Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 11.11.2016, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016 á samfélagsmiðlunum, en hún sjálf mjög virk á Facebook, er það allt einhver glansmynd? „Allir gefa einhverja ákveðna mynd af sér á Facebook og mér finnst skemmtilegt að skemmta fólki þannig að ég geri það á með- an aðrir eru meira að láta sig þjóð- félagsmálin varða og æsa sig yfir Bjarna Ben. Ég sé alltaf eitthvað fyndið við þessi mál og pósta því. Ég er samt auðvitað pólitísk og finnst eiginlega allt vera pólitík. Það er líka pólitísk afstaða að vera sós- íalrealisti í ljóðunum mínum. Þessi jákvæðniáróður fer alveg hræði- lega í taugarnar á mér stundum. Auðvitað eigum við öll að vera já- kvæð en það bætir samt ekki neitt. Höldum bara löppunum á jörðinni og slökum aðeins á. Jákvæðnin byggir svo mikið á kapítalisma; all- ir eiga að kaupa sér núvitundar- námskeið í staðinn fyrir að slaka bara á eða ekki. Leyfa sér að vera eins og þú ert, fólk má alveg vera á sínum bömmerum í friði. Varð- andi pólitíkina þá er það auðvitað líka pólitísk afstaða að skrifa ljóð og barnabækur, maður er á jaðrinum, það hentar mér miklu betur. Ég er engin Sofi Oksanen og gæti aldrei sagt eitthvað pólitískt með hárinu á mér og fötunum. Mér leiðist líka að taka lífinu eins og keppni. Það er svo vonlaust, við töpum öll og deyj- um á endanum. Það vinnur enginn í lífinu og ef þú ætlar að vinna þá tapar einhver annar.“ Þórdís skrifar líka mjög mikið um samskipti kynjanna og þær lýsingar eru ekki beint í anda rauðra ástar- sagna. Eru slík samskipti kannski bara ein keppnisgreinin í viðbót? „Ég veit það ekki. Samskipti eru svo skemmtileg en eru oft gerð of flókin. Það er alltof mikið af regl- um í gangi. Mér finnst yngra fólk miklu betra í samskiptum heldur en mín kynslóð. Það er búið á slaka á öllum þessum reglum hvað má og hvað má ekki í nánum samskipt- um. Mér finnst smáborgaraskapur- inn vera að minnka. Fólk kemur til dæmis ekkert endilega út úr skápn- um lengur, það er bara með þeim sem því sýnist burtséð frá kyni. Mér finnst það frábært.“ Eiga að vera krútttýpur Það eru líka ýmsar óskráðar reglur í gangi um hvernig skáld eigi að vera og hegða sér, er það ekki? „Jú, jú. Barnabókahöfundar eiga til dæmis að vera svona krútttýpur, fórnfús góðmenni sem tala krúttlega við börnin. Barnabækur eru ekki tekn- ar alvarlega sem bókmenntir og þá finnst mörgum maður hljóti að vera voða góð manneskja að nenna að skrifa þær þar sem maður græðir augljóslega ekki neitt á þeim. Ljóð- skáld mega náttúrulega vera mjög skrýtin eða þá – að því er sumum finnst – einhvers konar sjáendur sem skrifa eitthvað gáfulegt og full- komið sem hægt er að nota í minn- ingargreinar.“ Þórdís hefur orð á sér fyr- ir að vera mjög kaldhæðin, bæði persónulega og í ljóðum sínum, en hún segist ekki skilja hvaðan sá stimpill sé kominn. „Mér finnst ég ekkert svo kaldhæðin en kannski er ég það bara. Ég held þetta sé einhver húmor sem ég tileinkað mér án þess að taka eftir því. Fólk túlkar það líka oft sem kaldhæðni þegar maður segir hlutina eins og þeir eru. Það er orðið dálítið slæmt ef maður má ekki segja það sem manni finnst. Það er orðið eitthvað öfugsnúið.“ Síðasti kaflinn í Óvissustigi lýsir fólki á bekk sem er að tala um erf- iðar aðstæður sem það hefur lent í, á það fólk sér raunverulegar fyr- irmyndir? „Þetta er auðvitað fólk sem ég bý til en stundum kveikir ein og ein setning sem ég heyri ein- hvern segja hugmynd sem ég síðan vef utan um. Margir þykjast reynd- ar þekkja sjálfa sig eða aðra í þessu fólki þannig að kannski er ég bara að túlka eitthvað sammannlegt, fólk með alls konar fóbíur og vanda- mál. Við erum öll einhvers staðar á þeim mörkum, er það ekki?“ Sósíalrealisminn er í ljóðunum Ljóðabækur lenda sjaldan inn á metsölulistum, upplögin eru lítil og sjaldgæft að þær séu endurprent- aðar. Það virðist þó aðeins vera að breytast, bækur Þórdísar hafa til dæmis allar verið endurprentað- ar, sumar oftar en einu sinni. Hvað er það sem hún hefur sem höfðar svona mikið til fólks? „Ég veit það ekki. Þetta er dálítið öðruvísi en það sem fólki finnst að séu týpísk ljóð og ég hef fengið mikið af viðbrögðum frá menntaskólanemum sem segja að þeim hafi alltaf þótt ljóð leiðin- leg en finnist þetta skemmtilegt. Svo er þetta kannski líka að breyt- ast. Krakkar í grunnskólum eru til dæmis farnir að lesa meira af nú- tímaljóðum. Ég held líka að ljóðin mín séu kannski líkari skandinav- ískum ljóðum frá áttunda og níunda áratugnum. Ísland er alltaf í dálítið skökku perspektívi. Þannig að ég held að mörgum konum á mínum aldri, sem lásu Mörtu Tikkanen og Vitu Anderson ungar, finnist ljóðin mín tala til sín. Ég hef fengið mjög mikil viðbrögð, sem hafa stundum gert mig frekar hissa. Kannski sakn- ar fólk sósíalrealismans úr skáld- sögum samtímans og finna hann þarna. Það er mjög margt smart og óvenjulegt að gerast í ljóðagerð og ég er ekki frá því að ljóðin núna séu í meiri tengslum við það sem er að gerast í samfélaginu heldur en skáldsögurnar. Þetta tímabil í ljóða- gerð mun fara í bókmenntasöguna, ég er alveg viss um það. Maður finn- ur líka að þótt það sé lítill hópur sem les ljóð, þannig séð, þá er sá hópur rosalega áhugasamur. Það finnst mér skemmtilegt og er mjög þakklát fyrir það.“ „Mér finnst ég ekkert svo kaldhæðin en kannski er ég það bara. Ég held þetta sé einhver húmor sem ég tileinkað mér án þess að taka eftir því.“ Metsölulisti Eymundsson Barnabækur - vika 44 1. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur - vika 44 2. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur - vika 44 4. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur - vika 44 5. METSÖLU- BÆKUR www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 „Mér finnst ég ekkert svo kaldhæðin en kannski er ég það bara.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.