Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 42
Bandaríska gamandramað This
is Us hefur algerlega gripið mig.
Búin að horfa á alla þættina enda
auðvelt þegar þeir koma til lands-
ins degi eftir frumsýningu vestra.
Svo eru föstudagskvöldin frátekin
fyrir The Voice.
Ég fagna framhaldinu af Youn-
ger, um fertugu fyrrum ritstýru
tískutímarits sem feikaði aldur-
inn fyrir framann. Fyrsta sería
Chasing Life er frá og April aftur
á leið í lyfjameðferð í þeirri næstu,
sem er rétt ókomin.
Uppáhaldsþáttur síðustu ára
er The Vikings og erfitt að vita
af þáttaröð ósýndri á RÚV – rétt
eins og nýrri Indian Summers ser-
íu og framhaldi danska spennu-
þáttarins Bedrag. Koma svo!
Hef ekki náð að festast við
Mr. Robot, Scandal eða Game of
Thrones – enda eyði ég frekar
tímanum í Poldark á RÚV, Grand
Design Australia á Stöð 2 eða vin
minn James Corden í Sjónvarpi
Símans. Setti punktinn við Jane
The Virgin eftir um fimmtíu þætti
og hún enn jómfrú enda nýir
þættir eftir sömu framleiðendur,
No Tomorrow, í boði. Búin að sjá
þrjá fyrstu sem lofa góðu.
Fylgist enn með Grey's
Anatomy en aðeins með Tíma-
flakki svo spóla megi yfir skurð-
aðgerðirnar. Að endingu vil ég
þakka fyrir Leitina að upprunan-
um. Mikil snilld, frábært sjónvarp.
Sófakartaflan
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans
Spólar yfir skurðaðgerðirnar í Grey's Anatomy
Gunnhildur Arna tekur vaktina í sjónvarpssófanum af fullri alvöru.
Atorkusöm Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir er búin að horfa
á alla þættina af This is Us og
sitthvað fleira en er búin að
gefast upp á Jane the Virgin.
Skrifaði skáldsögu á
fyrsta ári í læknisfræði
Hildur Sif gat ekki annað en ráðist í gerð skáldsögu eftir að hafa heyrt
af fyrrverandi kærustu vinar síns sem vildi meina að hún væri vampíra.
Nóg að gera Hildur viðurkennir að það hafi verið strembið að setja saman skáldsögu með námi í læknisfræði og annarri vinnu.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Það getur stundum verið svolítið erfitt að púsla þessu öllu saman, en ég djamma til dæmis aldrei. Ég er mjög dug-
leg að sitja bara við og vinna. Ég er
líka mjög fljót að skrifa á tölvuna
sem hjálpar mikið,“ segir Hildur
Sif Thorarensen sem sendir frá
sér sína fyrstu skáldsögu, Einfara,
núna fyrir jólin. En það er óhætt að
segja að Hildur hafi í mörg horn að
líta, því hún stundar einnig nám í
læknisfræði við Háskólann í Osló,
ásamt því að vinna 30 prósent
vinnu með skólanum.
Samband með meintri vampíru
Hún hóf nám í læknisfræðinni um
síðustu áramót, en ákvað frekar að
nýta haustönnina á undan í að læra
norsku, svo hún stæði betur að
vígi í náminu. Og þar sem hún sat
niðursokkin í bækurnar og strikaði
undir norsk fræðiorð af miklum
móð byrjaði vinur hennar að tala
við hana á facebook. „Af einhverj-
um ástæðum þróaðist samtalið
út að hann fór að segja mér frá
einkennilegum ástarsamböndum
sem hann hafði átt í, þar á meðal
við franska stelpu af kaþólskum
ættum sem vildi meina að hún væri
vampíra. Hún bjó kjallaraíbúð sem
var eins og dýflissa og veggirnir
klæddir með flaueli. Þá var hún
með dúkkuhausa í formalínkrukk-
um, átti tvo snáka, og síðast en ekki
síst þá hafði hún látið smíða neðan
á augntennurnar sínar þannig þær
voru eins og vígtennur.“
Lýsingin á þessari frönsku stúlku
vakti eðlilega athygli Hildar og
þegar samtalinu lauk þá stóð á val
hennar á milli þess að halda áfram
að lesa tölfræði í læknisfræði á
norsku, eða gera eitthvað við þessa
persónu sem hún sá strax ljóslif-
andi fyrir sér. Hildur valdi síðari
kostinn. „Ég hugsaði með mér að
nú léti ég verða af því að skrifa
þessu spennusögu sem ég hafði
ætlað mér að skrifa mjög lengi. Og
fyrst þessi stúlka var komin inn í
bókina þá fannst mér ég verða að
hafa vin minn með líka, og eins
og sönnum vini sæmir þá drep ég
hann í fyrsta kafla og svo byrjar
bókin,“ segir Hildur og hlær. En
bókina skrifaði hún síðasta haust
og meðfram læknisfræðinni og
vinnunni á vorönninni.
