Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 02.09.2016, Side 12

Fréttatíminn - 02.09.2016, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Staða uppljóstrara Í maí 2015 kynnti Bengt Gerdin niðurstöðu sína um að Macchi- arini hefði gerst sekur um rann- sóknarsvindl í vísindagreinum sín- um um plastbarkaaðgerðirnar. Svo sneri rektor Karolinska-háskólans, Anders Hamsten, við þeirri niður- stöðu í ágúst 2015 og þá varð staða uppljóstraranna fjögurra erfiðari innan spítalans. „Þetta var erfitt fyrir okkur fjóra fram að niðurstöðu Bengt Gerdins. Þá varð staða okkar betri tímabundið en svo kom And- ers Hamsten með sína niðurstöðu og þá varð þetta aftur mjög erfitt fyrir okkur.“ En hvernig var það erfitt fyrir Osc- ar og kollega hans að vinna áfram innan Karolinska-sjúkrahússins eft- ir að þeir byrjuðu að vekja athygli á málinu, fyrir utan að þeim var hótað brottrekstri og áminningum í starfi? „Maður fær ólíkar hótanir hvers kyns, þó það geti verið erfitt að sanna þær; maður fær ekki þau verkefni sem maður hefði feng- ið í vinnunni; þeir skoðuðu tölvu- póstana okkar; fólk gefur manni illt auga; einhverjir litu svo á að við hefðum svikið Karolinska-spítalann; það fóru á flug margar ósannar sög- ur um okkur og vorum kærðir mjög oft af nafnlausum aðilum fyrir eitt- hvað sem við höfðum átt að hafa gert af okkur í starfi. Ég er líklega einn mest rannsakaði læknir í sögu Svíþjóðar.“ Oscar undirstrikar að það sem hann hefur upplifað í málinu sé smávægilegt í samanburði við reynslu sjúklinga Macchiarini og aðstandendur þeirra. „Alveg óháð því í hverju ég hef lent þá er það smávægilegt í samanburði við það sem sjúklingarnir og aðstandendur þeirra þurftu að upplifa.“ Oscar lét af störfum á Karolinska- -sjúkrahúsinu í ársbyrjun 2016 ásamt öðrum af læknunum fjórum. Tveir af læknunum starfa ennþá á Karolinska-sjúkrahúsinu. Á sama tíma, í byrjun þessa árs, birtist af- hjúpandi grein um Paulo Macchiar- ini í Vanity Fair sem Oscar segir að hafi haft mikil áhrif á Karolinska- -sjúkrahúsinu. Strax þar á eftir, yfir þriggja vikna tímabil í janúar, sýndi sænska ríkissjónvarpið þriggja þátta heimildarmynd um Macchiar- ini-málið eftir Bosse Lindqvist sem hratt af stað rannsóknunum á mál- inu innan Svíþjóðar. Mótsagnakennd orð Tómasar Ein af þeim stóru spurningum sem á eftir að svara til hlítar í málinu er hvenær Tómas Guðbjartsson, sem var lykilmaður í því að senda Andemariam frá Íslandi til Sví- þjóðar, vissi að það væri möguleiki á því að græða í hann plastbarka í Svíþjóð. Sjálfur hefur Tómas neit- að því að hann hafi komið að því að ákveða að ígræðsla plastbarka í háls Andemariams væri möguleiki og að hann hafi ekki vitað um þenn- an möguleika þegar hann sendi Andemariam til Svíþjóðar. Í viðtali við Stundina fyrr á árinu sagði hann: „Við erum ekki hafðir með í ráðum hvort þetta sé góður valkostur eða ekki. Þetta er bara meðferð sem þeir bjóða upp á þegar hann er tekinn til umfjöllunar þar. […] Ég vissi að Macchiarini var þekktur fyrir að- gerðir þar sem hann notaði gjafa- barka eftir að hafa birt greinar um þetta í Lancet en þannig öðlaðist hann heimsfrægð. Þú tekur þá barka úr látnum einstaklingi, hreinsar hann og setur stofnfrumur á hann. En þarna er hann að prófa eitthvað nýtt.