Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 02.09.2016, Blaðsíða 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 „Það er ótrúlegt hvað mikil gleði getur fylgt einu tré.“ Sautján metra há alaska ösp sem stendur við elsta stein- bæinn í Grjótaþorpi var á dögunum valin tré ársins. Tréð hefur þó ekki alltaf hlotið slíka virðingu því fyrir þrjátíu árum átti að saga það í búta. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Í Grjótaþorpi stendur gamli stein­bærinn Hákot og í garðinum við Hákot stendur eitt virðuleg­asta tré borgarinnar. Tréð var á dögunum valið tré ársins við hátíðlega athöfn þar sem tónlist og ræður ómuðu í eyrum þess mikla fjölda gesta sem heiðraði það með nærveru sinni. En tréð hefur lifað tímana tvenna og ekki alltaf verið sýnd slík virðing. Áður en tréð fékk að skjóta rót­ um í garðinum við Hákot, þar sem rabarbari og rófur höfðu vaxið frá því sautjánhundruðnítíuogníu, stóð tréð í næsta garði. Þar óx það tiltölulega áhyggjulaust þar til það var rifið upp með rótum einn fagran sumarmorgun fyrir þrjátíu árum. Þá var verið að flytja nágrannahúsið og trén áttu öll að fara líka. Ragnheiður Þorláksdóttir, ná­ granni og bjargvættur trésins, man þennan dag eins og gærdaginn. „Ég vaknaði rétt fyrir níu og var litið út og það var eins og það hefði orðið loftárás. Það var búið að saga öll trén í garðinum niður í búta nema þetta eina tré, sem var það falleg­ asta. Ég rauk út á náttserknum og bað um að fá að hringja í garðyrkju­ stjóra Reykjavíkur, Jóhann Pálsson, sem ég gerði en það náðist ekki í hann,“ segir Ragnheiður. Mennirn­ ir á vélunum vildu helst ekki stöðva verkið því tími þeirra var dýr en eftir miklar samningaviðræður gáfu þeir Ragnheiði þrjá klukkutíma til að bjarga trénu. „Ég var afar hrærð yfir þessum fresti og reyndi og reyndi að ná í Jóhann en ekkert gekk og eftir þessa þrjá klukkutíma gafst ég upp,“ segir Ragnheiður. Hún settist í uppgjöf við eldhúsborðið og þorði ekki fyrir sitt litla líf að horfa út um glugg­ ann. En þegar hún loks kíkti sá hún tréð liggja með ræturnar í allar áttir í hennar eigin garði. „Ég vildi bara bjarga trénu, ekki eignast það sjálf!,“ segir Ragnheiður sem fékk þó engu um það ráðið því garð­ yrkjustjórinn fyrirskipaði að tréð yrði gróðursett á miðju túninu. Þrjátíu árum síðar er tréð orðið hærra en Hákot. Vitrir menn segja þessa alaska ösp vera algjörlega einstaka, kannski því jarðvegurinn er svo góður í Grjótaþorpinu eða kannski því pólsk fegurðardís lagði við það orkusteina úr Snæfellsjökli fyrir mörgum árum. Kannski af því það fær svo mikla ást frá nágrönn­ um sínum og aðdáun frá gang­ andi vegfarendum. Þegar tréð fékk heiðursskjöldinn sinn í vikunni safnaðist um það fólk sem hefur fylgst með því vaxa og sögurnar rifjuðust upp. Undir því hafa margar bækur verið lesnar, kóresk stórfjöl­ skylda haldið brúðkaup, börnin í hverfinu klifrað, ástfangin pör leikið sér í skjóli nætur og óteljandi gestir og gangandi stillt sér upp og tekið myndir. „Það er ótrúlegt hvað mikil gleði getur fylgt einu tré,“ segir Ragn­ heiður. „Allskonar fólk frá ýmsum löndum er stöðugt að mynda hér við húsið. Stundum er ég á mynd­ unum og ég hef oft velt því fyrir mér hver undirtexti þessara mynda sé. Ægilega stór kona í pínulitlu húsi við risastórt tré gæti einn þeirra  verið.“ Ægilega stór kona í pínulitlu húsi við risastórt tré Ragnheiður Þorláks dóttir uppi í tré ársins, öspinni sem hún bjargaði fyrir þrjátíu árum. Mynd | /Rut Ameliu finnst Reykjavík hafa breyst mikið til batnaðar á þeim árum sem hún hefur búið hér. Mynd | /Rut Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Maðurinn minn var atvinnu­ íþróttamaður í Soffíu þegar hon­ um bauðst að koma til Íslands og vera hér með námskeið í skylm­ ingum í júlí árið 1991. Ég og eldri drengurinn okkar, sem var þá að verða eins árs, komum í heimsókn í sumarfríinu og fórum aldrei heim aftur. Þannig að ég er eiginlega búin að vera í sumarfríi í tuttugu og fimm ár,“ segir þýðandinn Amelia Maateva sem situr í stjórn kvenna af erlendum uppruna. „Ég fór á námskeið í íslensku um leið og við höfðum tekið ákvörðun um að vera hér áfram en þar sem ég var með tvö lítil börn og var alltaf að hjálpa til í skylminga­ félaginu fór ég ekki út á vinnu­ markaðinn í sjö ár,“ segir Amelia sem var með meistarapróf í slav­ neskum bókmenntum og kennara­ réttindi þegar hún flutti til lands­ ins. „Ég fékk vinnu á leikskóla og vann á Nóaborg og Stakkaborg í sautján ár en núna er ég í hinu og þessu, hjálpa til í skylminga­ félaginu og vinn líka sem þýðandi. Svo hef ég verið að taka að mér að vera aukaleikari sem mér finnst mjög skemmtilegt því pabbi var leikari og ég því alin upp á sviði.“ „Reykjavík hefur breyst ótrú­ lega mikið á þessum árum. Ég ólst upp í miðbæ Soffíu við mikið líf og mikla menningu og fannst allt heldur rólegt hérna fyrsta árið. Ef ég fór út á róló með barnið þá vorum við oftast alein þar svo mér leið dálítið eins og Palla sem var einn í heiminum. Það tekur tíma að komast inn í samfélagið en það gekk frekar hratt hjá mér því ég á auðvelt með að kynn­ ast fólki. Það er svo mikilvægt að kynnast fólki og vera ekki einn í nýju landi. Reykjavík er líka miklu skemmtilegri í dag, fleira fólk á götunum og miklu meira að gerast í menningarlífinu.“ Innflytjandinn Amelia Maateva: Tuttugu og fimm ár í sumarfríi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.