Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016
Femínasismi og íslamófasismi
Öll þessi stef mátti sjá hjá teboðs-
hreyfingunni, en það sem skilur
hreyfingarnar fyrst og fremst að er
áhersla jaðarhægrisins á kynþátta-
hyggju og mikilvægi þess að gripið
sé til vopna til að vernda vestræna
menningu. Mikilvægasti munurinn
er þó líklega að áhyggjur teboðs-
hreyfingarinnar voru bundnar við
Bandaríkin, jaðarhægrið er alþjóð-
legra.
Svo virðist líka sem ákveðinn
aldursmunur sé til staðar. Ólíkt
liðsmönnum teboðshreyfingar-
innar, sem flestir voru komnir um
og yfir miðjan aldur, líkt og flestir
stuðningsmenn Trump, er fram-
varðarsveit jaðarhægrisins upp til
hópa ungt fólk, aðallega þó ungir
karlmenn, sem hafa áhyggjur af
„femínasistum“ og „fjölmenn-
ingarfasistum“, og árásum þeirra á
karlmennsku sem veiki mótstöðu
Bandaríkjanna gegn herskáu íslam.
Skjaldsveinar klámvæðingarinnar
Mikið af þessum mönnum virðast
hafa orðið fyrir pólitískri vakningu
vegna baráttu minnihlutahópa og
femínista innan háskóla: Kröfur
um nærgætni í umfjöllun um við-
kvæm viðfangsefni, „safe spaces“
og „trigger warnings“ og þó sér-
staklega barátta gegn klámvæð-
ingu, t.d. í tölvuleikjum, hafa orðið
vatn á myllu róttækrar karlréttinda-
hreyfingar sem telur nauðsynlegt að
spyrna við fæti og koma í veg fyrir
að samfélagið verði of kvenlægt.
Eitt af því sem helst hefur ein-
kennt jaðarhægrið, ofbeldisfull
hatursorðræða í garð femínista
og kvenna á internetinu og sam-
félagsmiðlum, er sprottin af þess-
um rótum. Netmiðillinn Breitbart
News, sem hefur á síðustu árum
staðsett sig sem vettvang og málp-
ípu jaðarhægrisins, tók t.d. virkan
þátt í „Gamergate“, hatursherferð
gegn konum sem höfðu gagn-
rýnt karllægni og klámvæðingu í
tölvuleikjaheimium.
Alþjóðleg hreyfing
Mikilvægasta einkenni jaðarhægris-
ins í Bandaríkjunum er þó að hreyf-
ingin er í eðli sínu alþjóðleg, og að
hún sækir innblástur til Evrópu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
hægrimenn sitt hvorum megin Atl-
antshafsins sækja innblástur hvor
til annars. Eftir seinna stríð hafa
áhrifin hins vegar frekar verið frá
Bandaríkjunum til Evrópu, frekar
en öfugt og er McCarthyisminn nær-
tækt dæmi.
Það þarf ekki að fylgjast lengi
með umræðum meðal bandarískra
jaðarhægrimanna til að átta sig á
því að skoðanir þeirra og fordóm-
ar eru knúnir áfram af sömu hug-
myndum og einkenna málflutning
evrópskra þjóðernisöfgamanna. Eitt
besta dæmið eru flökkusögur um
að stórir hlutar evrópskra stórborga
hafa breyst í lokuð íslömsk borgríki
þangað sem lögreglan hætti sér
ekki og fullyrðingar um að glæpum
hafi fjölgað samhliða fjölgun flótta-
manna frá Mið-Austurlöndum.
#MerkelBandaríkjanna
Trump hefur líka verið duglegur
við að endurnýta efni frá evrópsk-
um hægrihreyfingum. Gott dæmi er
ræða sem hann flutti á mánudaginn
í síðustu viku, en þar gagnrýndi
hann Hillary Clinton fyrir að vera
„Angela Merkel Bandaríkjanna“.
Það skot geigaði reyndar enn verr
en Brusselbrandarar Nigel Farage
í Mississippi því fæstir viðstaddra
áttuðu sig á því hvert Trump væri að
fara. Trump reyndi síðan að koma
myllumerkinu #AmericasMerkel í
umferð á Twitter, sömu leiðis án ár-
angurs. Innan við helmingur Banda-
ríkjamanna hefur minnstu hug-
mynd um hver Merkel er, og flestir
bandarískir íhaldsmenn hafa frekar
jákvæða mynd af henni, enda hafa
repúblikanar löngum álitið kristi-
lega demókrata systurflokk sinn.
