Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016
Tvö mál í gangi út af
„fúlu krækiberjasulli“
Stórleikarinn Ólafur Darri
leikur annað aðalhlutverkið
í mynd sem byggir á skáld-
sögunni Villisumar.
Villisumar verður kvikmynd
Ólafur Darri Ólafsson mun fara með stórt hlutverk
í kvikmynd sem byggir á skáldsögunni Villisumar,
eftir Guðmund Óskarsson sem kom út hjá Forlaginu
í haust. Það er Marteinn Þórsson sem leikstýrir
myndinni.
Guðmundur Óskarsson fékk íslensku bókmennta-
verðlaunin árið 2009 fyrir frumraun sína á ritvellin-
um, en það var skáldsagan Bankster.
Villisumar segir frá unglingspilti sem dvelur eitt
sumar með föður sínum, þekktum listmálara og erf-
iðum í umgengni, í suðrænni borg. Dvölin verður af-
drifarík fyrir þá báða. Áratugum síðar snýr sonurinn
aftur í fylgd uppkominna barna sinna og rifjar upp
þetta einkennilega sumar. Það er franski framleið-
andinn Frozen Frogs sem stendur að myndinni
ásamt íslensku framleiðendunum Tender Lee og
Stór&smá. | þká
Bíó
Dómsmál Heimabrugg úr kræki-
berjum varð tilefni til harkalegra
lögregluaðgerða. Tvö dómsmál
eru í gangi vegna bruggsins.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Þetta er búinn að vera þvílíkur
málarekstur, yfirheyrslur og hús-
leit, út af hálffúlu krækiberjasulli á
plastkútum sem gleymdist í bragga
úti við fjörð á Seyðisfirði, segir Þóra
Bergný Guðmundsdóttir, lykilvitni
lögreglunnar í sérkennilegu brugg-
máli, sem bar vitni í gegnum síma
í héraðsdómi Austurlands í gær, en
aðalmeðferð málsins var í gær.
Þóra Bergný bar vitni í málinu
frá Indlandi en kærastinn hennar,
Þórbergur Torfason, er sakborn-
ingurinn í málinu. Þau eru búsett
á Seyðisfirði þar sem Þóra rekur
farfuglaheimilið Hafölduna. Þóra
býr í Kerala á Indlandi á veturna
en meðan hún var í burtu segist
lögreglustjórinn á staðnum hafa
fengið ábendingu um bruggstarf-
semi í lokuðu herbergi í íbúð Þóru
sem er inn af farfuglaheimilinu.
Þar voru dunkar með gömlu
krækiberjavíni sem Þór-
bergur Torfason, hafði
lagað en síðan gleymt.
Fengin hafði verið leit-
arheimild hjá syni
hennar, Dýra Jóns-
syni, sem var fyrir
tilviljun staddur í
bænum vegna töku
á sjónvarpsseríunni
Ófærð, farið inn og
áfengið gert upptækt.
Samkvæmt lögum
er bannað að brugga
sterkari mjöð en 2,25 prómill.
Bruggið var yfir 10 prómill þegar
það fannst. Í bréfi sem Þóra Bergný
skrifaði ríkissaksóknara, þar sem
hún kvartar yfir aðförum lögreglu,
segir hún meðal annars. „Næsta
dag er sonur minn, Dýri Jónsson,
með tugi manna í vinnu við upp-
tökur á Ófærð, á hafnarsvæð-
inu á Seyðisfirði. Koma
þar aðvífandi þrír
lögreglumenn og
gera honum að yf-
irgefa tökustað og
koma með sér að
Ránargötu 9 þar sem hann gistir.
Biðja þeir hann að skrifa undir
húsleitarheimild sem hann sagðist
hvorki vilja né mega gera en býður
lögreglumönnum að ganga í bæinn
á friðsamlegum nótum, sem þeir
vildu ekki en sögðu honum að ef
hann skrifaði ekki undir heimildina
yrði hann færður fyrir dómara en
það er yfir fjallveg að fara.“
Magnús Þór Eyjólfsson, lögmaður
Þóru, segist ekki þekkja nein dæmi
þess að lögregla geri húsleit og upp-
ræti heimabrugg til eigin nota. Þá
hefur Þóra Bergný einnig höfðað
mál á hendur lögreglustjóranum.
Bruggkútarnir, sem gleymdust úti í
skúr, eru því orðinn efniviður í tvö
dómsmál en lögreglustjórinn var
kærður fyrir ólöglega húsleit og
valdbeitingu.“
Þóra Bergný
Guðmundsdóttir var
lykilvitni í málinu á
síma frá Indlandi.
Hér er hún ásamt
Þórbergi Torfasyni.
Bruggið var í íbúð eiganda farfuglaheimilisins.
