Fréttatíminn - 06.08.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 6. ágúst 2016
Ólympíuleikarnir ódýrari en síðustu ár
– en samt dýrir fyrir Brasilíu í kreppu
Myndir | NordicPhotos/Getty
Ólympíuleikarnir í Rio de Janeiro hefjast í dag. Þeir lenda
á versta tíma fyrir Brasilíu. Válynd veður eru þar um þess-
ar mundir vegna bæði efnahagslegrar og stjórnmálalegrar
kreppu. Margir Brasilíumenn mótmæla leikunum. Þegar litið
er á heildarmyndina kemur þó í ljós að kostnaður við leikana
er mun minni en við ólympíuleika á undanförnum áratug-
um. Spillingarmál, fjárhagslegt klúður og bruðl á stórum
íþróttamótum hefur breytt hugmyndum um slíka viðburði.
Skipuleggjendur leikanna í ár eru þó gagnrýndir fyrir
að fjárfesta ekki nægilega í varanlegum mann-
virkjum til að bæta líf íbúanna í Rio. Stjórnvöld
hafa einnig verið sökuð um mannréttindabrot
með aðgerðum gegn íbúum fátækrahverfa í
borginni. Zika-veiran, mengun og hætta af
hryðjuverkum eru og áhyggjuefni.
Helgi Hrafn Guðmundsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Síðustu ólympíuleikar – vetrar-
ólympíuleikarnir í febrúar 2014 –
fóru fram í Sotsí í Rússlandi. Borgin
sú liggur við Svartahaf og und-
ir tilkomumiklum fjöllum Norður
-Kákasus. Keppt var í skíðagreinum
í fjallaþorpinu Krasnaya Polyana.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti
vildi að leikarnir yrðu sem allra
glæsilegastir, til að sýna heiminum
að Rússar væru stórveldi, og dældi
hömlulaust peningum í þá. Hann
lét til dæmis reisa lest á milli
flugvallarins í Sotsí og áður-
nefnds fjallaþorps en það er
um 50 kílómetra löng leið í
gegnum fjallaskörð. Lestin
kostaði 8,7 milljarða dollara
eða um þúsund milljarða ís-
lenskra króna. Skemmst er
frá því að segja að sárafá-
ir nota lestina í dag. Hún
var því í raun reist aðeins til að
ferja gesti og íþróttafólk á milli
staða í þær rúmu tvær vikur sem
leikarnir fóru fram. Samtals kost-
uðu vetrarólympíuleikarnir 51 millj-
arð dollara – maður þorir varla að
reikna þá upphæð í íslenskum krón-
um – og eru því dýrustu ólympíuleik-
ar sögunnar. Margt bendir til að fjár-
glæfrastarfsemi hafi verið stunduð
í undirbúningi þeirra, þar sem
ólígarkar í náð Pútíns hirtu greiðsl-
ur vegna framkvæmda og kostnaður
féll á skattgreiðendur.
Ódýrara snið og breytt hugsun
Sumarleikarnir í London árið 2012
kostuðu um 15 milljarða dollara
og leikarnir í Beijing í Kína árið
2008 litla 44 milljarða dollara.
Ólympíuleikarnir í Rio í ár kosta
sáralítið í þessum samanburði. Í
raun er gert ráð fyrir að heildar-
kostnaður vegna þeirra nemi um 5-6
milljörðum dollara. Það er minna en
fjallalestin ein í Sotsí kostaði. Leik-
arnir eru að miklu leyti fjármagnaðir
með auglýsinga- og sjónvarpssamn-
ingum svo að beinn kostnaður fell-
ur ekki á skattgreiðendur nema að
óverulegu leyti. Það hefur þó ekki
komið í veg fyrir að kostnaður hafi
farið fram úr áætlunum en þó ekki í
hæstu hæðir. Helst er spurt hvað geri
skuli við glænýja velli og hallir fyr-
ir íþróttir sem njóta ekki sérstakra
vinsælda í Brasilíu. Þó að HM 2014
hafi tekist nokkuð vel, þótti flestum
landsmönnum óásættanlegt að reisa
glænýja og risastóra fótboltavelli á
stöðum eins og í Amasónborginni
Manaus. Þar var 45 þúsund manna
völlur reistur en kostnaðurinn nam
um 200 milljónum dollara. Keppt
var fjórum sinnum á honum á HM.
Síðan þá hefur þetta stóra mannvirki
staðið nánast autt ef frá eru taldir
leikir í fjórðu deild og gospeltónleik-
ar sem örfá þúsund sækja.
Horft til Aþenu 2004
Á síðustu misserum hefur verið flett
ofan af hverju spillingarmálinu á
fætur öðru í Suður-Ameríku og þar
á meðal í íþróttahreyfingum. FIFA-
-hneykslið sýndi að knattspyrnu-
sambönd í álfunni hafa flest stundað
fjárglæfrastarfsemi. Vegna kreppu-
ástandsins í Brasilíu hefur and-
staða við hvers kyns spillingu og
eyðslu með almannafé magnast og
því hefur verið hávær krafa í þjóð-
félaginu um að kostnaði sé stillt í
hóf á ólympíuleikunum. Horft er
til Aþenu í Grikklandi í þessu sam-
bandi. Þar liggja ýmis mannvirki frá
ólympíuleikunum 2004 yfirgefin og
ónýt, líkt og þær séu byggingar á
geislavirku svæði Tsjernóbýl. Gríska
ríkið fór mjög illa út úr leikunum.
Talið er að um sjö milljarðar evra
hafi fallið á gríska skattgreiðendur,
sem þeir máttu auðvitað alls ekki við
eins og síðar kom í ljós. Sumir ganga
svo langt að segja að ólympíuleikarn-
ir hafi í raun sökkt hinu veikbyggða
gríska ríki.
Ólympíuleikar á BRICS-öld
Lula da Silva, fyrrverandi forseti, var
á hátindi sínum árið 2009 þegar Rio
de Janeiro landaði ólympíuleikun-
um. Hann fagnaði ákaft og fór svo frá
embætti í árslok 2010, með 70 til 80
prósent fylgi og var þá líklega vinsæl-
asti þjóðhöfðingi veraldar. Brasilía
var þá talið efnahagslegt stórveldi
Fjársvelti Rio de Janeiro héraðs þýddi
að lögreglumenn fengu ekki útborguð laun.
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
BARNA-
GLERAUGU
til 18 ára aldurs
frá 0 kr.
Miðast við endurgreiðslu
frá Sjónstöð Íslands.