Fréttatíminn - 02.09.2016, Side 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
„Þegar horft er til þess hvernig þess-
ar manneskjur voru notaðar þá þarf
að fara aftur til tilrauna nasistanna
á fólki á fjórða og fimmta áratugnum
til að finna hliðstæðu. Þetta var svo
slæmt, svo alvarlegt,“ segir Oscar
Simonsson, brjóstholsskurðlæknir
við háskólasjúkrahúsið í Uppsölum í
Svíþjóð, þegar hann ræðir um plast-
barkamálið og ítalska skurðlækn-
inn Paulo Macchiarini í viðtali við
Fréttatímann.
Oscar Simonsson var einn af fjór-
um læknum á Karolinska-sjúkrahús-
inu árið 2014 sem byrjuðu að vekja
athygli á óhefðbundnum rann-
sóknaraðferðum og vinnubrögðum
Paulo Macchiarinis eftir að hafa far-
ið í gegnum sjúkragögn sjúklinga
Macchiarinis og þær vísindagreinar
sem hann skrifaði um plastbarkaað-
gerðirnar. Fjórmenningarnir fengu
uppljóstrunarverðlaun frá samtök-
unum Transparency International
fyrr á árinu vegna vinnu sinnar við
að koma upp um plastbarkamálið.
Oscar og þrír kollegar hans-
reyndu að kalla eftir rann-
sókn á plastbarkamálinu en
töluðu fyrst um sinn fyrir
daufum eyrum. Plastbarka-
málið teygir sig til Íslands
þar sem fyrsti sjúklingur-
inn sem fékk græddan í sig
plastbarka kom frá Íslandi,
auk þess sem Birgir Jakobs-
son var forstjóri Karolinska-
-sjúkrahússins í Stokkhólmi.
Íslensk rannsókn á málinu
gæti farið fram.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
„Þessar manneskjur voru notaðar“
Tengslin við Ísland
Plastbarkamálið snýst um að
Macchiarini græddi plastbarka í
manneskjur í Svíþjóð, Rússlandi,
Bretlandi og Bandaríkjunum á ár-
unum 2011 til 2013 án þess að búið
væri að þróa og prófa aðgerðaform-
ið, til dæmis á dýrum, áður en að-
gerðirnar voru gerðar á mönnum.
Yfirleitt tekur mörg ár að þróa ný
aðgerðaform áður en þau eru reynd
á mönnum. Í ljós kom að aðgerða-
formið virkaði ekki og ýmist dóu
sjúklingarnir í kjölfarið eða reyna
þurfti að bjarga lífi þeirra með öðr-
um aðferðum eftir að plastbark-
arnir höfðu verið fjarlægðir. Málið
er eitt stærsta hneyksli sem komið
hefur upp innan læknavísindanna í
Evrópu og jafnvel í heiminum.
Fyrsti sjúklingurinn sem fékk
slíkan plastbarka græddan í sig í
Svíþjóð var Andemariam Beyene,
Eritreumaður búsettur á Íslandi,
sem Tómas Guðbjartsson, yfirlækn-
ir á Landspítala-háskólasjúkrahúsi,
sendi til Stokkhólms til meðferð-
ar í maí árið 2011. Andemariam
var með krabbameinsæxli í hálsi
og hefur Tómas sagt að hann hafi
talið að leita þyrfti lækningar fyr-
ir hann utan Íslands til að reyna að
bjarga lífi hans. Macchiarini laug því
að Andemariam að aðgerðin hefði
verið prófuð á dýrum. Tómas var
svo meðhöfundur að fyrstu vísinda-
greininni um aðgerðina á Andem-
ariam en hún birtist í tímaritinu
Lancet í árslok 2011.
Plastbarki græddur í mann
Oscar Simonsson kom ekkert að
aðgerðunum þremur sem Pau-
lo Macchiarini gerði á Karolinska-
-sjúkrahúsinu á árunum 2011 og 2012
heldur vann hann aðeins að rann-
sóknum á rottum eftir að aðgerð-
irnar höfðu verið gerðar. „Ég byrj-
aði að vinna að rannsóknum á því
hvort hægt væri að græða plastbarka
í rottur árið 2012, mest af vinnunni
fór þó fram árið 2013. Þá hitti ég Pau-
lo Macchiarini í fyrsta skipti, ef ég
man rétt. Á þessum tímapunkti stóð
ég í þeirri trú að búið væri að græða
plastbarkana í grísi en það hafði
heldur ekki verið gert,“ segir Oscar.