“ Í viðtali við Vísi árið 2012, þegar talað var um að aðgerðin á Andem- ariam hefði gengið vel, sagði Tómas að hann hefði séð Macchiarini halda fyrirlestur í Stokkhólmi og að hann hefði munað eftir hon- um þegar hann hugsaði um með- ferðarmöguleika fyrir Andemariam Beyene. „Þá mundi ég eftir fyrirlestri sem ég hafði séð Dr. Paolo Macchiar- ini, á Karolínska sjúkrahúsinu í Sví- þjóð, flytja um barkaígræðslu sem hann hafði framkvæmt þar sem not- ast hafði verið við barka úr látnum einstaklingi sem hann hafði þakið stofnfrumum úr líffæraþeganum. […] Slík aðgerð kom ekki til greina í þessu tilfelli vegna langrar biðar eft- ir líffæri en Macchiarini hafði einnig gert tilraunir með gervilíffæri þakin stofnfrumum sem hann hafði grætt í dýr. Slík aðgerð hafði hins vegar ekki verið framkvæmd á manni. En við létum sem sagt að lokum slag standa og aðgerðin heppnaðist.“ Nú liggur fyrir að Macchiar- ini hafði aldrei gert tilraunir með gervilíffæri sem grædd voru í dýr, Andemariam var fyrsta lifandi veran sem fékk græddan í sig slíkan plast- barka og að aðgerðin heppnaðist alls ekki. Út frá þessum orðum Tómasar frá 2012 sendi hann Andemariam gagngert til Svíþjóðar svo hann gæti notið læknismeðferðar hjá Paulo Macchiarini. Aðgerðin ákveðin áður Í skýrslu Karolinska-sjúkra- hússins, sem birt var í vikunni, kemur fram að strax og Andem- ariam var lagður inn á sjúkrahúsið hafi verið skrifað í sjúkraskrá hans að græða ætti í hann plastbarka. Þá segir að Paulo Macchiarini hafi samið tilvísunarbréfið til Karol- inska-sjúkrahússins með Tómasi og lagði hann meðal annars til þess að hann notaði orðið „ígræðsla“ um mögulegt meðferðarúrræði. Í tölvupóstum frá yfirlækni á Karol- inska-sjúkrahúsinu kemur líka fram að um miðjan maí voru hann og Macchiarini byrjaðir að skipuleggja plastbarkaaðgerðina á sjúkrahúsinu. Andemariam sjálfur vissi hins vegar ekkert um skipulagningu plast- barkaaðgerðarinnar þegar hann fór til Stokkhólms og hélt hann að hann ætti að vera þar í nokkra daga. Hvað Tómas Guðbjartsson vissi um þetta liggur ekki fyrir. Að viðurkenna ekki mistök Oscar segir að eitt það merkilegasta við Macchiarini-málið sé að það sýni fram hversu erfitt það hafi verið fyr- ir aðila málsins að viðurkenna mis- tök. Til að mynda hafa aðeins fjórir af 27 höfundum vísindagreinarinn- ar um fyrsta plastbarkaaðgerðina sem birt var í The Lancet tekið nafn sitt af greininni. Íslendingarnir tve- ir sem eru meðhöfundar Macchiar- inis, Tómas Guðbjartsson og Óskar Einarsson, hafa ekki látið fjarlægja nöfn sín. „Þetta mál er hvergi nærri búið. Ég held að það eigi eftir að spr- inga út hér í Svíþjóð og líka á Íslandi. Ef heimildarmyndin sem Bosse Lindqvist gerði verður til dæmis sýnd á Íslandi þá verður erfiðara fyrir fólk að segja: Það þarf ekki að rannsaka þetta mál.“ Stjórnskipun- ar- og eftirlitsnefnd Alþingis er nú með plastbarkamálið til skoðunar og mun ákveða hvort það verður rann- sakað sérstaklega á Íslandi eða ekki. Oscar segir að málið sé svo sorglegt vegna þess að áratugalöng þekking innan læknisfræðinnar á því hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að prófa nýjar lækningameðferð- ir á manneskjum var virt að vettugi. „Þetta voru illa skipulagðar aðgerð- ir, byggðu á lélegri vísindavinnu og hver einasta regla um hvaða skil- yrði þarf að uppfylla til að prófa nýjar lækningameðferð á sjúklingi var brotin. Þess vegna gekk þetta ekki upp; þessar reglur eru þarna af ástæðu. Ef maður fylgir þeim ekki er sú áhætta sem maður tekur gagn- vart sjúklingnum of stór. Ef þú ætl- ar að hjálpa sjúklingi þá þarftu að hafa sterk rök fyrir því að meðferðin sé líklegri til að hjálpa honum en að stefna honum í hættu. En ef þú notar meðferð sem ekki hefur verið rann- sökuð þá geturðu ekki vitað hvort aðgerðin er líkleg til að virka eða hvort hún er hreinlega lífshættuleg.