Hildur segir bókina ekki
byggða upp á hefðbundinn hátt
heldur er annar hver kafli skrif-
aður út frá mismunandi sjón-
arhornum. „Ég leik mér svolítið í
köflunum sem eru á sléttum tölum
en oddatölukaflarnir fylgja rann-
sókninni á morðinu eftir,“ útskýrir
Hildur. „Ég hafði pínu áhyggjur af
því að þetta gæti orðið ruglingslegt
en þeir sem hafa lesið bókina segja
það alls ekki vera svo. Þeir segja
að það sé ekkert mál að fylgja
söguþræðinum eftir, enda eru
sjónarhornin sem ég sýni hverj-
um tímapunkti fyrir sig alltaf mjög
viðeigandi.“
Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta
bók Hildar þá hefur hún alltaf
haft unun af því að skrifa og hefur
gert mikið af því í gegnum tíðina.
Raungreinar hafa reyndar líka
alltaf legið vel fyrir henni og því
ákvað hún að sníða háskólanám-
ið sitt að því, en hún er með BSc
gráðu í tölvunarfræði og meistara-
gráðu í verkfræði. Meðan á verk-
fræðináminu stóð tók hún hins
vegar nokkra áfanga í ritlist ásamt
því að taka námskeið í skrifum á
kvikmyndahandritum, þá hefur
hún starfað við þýðingar í hjáverk-
um. „Ég hef alltaf verið mikið við-
loðandi texta og ég var blaðamað-
ur á Fréttum í Vestmannaeyjum
árið 2007. Ég hef sóst í að vinna
með texta. Ég byrjaði í raun fyrst
að skrifa sakamálasögu fyrir ein-
hverjum árum síðan og var komin
með tíu kafla en fannst hún ekki
vera að þróast nógu vel, ég hætti
því hana. Ég hélt að ég myndi
gera það sama núna, að ég myndi
byrja að skrifa einhverja kafla og
svo hætta, en bókin spilaðist svo
skemmtilega að ég gat ekki hætt
að skrifa.“
Vinirnir fá Playboy blöð
Hin 19 ára gamla Kylie Jenner býr líklega
betur en flestir aðrir jafnaldrar hennar, en
hún ákvað að gefa snapchat-fylgjendum
sínum smá innlit í villuna sína í vikunni.
Hún virðist ekki óttast innbrotsþjófa, þrátt
fyrir að Kim Kardashian, systir hennar, hafi
orðið fyrir barðinu á nokkrum slíkum á
hótelherbergi sínu í París á dögunum.
Heimili Kylie er að sjálfsögðu hið
glæsilegasta en þar má meðal annars
finna sérstakt herbergi fyrir vini
kærasta hennar með stæðum af göml-
um Playboy blöðum. Hundarnir henn-
ar tveir hafa það líka ansi náðugt með
sinn eigin arin.
Ætlar að sanna ofbeldi
Angelina Jolie ætlar sér að sanna að Brad
Pitt hafi beitt að minnsta kosti eitt barna
þeirra ofbeldi og hún er viss um að dómarinn
í forræðismáli þeirra muni trúa henni og
takmarka umgengni hans við börn-
in. Angelina hefur krafist þess að fá
fullt forræði yfir börnunum þeirra sex,
en Brad er ekki sáttur við það og vill
sameiginlegt forræði. Angelina vill
hins vegar meina að það geti stofnað
börnunum í hættu og ef hann lætur
ekki af þessari kröfu hyggst hún
leggja fram gögn sem þykja sanna
að hann hafi beitt börnin ofbeldi.
Mega ekki fljúga í kringum Trump
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að Dona-
ld Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna í vikunni,
og þóttu það ansi óvænt úrslit. Trump sem lét ýmis
óviðurkvæmileg ummæli falla í kosningabarátt-
unni, meðal annars um konur og minnihlutahópa,
tekur við embættinu í janúar næstkomandi en
vegna sterkra viðbragða við kjöri hans fær hann
sérstaka vernd fram að því, og hefur flugmönnum
til að mynda verið bannað að fljúga í ákveðnum
radíus við heimili hans og vinnustað.
…fólk 2 | amk… Föstudagur 11. nóvember 2016