Í orðum hans felst að hann byrjaði
að gera rannsóknir með ígræðslu á
plastbörkum í rottur löngu eftir
Af hverju er plastbarkamálið
merkilegt og hvaða spurningar
skilur það eftir sig?
Staðhæfing: Manneskjur létu lífið í kjölfar aðgerða sem þær gengust undir,
sem hvorki höfðu verið reyndar eða þróaðar vísindalega né siðferðilega.
Spurning: Hvernig getur slíkt átt sér stað á einu virtasta háskólasjúkrahúsi
heims eins og Karolinska-spítalanum?
Staðhæfing: Bara í Svíþjóð fengu þrjár manneskjur, þar af ein sem var bú-
sett á Íslandi, grædda í sig plastbarka þrátt fyrir að reglum læknisfræðinn-
ar hefði ekki verið fylgt við þróun og prófun meðferðarinnar. Tvær þeirra
dóu. Enginn af sjúklingunum í Svíþjóð var sænskur ríkisborgari og fyrsti
plastbarkaþeginn var Erítreumaður.
Spurning: Hefði slík aðgerð verið framkvæmd á Svía ef svo hefði borið
undir?
Staðhæfing: Starfsmenn stofnana í Svíþjóð, bæði Karolinska-sjúkrahússins
og Karolinska-háskólans, reyndu að þagga málið niður framan af því það
var óþægilegt fyrir þá. Á Íslandi hefur læknadeild Háskóla Íslands fært rök
gegn því að sjálfstæð rannsókn á íslenskum þætti málsins sé nauðsynleg.
Spurning: Hvað geta stofnanir samfélagsins lært af málinu um hvenær
eðlilegt sé að leggja spilin á borðið og viðurkenna mistök? Mun læknadeild
Háskóla Íslands breyta afstöðu sinni til rannsóknar á Íslandi?
Staðhæfing: Tómas Guðbjartsson tengist málinu nánum böndum.
Spurning: Hver er ábyrgð hans? Vissi Tómas að til stæði að græða plast-
barka í Andemeriam Beyene í Stokkhólmi þegar hann sendi hann þangað í
maí árið 2011? Kom hann að þeirri ákvarðanatöku? Andemariam vissi það
ekki. Af hverju sagði Tómas ekki frá því eftir aðgerðina árið 2011 og 2012
að svo virtist sem hún hefði mistekist?
Staðhæfing: Birgir Jakobsson vissi að aðgerðin á Andemariam Beyene
var tilraunaaðgerð sem var ekki með læknisfræðilega stoð. Hann skrifaði
undir samning við Sjúkratryggingar Íslands um að Karolinska myndi greiða
kostnaðinn við aðgerðina af því Sjúkratryggingar Íslands mega ekki borga
tilraunameðferðir.
Spurning: Var það rétt af Birgi að skrifa þannig upp á aðgerð sem skorti
alla vísindalega og siðferðilega stoð? Hann vissi líka að næstu tvær plast-
barkaaðgerðir voru órökstuddar vísindalega og af hverju stoppaði hann
þær ekki af?
„Það var mikil þögn um
þetta: mér leið eins og ég
væri „persona non grata“.“
Einn af læknunum sem kom upp um plastbarkamálið í Svíþjóð, Oscar Simonsson, segir að það skorti hliðstæðu í
læknavísindum síðustu áratugi og að fara þurfi aftur til Þýskalands nasismans til að finna álíka tilraunir á fólki.
Oscar segir að eftir þeir lögðu
fram kæru á hendur Macchi-
arini til Karolinska-háskólans
sumarið 2014 hafi Macchiarini
gert aðra plastbarkaaðgerð
á sjúklingi í Rússlandi. Við-
brögðin við gagnrýni þeirra
voru allt of sein segir Oscar.
Oscar Simonsson,
brjóstholsskurðlækn-
ir við háskólasjúkra-
húsið í Uppsölum í
Svíþjóð.
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
Opið 08.30 - 18.00 mán-fös / 11.00 - 16.00 lau
Handmáluðu fígúrurnar frá fást í verslun
við Gylfaflöt 7