“ Lengdi aðgerðin líf Andemariams? Oscar segir að í tilfelli Andemariams Beyene hafi þetta verið raunin og að aðgerðin á honum hafi ekki ver- ið gerð til að bjarga lífi hans. Hann segir að æxlið í hálsi hans hafi ekki lokað öndunarvegi hans til fulls eða neitt slíkt þó hann hafi átt erfitt með að anda. „Þetta gerðist með Íslendinginn. Þeir höfðu ekki hug- mynd um hvaða afleiðingar með- ferðin hefði. Hann var ekki lífs- hættulega veikur á þessari stundu, var ekki bundinn við sjúkrarúm og aðgerðin snérist ekki um að bjarga lífi hans. Það er hins vegar ómögu- legt að segja að hversu langan tíma hann hefði átt eftir. Það er hins vegar ekki hægt að fullyrða að að- gerðin hafi lengt líf hans. Það getur vel verið að hann hefði lifað lengur án hennar.“ Fréttatíminn bað um viðtal við Tómas Guðbjartsson um atriði í skýrslu Karolinska-sjúkrahússins um plastbarkaaðgerðirnar en fékk ekki færi á að ræða við hann. Íslendingarnir í plastbarkamálinu Birgir Jak- obsson, núverandi landlæknir, var forstjóri Karolinska- -sjúkrahússins þegar að- gerðirnar á Andemariam Beyene, Christopher Lyles og Yesim Cetir voru gerðar. Hann skrifaði upp á samning við Sjúkratryggingar Íslands um kostun aðgerðarinnar á Andem- ariam Beyene þar sem skýrt kemur fram að hann vissi að um tilraunaaðgerð var að ræða. Birgir skrifaði upp á ráðningu Macchiarinis til sjúkrahússins árið 2010 en neitaði að endur- ráða hann sem skurðlækni haustið 2013. Birgir hætti sem forstjóri í lok maí 2014 og varð landlæknir á Íslandi í ársbyrjun 2015. Landslæknisembættið er einn af þeim aðilum sem er ráð- gefandi í ákvarðanatöku stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar um hvort rannsaka eigi plastbarka- málið á Íslandi. Tómas Guð- bjartsson, brjósthols- skurðlæknir og yfirlæknir á Landspít- ala-háskóla- sjúkrahúsi. Læknir Andemariams Beyene sem sendi hann út til Svíþjóðar til meðferðar um vorið 2011. Tók sjálfur þátt í aðgerðinni á Andemariam og skrifaði grein um hana ásamt Paulo Macchiarini og rúmlega 20 öðrum læknum. Fylgdist með Andemariam eftir aðgerðina og gerði rannsóknir á honum til að kanna líðan hans. Tómas sendi Andemariam út til Svíþjóðar eftir að ástand hans versnaði til muna árið 2013. Óskar Einars- son lungna- læknir. Að- koma hans og ábyrgð í plastbarka- málinu er ekki mikil. Hann kom eingöngu að eftirmeð- ferð sjúklingsins og gerði á honum rannsóknir til að kanna hvernig aðgerðin hefði gengið. Var meðhöfundur að greininni um aðgerðina á Andemariam í tímaritinu Lancet. Oscar segir að aðgerðin á Andemariam Beyene hafi ekki verið neitt annað en tilraun á manni þar sem ekki var búið að prófa aðgerðina áður á dýrum, auk þess sem samþykki vísindasiðanefndar lá ekki fyrir. Andemariam sést hér með Paulo Macchiarini, Tómasi Guðbjartssyni, starfsmanni bandaríska fyrirtækisins sem lagði plastbarkann til og Philip Jungebluth, aðstoðarmanni Macchiarinis. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Arion banka fá Leikhúskort Þjóðleikhússins á sérstökum kjörum. Kynntu þér málið á arionbanki.is Dýrmæt upplifun á góðu verði

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.