Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. september 2016 Sjónvarpið hóf út-sendingar 30. septem-ber árið 1966. Savanna tríóið hafði gefið út tvær plötur og var með- al vinsælustu skemmtikrafta Íslands. Þeir félagar í tríóinu, Troels Bendtsen, Björn Georg Björnsson og Þórir Baldursson, voru beðnir um að vera með skemmtiþátt í árdaga Ríkissjón- varpsins. Þátturinn hét „Það er svo margt ef að er gáð“ og var fyrsti skemmtiþáttur Sjónvarpsins. Nýútskrifaður úr MR Björn var aðeins 22 ára og nýskriðinn úr Menntaskólanum í Reykjavík þegar hann tók að sér starf hjá Sjónvarpinu: „Ég var búinn að vera að gera leiktjöld í Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík í 4 ár og þá vor- um við að leika bæði í Iðnó og í Þjóðleikhús- inu og við fengum fína leikstjóra til að vinna með okkur. Þannig að þegar Sjónvarpið var að fara byrja, og ég búinn með stúdentspróf- ið, var hóað í mig til þess að koma og taka að mér að sjá um leikmyndir þar. Það hafði ekk- ert verið hugsað fyrir því, það hafði enginn verið sendur í þjálfun.“ Fyrsta kvöldið Í fyrstu útsendingu Sjónvarpsins ávarp- aði útvarpsstjóri, Vilhjálmur Þ. Gíslason, þjóðina og Halldór Laxness las úr íslensk- um bókmenntum. Það var einnig umræðu- þáttur með forsætisráðherranum um íslensk þjóðmál, erlendur þáttur með íslenskum texta og þáttur Björns og félaga: „Það gekk voðalega vel. Það hafði verið mikill spenningur, allir að bíða eftir að Sjónvarpið færi í loftið. Sumir höfðu enga trú á íslensku sjónvarpi, sögðu að þetta yrði aldrei neitt, aðrir töluðu um að sjónvarp væri lágmenning, að sjónvarp væri ekkert fyrir okkur Íslendinga. Allskonar gagnrýnisraddir heyrðust. Svo náttúrulega um kvöldið, þá voru göturnar auð- ar og allir inni að horfa.“ Svona lýsir Björn fyrsta útsendingarkvöldi Sjónvarpsins. Var fólk stressað? „Jú, jú, en okkar þáttur var tekinn upp áður. Við vorum ekki að syngja í beinni, en auðvit- að var útsendingin bein. Á þessum tíma voru ekki komnar fréttir, þarna var bara allt efnið tekið upp, við sýndir af segulbandi.“ Hvað er Savanna tríóið að gera í dag? „Þórir fluttist út, spilaði lengi í Svíþjóð, Englandi og út um alla Evrópu. Hann var í diskóbylgjunni í Þýskalandi með Donnu Summer og hljóðblandaði plötu með Elton John. Ég var á kafi hjá Sjónvarpinu, Troels í kafi í sinni heildsölu og viðskiptum, og Þórir starfar í útlöndum. Hljómsveitinni var því sjálfhætt, sko. Við erum ennþá í sömu spor- um, ég er ennþá að hanna sýningar og söfn og Troels er í sínu fagi, flytur inn flísar og byggingarefni, og Þórir í tónlist enn þann dag í dag. Við erum allir á fullu og við ætlum hugsan- lega að koma saman og taka lagið í tilefni að 50 ára afmæli Sjónvarpsins. „Það er svo margt ef að er gáð“ Fyrsti skemmtiþáttur sem sýndur var í sjónvarpi á Íslandi, 30. september 1966. Troels Bendtsen, Þórir Baldursson og Björn Björnsson. Fyrsta hljómsveitin í íslensku sjónvarpi Björn Georg Björnsson, meðlimur Savanna tríósins, rifjar upp fyrsta kvöld Sjónvarpsins þar sem þeir félagar í tríóinu voru fyrsta hljómsveitin sem kom fram í íslensku sjónvarpi. Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Björn Georg Björnsson fyrir framan sýningu sem hann hannaði í Sjónvarpshúsinu. Mynd | Rut Heimurinn í kring um Hringa dróttinssögu mynd- irnar hafa alltaf heillað Rúnar Þór Njálsson. Rúnar býr á Blönduósi og hefur því bara séð síðustu myndina í bíó en horfir á myndirnar allar heima, nokkrum sinn- um á ári. Plan Rúnars Þórs Njálssonar á Blönduósi er að safna fyrir ferð til Nýja-Sjálands, heimili Hringa- dróttinssögu myndanna, fyrir sig og aðstoðarfólk sitt. Gollrir og Sómi uppáhald „Ég er ekki viss um að margir séu sammála mér en