragdrottning Íslands árið 2015, Gógó Star, fer yfir mikilvæg atriði
í undirbúningi á dragdrottningu. Hún segir ótrúlegt hversu margir
hafa gaman af því að hjálpa. Það skiptir öllu máli að hafa gaman og
pæla aldrei í því hvað öðrum finnst.
Gleðigangan hefst í dag,
6. ágúst, klukkan 14. Gengið er
frá Vatnsmýrarvegi að Arnarhóli.
Í henni sameinast lesbíur,
hommar, tví- og pankynhneigðir,
trans fólk, intersex fólk og aðrir
hinsegin einstaklingar í einum
hópi ásamt fjölskyldum sínum
og vinum til að staðfesta tilveru
sína, sýnileika og gleði, ásamt
því að minna á þau baráttumál
sem skipta hvað mestu máli
hverju sinni.
Á Fiskidegin-
um mikla á
Dalvík verður
öllu til tjaldað
að vanda. Það
stærsta, mesta
og sjaldgæfasta.
Í ár verða átján
120 tommu pítsur ferjaðar með
lyftara inn í umhverfisvænan ofn
og hátíðargestir geta gætt sér á
sneið af pítsu með saltfiski, ólífum
og tómötum.
Einn sjaldgæfasti fiskur heims,
kragaháfur, verður til sýningar.
Hann var veiddur í fyrra, sjómönn-
um og fræðimönnum landsins
til mikillar undrunar. Fiskurinn
er sagður vera „lifandi steingerv-
ingur“ og sást
síðast til hans í
Japan árið 2007,
áður var hann
talinn útdauð-
ur. Kragaháfur
Dalvíkinga kom
til bæjarins með
togara, í dag er
uppstoppaður og varðveittur um
ókomin ár.
Hátíðarhöld á Fiskideginum
verða með glæsilegu móti en
stærsta svið landsins var reist við
bryggjuna. Þar koma fram stjörnur
Dalvíkur; Eyþór Ingi, Friðrik Ómar
og Matti Matt. Sömuleiðis verður
Salka Sól á staðnum, Regína Ósk og
Selma Björns, syngjandi glaðar.
Stærsta pítsa landsins og
sjaldgæfasti fiskur heims
Kragaháfur einn sjaldgæfasti fiskur heims.
Keppt á hjólabretti
á ólympíuleikunum
Blað var brotið í hjólabrettasögunni á miðviku-
dag þegar alþjóðlega ólympíunefndin samþykkti
að keppt yrði á hjólabretti á sumarólympíuleik-
unum í Tókýó árið 2020.
Þó margir vilji halda brettaiðkun á jaðrinum
fagna enn fleiri ákvörðuninni, enda von til þess
að stjórnvöld um heim allan muni nú búa betur
að íþróttinni með húsnæði og fjármagni. Hjóla-
brettasenan er sterk hér á Íslandi þrátt, fyrir að
aðstöðu hafi oft verið ábótavant. Spennandi verður að sjá hverjir
verða fulltrúar Íslands á brettinu á ólympíuleikunum eftir fjögur ár.
Gógó Star
á opnunar-
kvöldi fyrir
Hinsegin
dagana.
Mynd | Rut
Morgunstundin
Fyrsta gleðigangan
Mynd | Rut
„Yfirleitt vakna ég með Urði snemma á morgn-
ana, við fáum okkur morgunmat saman og leyfum
hinum tveimur að sofa lengur,“ segir Úlfhildur Ey-
steinsdóttir sem með konu sinni, Aldísi Þorbjörgu
Ólafsdóttur, á tvö börn með níu mánaða millibili,
Urði sem er eins árs og Eystein sem er þriggja
mánaða gamall. Aldís er nú í fæðingarorlofi með
Eystein en Úlfhildur komin aftur til vinnu eftir
fæðingarorlof sitt vegna fæðingar Urðar.
„Um helgar eigum við hins vegar fjölskyldu-
stundir við morgunverðinn,“ segja þær, en í dag
verður morgunstundin þó líklega öðruvísi en aðra
daga.
„Við ætlum í bröns hjá vinkonu okkar þar sem
verða aðrar hinsegin fjölskyldur áður en Gleði-
gangan byrjar, svo fer ég og hitti tengdó og ætla
að sjá til hvort ég fer í gönguna eða horfi bara á
úr fjarlægð með börnin,“ segir Aldís, en Úlfhildur
verður einn kynna á Arnarhóli þegar gangan fer
fram.
„Þetta verður líklega fjölskylduvænni hátíðar-
höld fyrir okkur en áður, við erum allavega ekki
að fara á neitt djamm eftir gönguna,“ segja þær,
en í dag munu systkinin Urður og Eysteinn upplifa
Gleðigönguna í fyrsta sinn á ævinni. | sgþ