Fyrir þá sem fylgjast með Breit-
bart News og spjallþráðum hvítra
þjóðernissinna hitti skotið hins
vegar beint í mark. Ástæðan er sú að
í röðum þeirra er Merkel álitin „kyn-
þáttasvikari“ sökum stefnu sinnar
í innflytjendamálum: Í fréttaflutn-
ingi Breitbart birtist Merkel sem
einn alvarlegasti óvinur vestrænn-
ar menningar.
Breitbart News og Bannon
Einn af þeim sem hefur lagt mest af
mörkum til að efla tengsl evrópskra
og bandarískra þjóðernisöfga-
manna er Steve Bannon, fram-
kvæmdastjóri kosningastjórnar
Trump. Auk þess að stýra kosninga-
baráttu Trump stýrir Bannon Breit-
bart Media, sem hefur verið lýst sem
fréttamiðli þeirra sem finnst Fox
News ekki nógu langt til hægri. Frá
því að Bannon tók við stjórn Breit-
bart árið 2012 hefur miðillinn tek-
ið æ afdráttarlausari afstöðu með
evrópskum þjóðernishreyfingum,
og árið 2014 opnaði Breitbart útibú í
London sem hefur verið mikilvægur
tengiliður milli evrópskra og banda-
rískra jaðarhægrihreyfinga.
Breitbart London beitti sér af
hörku í aðdraganda þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um úrsögn Bretlands
úr Evrópusambandinu, m.a. með
því að birta tugi aðsendra greina
eftir Farage og aðra stuðningsmenn
Brexit. Tengslin voru reyndar svo
náin að Raheem Kassam, fram-
kvæmdastjóri Breitbart London, var
ráðinn sem starfsmannastjóri Nig-
el Farage og kosningaráðgjafi UKIP.
Eftir að Nigel Farage sagði af sér
sem formaður UKIP gaf Kassam til
kynna að hann hefði hug á að taka
við formennsku í flokknum.
Bannon hefur líka gert sitt besta
til að kynna bandaríska lesend-
ur sína fyrir helstu talsmönnum
evrópskra þjóðernisöfgamanna
og hugmyndum þeirra. Banda-
ríska útgáfan af Breitbart hefur birt
mörg hundruð greinar um leið-
toga evrópskra þjóðernisöfgahreyf-
inga, sem eru undantekningarlaust
sýndir sem hetjulegir og hugrakk-
ir baráttumenn fyrir hagsmun-
um lítilmagnans og sameiginlegri
vestrænni menningu gegn hroka-
fullum og veruleikafirrtum stjórn-
málamönnum annars vegar og vax-
andi íslamíseringu Evrópu hins
vegar. Það er óhætt að segja að ein
meginuppistaðan í erlendum frétta-
flutningi Breitbart í Bandaríkjunum
séu fréttir af uppgangi íslamista í
Evrópu.
Aðdáendur Trump í Evrópu
Á sama tíma og leiðtogar evrópskra
þjóðernisöfgahreyfinga hafa orðið
að hetjum í huga áköfustu stuðn-
ingsmanna Trump í Bandaríkj-
unum hefur Trump eignast fjöld-
ann allan af aðdáendum í Evrópu.
Þeirra á meðal eru Marine Le Pen
í Frakklandi, hollenski nýnasistinn
Geert Wilders og leiðtogi belgískra
öfgahægrimanna, Filip Dewinter.
Það sem öðru fremur vekur áhuga
evrópskra öfgahægrimanna á
Trump er afstaða hans til múslima
og ummæli á borð við að eðlilegast
væri að banna múslimum að koma
til Bandaríkjanna. Evrópskir íslamó-
fóbar líta svo á að velgengni Trump
hafi veitt baráttu þeirra og skoðun-
um ákveðinn virðuleikastimpil.
