Fréttatíminn - 02.09.2016, Qupperneq 56
Ljúffengur drykkur
undir mjúkum tónum
Ljúf miðnæturstemning á Matarkjallaranum.
Unnið í samstarfi við
Matarkjallarann
Við erum með góðan, heiðarlegan íslenskan mat, án tilgerðar,“ segir Valtýr Bergmann, einn
eigenda Matarkjallarans, sem
opnaði í vor í einu sögufrægasta
húsi miðbæjarins, Aðalstræti 2,
sem byggt var fyrir 160 árum og
tilheyrir hinni svokölluðu Ingólfs-
naust.
Um helgina mun Matarkjallar-
inn færa út kvíarnar og djassa
staðinn verulega upp um helg-
ar. „Klukkan 11 á föstudags- og
laugardagskvöldum breytist stað-
urinn nú í kokteilkúbb þar sem
áhersla verður lögð á þægilega
stemningu með lifandi tónlist og
góðum ferskum kokteilum,“ segir
Valtýr og bætir við viðtökurn-
ar hafi verið frábærar frá opnun,
bæði við mat og drykk, og von
sé á að kvöldstuðið um helgar
muni falla í kramið hjá unnend-
um ljúfrar tónlistar og ljúffengra
drykkja. „Við erum hér með
dýrindis Bösendorf flygil sem
var smíðaður 1880 í Austurríki,
sögufrægasta flygil á Íslandi. Við
erum með lifandi tónlist á kvöldin
öll kvöld vikunnar. Pálmi Sigur-
hjartar og Kalli Olgeirs hafa mikið
verið hjá okkur og svo tveir ungir
hæfileikaríkir strákar, Steindór
Dan Jensen og Guðmundur Reyn-
ir Gunnarsson.“
Kokteilarnir eru ekki af verri
endanum enda verðlaunabar-
þjónn, Leó Ólafsson, sem stendur
vaktina ásamt fríðu föruneyti.
Kokteilarnir eru bæði sígildir og
framúrstefnulegir í bland. „Við
erum með „Back to basics“ kok-
teila sem eru klassískir kokteil-
ar með nýju „tvisti“, aðeins búið
að „djassa“ þá upp og gera þá
ferskari,“ segir Valtýr. Einnig
eru verðlaunakokteilar á drykkj-
arseðlinum, meðal annars Birki-
dropinn hans Leós sem sigraði
í kokteilakeppni fyrr nokkrum
misserum og var það sú fyrsta
sem hann tók þátt í. Náttúrutalent
þar á ferð í kokteilagerð.
„Slagorðið okkar er matur fyrir
líkamann, tónlist fyrir sálina. Fólk
getur komið og fengið sér drykk
og talað saman án þess að verða
raddlaust. Það verður róleg en
góð stemning í ætt við amerískan
píanóbar.“
Í kvöld verður opnunar partí
frá klukkan 23, djasstríó, ásamt
píanóleikara og jafnvel söng-
konu, spilar ljúfa tóna inn í
nóttina.
…heilsa 8 | amk… FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2016
Það getur verið erfitt að koma
svefninum í réttar skorður eftir
sumarfrí, en best er að gera það í
litlum skrefum.
Nú er sumarfríinu lokið hjá
flestum og skólarnir byrjaðir aftur.
Dagarnir eru farnir að styttast og
það er farið að dimma á kvöldin.
Margir eru samt eflaust enn að
glíma við að koma svefninum í
réttar skorður eftir sumarið, bæði
hjá sér sjálfum og börnunum, því
frjálsræðið er oft meira á sumrin.
Þetta gerist yfirleitt ekki á einni
nóttu og best er að færa svefninn
fram um ákveðinn tíma á hverju
kvöldi þangað til hann kemst í
réttar skorður.