Gollrir er upp- áhalds karakterinn minn, finnst hann svo magnaður og flókinn karakter. Bæði hann sem karakt- er og öll vinnan á bak við hann. Besta atriðið er samt þegar Fróði, aðalpersóna myndarinnar, er al- veg að gefast upp í lokin og Sómi ber hann upp. Gefur manni alltaf gæsahúð, snýst svo mikið um að gefast ekki upp á vináttunni,“ seg- ir Rúnar um uppáhalds karakt- erinn sinn og eftirminnilegasta atriði myndanna. Alltaf með hringinn um hálsinn Rúnar hefur nýverið komið sér upp safni af varningi úr myndinni: „Ég fann síðu á netinu sem selur varning frá Nýja-Sjálandi frá þeim sem gerðu búninga og fleira fyrir myndirnar. Ég er búinn að kaupa hringinn, sem er gerður alveg eins og í myndinni, og hálsfesti þannig ég er með þetta um hálsinn á hverjum degi.“ Best að hafa nörda ferðafélaga Faðir Rúnars fer með honum í ferðina sem aðstoðarmaður. Hann er ekki mikill aðdáandi myndanna en sjúkraliði Rúnars er mikill Hringadróttins nörd og segist hann vera heppinn að hún fari með því það er mikilvægt að geta rætt áhugamálið við einhvern í ferðinni. „Það eru engin tímatakmörk á söfnuninni. Eftir mikla skipulagn- ingu er markmiðið er að fara snemma 2017. Þetta er meira ves- en að fara fyrir einstakling sem er fatlaður og þau töluðu um að það væri best að fara frá febrúar til maí, að það væri besti tíminn upp á aðstæður að gera.“ | hdó Rúnar með safninu sínu Hann ber hringinn um hálsinn á  hverjum degi. Hringadróttinssögu nörd safnar fyrir ferð til Nýja-Sjálands Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin BelladonnaStærðir 38-58 Nýjar vörur í hverri viku „Þetta er búið að vera á teikniborðinu síðan í mars, svo áttaði ég mig um daginn á því að það fer alveg að líða að þessu. Ég er mjög spennt,“ segir Rikka sem fer í október með kærasta sínum og hópi úr Fjallafélaginu upp í grunnbúðir hæsta fjalls í heimi, Everest. Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Ertu ekki hrædd um að vilja fara bara alla leið upp á topp? „Ég er mjög hrædd við þá tilf- inningu, því maður er með svo mikinn metnað, að ég verði að klára þetta. Þetta er ekki góð tilf- inning því ég held að það sé ekki gott markmið fyrir mig. Toppur- inn er alls ekki fyrir alla.“ Öryggisfíklar og háfjallaveiki Þegar maður planar að fara að rótum hæsta fjalls heims, er mikil vægt að huga að öllum smáatriðum: „Við erum öryggis- fíklar. Það er aldrei gert neitt nema allt sé úthugsað í þaula. Helsta áhyggjuefnið er hvernig líkaminn bregst við andrúmsloft- inu í svona mikilli hæð og það er ekkert sem hægt er að æfa sig fyr- ir. Grunnbúðirnar sem við stefn- um að eru í tæplega 5500 metra hæð.“ Hrista upp í tryggingunum „Þetta er mjög skemmtilegur hópur sem er búinn að vera ganga saman í þó nokkurn tíma. Við erum búin að hittast og undirbúa allskyns hluti sem þarf að huga að fyrir svona ferð. Það þarf að styrkja líkamann, huga að því sem þarf að taka með og passa að það sé ekki of þungt. Við þurfum líka að ganga til skóna og fara í bólu- setningar. Og ef ske kynni að eitt- hvað kæmi fyrir eða maður þyrfti að fara á spítala er ágætt að hrista upp í tryggingunum.“ Rikka hefur mikinn áhuga á að geta sýnt vinum og áhugafólki ferð sína til Nepal og í grunnbúðirnar: „Ég held að það sé fræðandi fyrir fólk að upplifa ferðalög þótt það sé ekki nema í gengum myndir eða texta. Mig langaði helst að gera sjónvarpsþátt um þetta, það væri rosa gaman. Auglýsi hér með eftir upptökumanni sem gæti haldið á kameru alla leið að grunn- búðunum,“ segir Rikka og hlær. Rikka fer í grunnbúðir Everest Rikka stefnir hátt. Hún og kærast-inn ætla að klífa upp í grunnbúðir Everest, hæsta fjalls heims.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.