Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 60
Dans fyrir alla Ekki þarf að mæta með dansfélaga í Háskóladansinn. Heimilisiðnaðarfélagið á hrós skil- ið fyrir að haldi í heiðri aðferðum og hefðum sem annars myndu mögulega tapast í menningu okk- ar. Í vetur er boðið upp á fjölda námskeiða þar sem téðri menn- ingu og handverki á undanhaldi er gert hátt undir höfði. Meðal þessara námskeið er til dæmis kennsla í lissum en lissuskyrtur eru gjarnan hluti af þjóðbúningi kvenna. Lissur eru blóma- eða hr- ingmynstur sem prýðir skyrtuna á ermum og hálsmáli. Vitanlega er hægt að sækja saumanámskeið á heilum þjóðbúningi, öðrum hluta hans eða fá hjálp við ákveðinn hluta verksins. Útsaumsnámskeið eru vitanlega á sínum stað; or- kering, knipl, bródering og skals útsaumur, svo eitthvað sé nefnt og ekki má gleyma hekli og prjóni. Einnig verða ýmis námskeið þar sem kennt er að nýta ýmsa hluti til handverks sem annars enda í ruslinu. Þar má nefna örnámskeið í fléttun kaffipoka þar sem skáflétt- un með lengjum úr endurnýttum kaffipokum er kennd. Einnig verða haldin örnámskeið í gerð taupoka, hvernig hægt er að nýta gamlar gallabuxur í alls konar verkefni og hvernig má nýta alls kyns efnivið í að búa til eigin snyrti- eða penna- veski. Að lokum má nefna námskeið í hverskyns jólahandverki; harð- angri og klaustri þannig að hægt sé að sauma dýrindis dúk á jólaborðið og kniplaða smáhluti til skrauts. Prufutímar Boðið er upp á tvær fríar prufuvikur frá 5. september. Háskóladansinn býður upp á fjöl- breytt og skemmtileg dansnám- skeið og hefst haustönnin mánu- daginn 5. september með tveimur fríum prufuvikum. Þeir sem hafa áhuga á að læra West Coast Swing, Blues, Salsa, Swing & Rock'N'Roll, Boogie Woogie og Lindy Hop geta prófað að mæta í tíma án nokkur- ar skuldbindingar, og ef vel líkar, skráð sig til leiks. Háskóladans- inn er fyrir alla, ekki bara há- skólanema og danskunnátta er ekki nauðsynlegt. Ekki þarf að mæta með dansfélaga því í para- tímum er reglulega skipt um félaga og allir fá tækifæri til að dansa. Dans er góður valkostur fyrir þá sem langar að hreyfa sig en nenna ekki að fara í hefðbundnar líkams- ræktarstöðvar. Dansinn er líka tilvalinn vettvangur til að kynnast nýju fólki og því þarf enginn að vera feiminn við að mæta án dans- félaga. Best er að mæta í þægilegum og léttum klæðnaði sem þú getur hugsað þér að dansa í, og þægi- legum íþróttaskóm eða flatbotna skóm. Hægt er að nálgast frekari upp- lýsingar um Háskóladansinn á facebook-síðu og heimasíðu dans- skólans: haskoladansinn.is. Lissuskyrtur, orkering og endurvinnsla Heimilisiðnaðarfélagið heldur hefðum á lofti. Listin að smakka vín Fjölbreytt námskeið í boði hjá Vínskólanum. Fyrir áhugafólk um vín Námskeið Vínskólans eru almenns eðlis og á aðgengilegum nótum. Haustönn Vínskólans er að hefjast og boðið er upp á fjöl- breytt námskeið að vanda, eins og Vín frá Rioja eða Rón-dalnum, Vín og matur frá Chile, Ítalíu eða Frakklandi, að ótöldu sígilda nám- skeiðinu um Listina að smakka. Í haust verður einnig þriggja nám- skeiða syrpa þar sem farið verður vandlega yfir öll þrep vínfram- leiðslu, frá ekrunni í glasið og end- að í að skoða hvernig vín og matur virka saman. Námskeiðin eru opin öllum þeim sem hafa áhuga á að fræðast um vín og vínmenningu. Flest námskeiðin eru almenns eðlis og reynt verður að halda þeim á  aðgengilegum nótum. Námskeiðin eru haldin í Fógeta- stofu á Hótel Reykjavík Centrum í Aðalstræti. Hægt er að nálgast frekari upp- lýsingar um námskeiðin á heima- síðu Vínskólans: vinskolinn.is. …námskeið 12 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.