Tommy Robinson, leiðtogi Pegida í
Bretlandi og stofnandi bresku Þjóð-
varnarfylkingarinnar hefur t.d. lýst
yfir þakklæti yfir því að Trump hafi
„opnað á umræðuna og mjakað
henni áfram“.
Trump hefur fyrir sitt leyti endur-
goldið þessa aðdáun, t.d. voru Geert
Wilders og Nigel Farage gestir á
landsfundi Repúblikanaflokksins
í Cleveland í júlí þar sem Trump
tók við útnefningu flokksins sem
forsetaframbjóðandi hans. Wild-
ers flutti ræðu þar sem hann var-
aði við því að Evrópa væri við það
að hrynja vegna íslamskra innflytj-
enda en rót vandans væri innflytj-
endastefna evrópskra stjórnvalda
og umburðarlyndi sem hefði leyft
öfgamönnum að grafa undan vest-
rænum gildum, og ógna öryggi alls
almennings.
Á gömlum merg
Það sem knýr þessa hreyfingu
áfram, beggja vegna Atlantshafs-
ins, er reiði yfir samfélagslegum og
menningarlegum breytingum, sem
nærist á efnahagslegri og félags-
legri óvissu og hnignun. Bandaríska
jaðarhægrið stendur þó vissulega
líka á gömlum merg. Menningar-
stríð síðustu áratuga snérust fyrst
og fremst um reiði íhaldssamra
hvítra kjósenda úr verkalýðs- og
millistétt yfir upplausn samfélags-
mynsturs eftirstríðsáranna, minnk-
andi vægi kristinnar trúar í daglegu
lífi fólks og sigrum kvenréttinda-
hreyfingarinnar og mannréttinda-
baráttu minnihlutahópa. Allt síðan
Dixiekratarnir yfirgáfu Demókrata-
flokkinn hefur Repúblikanaflokk-
urinn líka óspart beitt rasískum
hundaflautum. Upp úr aldamótum
urðu íslamófóbískar hundaflautur
og tal um baráttuna gegn „róttæku
íslam“ sem „krossferð“ fyrir vest-
rænum gildum sömuleiðis æ meira
áberandi.
Sigur Trump, vinsældir Breitbart
fjölmiðlaveldisins og ris jaðarhægr-
isins, hefðu sennilega verið óhugs-
andi ef jarðvegurinn hefði ekki ver-
ið plægður af þáttastjórnendum
Fox News, Rush Limbaugh og lýð-
skrumurum Repúblikanaflokksins,
fólki eins og Söruh Palin og Newt
Gingrich.
Nigel Farage og eitt af kosningaslagorðum Brexit kosninganna, „We want our
country back“, sem endurómar eitt frægasta slagorð teboðshreyfingarinnar. Að
baki kröfunni býr tilfinning um að einhver, eða einhverjir, hafi tekið yfir eða rænt
landinu frá réttbornum þegnum þess.
Milo Yannopoulos, einn af ritstjórum
Breitbart Media og talsmaður Donald
Trump. Yannopoulos var settur í bann
af Twitter í sumar fyrir netníð eftir
að hafa leitt ofsóknir og einelti gegn
leikkonunni Leslie Jones sem leikur
í nýjustu Ghostbusters myndinni, en
Jones hafði unnið sér það eitt til saka
að vera svört og kona.
SVÍNVIRKAR
FYRIR HÓPA
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
ELDHÚSIÐ
ER OPIÐ
11.30–23.30
KJALLARINN á Sæta svíninu er ný og skemmtileg
aðstaða fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum.
KJALLARINN er frábær fyrir alls konar tilefni;
hádegis- eða kvöldverð, veislur, vinnufundi, kokteilboð,
bjórkvöld eða fyrir „Happy Hour“ eftir vinnu.
FYRSTA FLOKKS AÐSTAÐA Í NOTALEGUM SAL
• Sæti fyrir allt 60 manns
– hægt er að taka á móti fleirum í standandi veislu
• Skjávarpi og tjald
• Tilvalið er að koma með eigin tónlist og/eða skemmtiatriði
• Bar
• Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur
Í boði eru fjölbreyttar veitingar; girnilegir hópmatseðlar, spennandi
veitingar fyrir standandi veislur og auðvitað fljótandi veigar.
Við hlökkum til að taka á móti þínum hóp!
GASTROPUB