Færið svefninn rólega
Fyrsta skrefið er að taka ákvörðun
um ákveðinn háttatíma sem tekur
mið af aldri barnanna, en mikil-
vægt er að þau fái nægan svefn
svo þeim líði vel yfir daginn. Ef þið
foreldrarnir ákveðið að barnið eigi
að fara í rúmið klukkan 19 þá þarf
að færa sumarháttatímann hægt
og rólega fram. Segjum að oftast
hafi verið farið í háttinn um 20 yfir
sumartímann, þá er fínt að færa
tímann fram um korter á hverju
kvöldi, þangað til nýja tímanum
er náð.
Komið ró á heimilislífið
Gott er að reyna að koma ró á
heimilislífið strax eftir kvöldmat.
Dimma ljósin aðeins ef hægt er,
sem getur reyndar verið erfitt hér
á landi vegna þess hve bjart er
lengi frameftir á haustin. En þá
er um að gera að draga gardínur
fyrir gluggana til að fá smá rökkur.
Reynið að fá börnin í rólega leiki
og ekki leyfa þeim að vera í tölvum
eða horfa á sjónvarp þegar minna
en klukkutími er í háttatíma.
Klukka í hvert herbergi
Til að gera börnin meðvitaðri
um háttatímann er gott að hafa
stafrænar klukkur í öllum her-
bergjum. Þau vita að háttatími er
klukkan 19:00, þó betra sé að hafa
klukkurnar þannig að þau sýni
AM og PM tíma. Þá sýnir klukk-
an 7:00. Það er auðveldara fyrir
yngri börnin að læra það. Fyrir
börn sem eru ekki alveg með tölu-
stafina á hreinu getur verið gott
að líma yfir :00 og skrifa 7 á lím-
miðann. Þá vita börnin að þegar
tölustafirnir eru eins þá er kominn
háttatími.
Hnitmiðuð rútína
Best er að hafa rútínuna fyrir
svefninn frekar stutta og hnitmið-
aða. Hjá yngstu börnunum ætti
þessi rútína ekki að taka lengri
tíma en korter. Að hafa fasta
rútínu á því sem þarf að gera fyrir
svefninn minnkar líkur á að kvíða
bæði hjá börnum og fullorðnum.
Þá vita allir hvaða skref er næst
og minni hætta er á því að börnin
geri uppreisn eða reyni að draga
háttatímann á langinn.
Koma sér saman um reglur
Mikilvægt er allir fullorðnir sem
koma að uppeldi barnsins komi
sér saman um reglur og rútínu,
sérstaklega ef um einhver svefn-
vandamál er að ræða. Staðfesta er
lykilinn að því að laga eða koma
í veg fyrir svefnvandamál og því
verða allir þeir sem koma að upp-
eldinu að vera sáttir og sammála
um það sem gera skal.
Verðlaun fyrir góða hegðun
Ef um einhvers konar svefnvanda-
mál er að ræða eða ef barnið á
erfitt með að fara eftir settum regl-
um varðandi háttatíma og rútínu
fyrir svefninn, getur verið sniðugt
að koma upp límmiða/umbuna-
kerfi. Mikilvægt er samt að taka
bara eina reglu fyrir í einu. Ef
vandamálin eru mörg er ekki væn-
legt til árangurs að ætla sér að tak-
ast á við þau öll á sama tíma. Búðu
til töflu eða dagatal sem hengt
er upp á vegg og fáðu endilega
barnið til að hjálpa þér að skreyta
það. Svo þarf að kaupa límmiða
og lítil verðlaun sem barnið fær
fyrir að standa sig vel. Ef barnið
stendur sig vel þá fær það límmiða
að morgni og að velja sér þau verð-
laun sem standa til boða hverju
sinni. Sýnt hefur verið fram á að
svona hentar mörgum börnum
til takast á við hegðunarvanda-
mál þegar kemur að háttatíma og
svefni.
Komdu svefninum í lag eftir sumarfríið
Gott að sofa Það er fátt leiðinlegra en að standa í baráttu við börnin á hverju kvöldi um að koma sér í rúmið.
Valtýr Bergmann Matarkjallarinn breytist í djassklúbb um helgar þar sem hægt er að njóta
tónlistar og góðra drykkja í þægilegu umhverfi. Mynd | Hari