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
LED
Mikið úrval vandaðra LED útisería
fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimiliFrá Svíþjóð
VELDU
SEM END
AST
OG ÞÚ SPARA
R
JÓLAL
JÓS
Opið virka daga
kl. 11-18 Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
grillbudin.is
HÁGÆÐA JÓLALJÓS
Meginniðurstaða rannsóknarinnar
er að líf karlanna hefur verið mikil
þrautaganga og þjáning þeirra ristir
enn djúpt. Í flestum tilfellum virð-
ast þeir beina tilfinningum sínum
talsvert út á við sem birtist í því að
þeir leiðast í miklum mæli út í mis-
notkun áfengis og fíkniefna, afbrot
og áhættuhegðun. Sigrún Sigurðar-
dóttir, höfundur rannsóknarinnar,
segist hafa kynnst þessu máli þegar
hún starfaði sem lögreglukona. Ég
kynntist því í gegnum tíðina að
strákar sem komust í kast við lög-
in voru oft með slíka áfallasögu að
baki,“ segir hún. „Karlar eiga erf-
iðara með að opna sig um slíka hluti
og þótt þeir geti í dag leitað hjálpar
frá Stígamótum, Drekaslóð og Afl-
inu gera þeir það í undantekningar-
tilfellum. Hluti þeirra er á Litla-
-Hrauni eða í bullandi neyslu eða
hefur framið sjálfsmorð, þeir eiga
erfiðara með að biðja um hjálp en
einn af hverjum sex karlmönnum á
slíkt áfall að baki.“
Viðmælendur Sigrúnar voru sjö
karlar á aldursbilinu 30-65 ára
þegar viðtölin voru tekin en milli 4
og 12 ára þegar þeir urðu fyrir kyn-
ferðisofbeldi. „Þeir telja mikilvægt
að vinna með áföllin til að fá frelsi
frá þjáningunni, komast í tengsl við
tilfinningar sínar og mynda dýpri
tengsl við aðra og læra að lifa með
þessari skelfilegu reynslu,“ segir
Sigrún.
Allir þjáðust þeir af þunglyndi en
enginn hafði fengið viðeigandi hjálp
frá samfélaginu. Ofbeldið varð þeim
mikið áfall og snerti þá og ástvini
þeirra djúpt. Þeir stríddu við allir
við mikið þunglyndi, áfengisvanda
og voru þjakaðir af geðrænum og
félagslegum vandamálum.
Rannsóknin er birt á Skemmunni
en Sigríður Halldórsdóttur var leið-
beinandi Sigrúnar hjá Félags- og
mannvísindadeild Háskóla Íslands.
Afbrotastrákar hafa oft lent í kynferðisofbeldi
Velferð Sjö íslenskir karlmenn
sem sættu kynferðisofbeldi í æsku
glímdu allir við mikla vanlíðan og
sjálfsvígshugsanir á fullorðinsár-
um, Þessu fylgdi lítil sjálfsvirðing,
lítið sjálfstraust og reiði. Einn
viðmælandi í nýrri rannsókn
segist hafa beint haglabyssu að
höfði gerandans meðan hann
svaf. Rannsóknin ber heitið Djúp
og viðvarandi þjáning: Reynsla
íslenskra karla af áhrifum kyn-
ferðislegs ofbeldis í æsku.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Sigrún vann sem lög-
reglukona þegar hún fékk
áhuga á málefninu.
Stjórnmál Arnþrúður Karlsdóttir
spáði því fyrir löngu að Donald
Trump yrði forseti Bandaríkj-
anna. Hún segir menn hafa van-
metið grasrótina.
„Ég held að hann verði feikilega
góður forseti,“ segir útvarpskon-
an Arnþrúður Karlsdóttir, sem er
líklega einn af örfáum fjölmiðla-
mönnum í heiminum sem spáði
Donald Trump sigri. Þá spáðu
hlustendur útvarpsstöðvarinnar
að Trump myndi sigra andstæðing
sinn, Hillary Clinton, í óvísindalegri
skoðanakönnun stöðvarinnar, sem
var þar með réttari en flestar kann-
anir vestanhafs.
„Ég var búin að segja lengi að
Trump myndi vinna og þá sérstak-
lega þegar ég sá áherslur Hillary
Clinton,“ segir Arnþrúður sem bæt-
ir við að kjósendur hafi kosið mann
sem þeir treystu til þess að hrista
upp í kerfinu. Hillary hafi ekki verið
sá frambjóðandi.
Spurð hvað hún telji að hafi
valdið því að fjölmiðlar höfðu svo
rangt fyrir sér varðandi vinsældir
Trump, þá stendur ekki á svarinu:
„Grasrótin var stórlega vanmetin.“
Arnþrúður útskýrir að Hillary
hafi treyst á margan hátt stóru fjöl-
miðlunum sem ræddu sjaldan við
hinn vinnandi mann. Því mynd-
aðist skekkja í fjölmiðlum um að
Clinton væri líklegri frambjóðandi
til þess að sigra.
„Sá sem kaus Trump var hinn
venjulegi maður sem var í sinni
vinnu en hefur ekki úr nægu að
moða. Hann er óánægður með fjár-
málaelítuna og stjórnmálaelítuna,
auk þess sem þeir eru andvígir
þessu tilgangslausa stríðsbrölti,“
segir Arnþrúður.
Spurð hverskonar forseti hún
telji að Trump verði svarar hún:
„Ég held að hann eigi eftir að verða
tímamótaforseti og eigi eftir að
hafa áhrif langt út fyrir Bandaríkin,
meðal annars á strauma og stefnur
í Evrópu.“ | vg
„Donald Trump verður
tímamótaforseti“
Arnþrúður Karlsdóttir er einn af örfáum fjölmiðlamönnum sem spáði fyrir um
sigur Donald Trump.