Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 56
alla föstudaga Elskar alla Körfuboltastjarnan LeBron James var mikill stuðningsmaður Hillary Clinton og segist ætla að elska allar konur og minnihlutahópa, fyrst Donald Trump gerir það ekki. Það er kannski huggun harmi gegn fyrir einhverja. Rokkaðri útgáfa af Sprengisandi Sigurjón M. Egilsson með nýjan útvarpsþátt. Casper í heimsókn Danski gamanleikarinn Casper Christensen heimsótti Ísland í síðustu viku. Casper hefur margoft komið hingað, bæði í frí og til að vinna með félaga sín- um úr Klovn, Frank Hvam, en að þessu sinni var hann í fríi með dóttur sinni. Þau heimsóttu meðal annars Bláa lónið og fóru í hvala- skoðunarferð auk þess sem þau snæddu á Gráa kettinum og Kol. Þá skellti Casper sér út á lífið og til hans sást meðal annars á Öl- stofu Kormáks og Skjaldar. Hann lauk svo ferðinni með að versla hlý föt á væntanlegt barn sitt í 66° norður. Skuggahöfundur vinstri grænna Auglýsingar Vinstri grænna fyrir nýafstaðnar alþingiskosn- ingar vöktu mikla athygli. Lista- maðurinn Ragnar Kjartansson fór mikinn í auglýsingunum; annars vegar þar sem hann blandaði kokteil fyrir sig og Katrínu Jak- obsdóttur og hins þegar þar sem hann talaði um mikilvægi lista og menningar á meðan nakin kona með hesthaus makaði lit á vegg í bakgrunni. Hugmyndasmið- ur auglýsinganna, ásamt Ragnari, mun vera rappar- inn og grínistinn Dóri DNA en hann vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Hann vildi enn síður staðfesta að hafa sjálf- ur sprangað nakinn um í áðurnefndri gjörningaaug- lýsingu. Nýr þáttur Sigurjón M. Egilsson stýrir nýjum útvarpsþætti í útvarpi Hring- brautar á laugardagsmorgnum. Sigurjón M. Egilsson byrjar á laugardaginn með nýjan útvarps- þátt í útvarpi Hringbrautar. Þáttur- inn verður á dagskrá alla laugar- dagsmorgna milli klukkan tíu og tólf. „Þátturinn verður svipaður Sprengisandi meðan ég stýrði þeim þætti, nema að ég ætla að skipta upp um einn gír eða jafnvel tvo. Verða aðeins rokkaðri. Ég hlakka mikið til,“ segir Sigurjón, en fyrsti laugardagsþátturinn verður á laugardaginn kemur. Að auki verður Sigurjón með hálftíma langa þætti milli hálf eitt og eitt mánudaga til fimmtudaga. Áfram verður Sigurjón með Þjóð- braut í sjónvarpi Hringbrautar. „Það er eftirspurn,“ sagði hann. Ég leiði blinda um braut sem þeir rata ekki, læt þá ganga vegi sem þeir þekkja ekki, ég geri myrkrið fyrir augum þeirra að birtu. www.versdagsins.is Stórsöngvararnir Gissur Páll, Elmar Gilbertsson, Valgerður Guðna og Oddur Arnþór Jónsson eru Óperudraugar á áramótum en söngvararnir blása til sannkallaðra hátíðartónleika í Hörpu um áramótin. Óperudraugarnir koma fram ásamt strengjasveit og píanóleikaranum Óskari Einarssyni, tónlistarstjóra. Óperudraugarnir munu syngja uppáhalds sönglögin sín og aríurnar á tónleikunum. Algjörlega ógleymanleg kvöldstund. Fullkomin jólagjöf fyrir tónlistarunnendur. Sýningar: 29. desember kl. 20.00 30. desember kl. 20.00 1. janúar kl.17.00 Miðasala er hafin á harpa.is og tix.is Miðasölusími 528 5050 kynnir:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.