Fréttatíminn - 02.09.2016, Side 68
alla föstudaga
og laugardaga
„Að ganga með barn og eiga barn, það
breytir manni. Líka að upplifa missi.“
Sólveig Guðmundsdóttir er í viðtali í amk á morgun
Adam Levine þolir ekki Miley Cyrus
Ný sería af The Voice er komin vel af stað og er auðvitað ekki laus við dramatík.
Atli Fannar með
Gísla Marteini
Gísli Marteinn Baldursson
snýr aftur með hinn vinsæla
föstudagsþátt sinn á RÚV í næsta
mánuði, Vikuna. Þátturinn naut
mikilla vinsælda síðasta vetur og
var vinsælasti spjallþáttur
þjóðarinnar. Einhverjar breytingar
verða gerðar á þættinum í vetur
og því er nú hvíslað að Atli Fannar
Bjarkason, ritstjóri Nútímans,
verði fastur álitsgjafi hjá Gísla og
fari yfir fréttir vikunnar.
Talast ekki við Það lítur
allt vel út á yfirborðinu hjá
Adam Levine og Miley Cyrus
en undir niðri kraumar ólga.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Samkvæmt miðlum ytra, blæs köldu
á milli Adam Levine og Miley Cyr-
us en þau eru bæði raddþjálfarar
í þáttaröðinni. „Adam virðist ekki
þola Miley og talar aldrei við hana,
jafnvel þegar engar myndavélar eru
í gangi og vill ekkert með hana hafa.
Hann virðist vera þreyttur á henni
en hún á það til að gjamma fram
í þegar hann er með orðið,“ segir
heimildarmaður RadarOnline.
Samkvæmt þessum heimildar-
manni standa Adam og Alicia Keys,
sem er líka raddþjálfari, saman á
móti Miley. Þau eiga að hafa gert
með sér samkomulag um að láta
ekki neinn úr liði Miley vinna í þess-
ar þáttaröð.
Ný fótboltabók
Þorgríms
Þorgrímur Þráinsson nýtti dvöl
sína með íslenska landsliðinu á
EM í Frakklandi vel. Auk þess
að starfa fyrir og með lands-
liðsmönnunum lagði hann drög
að nýrri barnabók sem kemur út
fyrir jólin. Bókin kallast Henri og
hetjurnar og fjallar um franska
strákinn Henri sem vinnur á hót-
elinu í Annecy þar sem leikmenn
íslenska landsliðsins í fótbolta
dvöldu á meðan þeir tóku þátt í
EM.
Við erum í hjarta borgarinnar
að Þverholti 13. Komdu við í
kaffisopa eða sendu okkur
línu og óskaðu eftir tilboði í
prentverkið þitt, stórt eða
smátt.
MIÐBORGIN