Fréttatíminn - 11.11.2016, Page 4
Illugi sagði frá því
í fjölmiðlum í fyrra
að um vinargreiða
hefði verið að ræða
þegar Haukur keypti
íbúðina á Ránargötu
af honum.
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016
Prestur lagður í
einelti – samskipti við
brúðhjón áframsend
Séra Skírnir Garðarsson segist hafa verið lagður í einelti í Lágafellssókn. Mynd | Hari
Þjóðkirkjan Séra Skírnir Garðars
son hafði betur gegn þeim Ragn
heiði Jónsdóttur, sóknarpresti
í Lágafellssókn í Mosfellsbæ, og
Hreiðari Erni Zoëga Stefánssyni,
framkvæmdastjóra sóknarinnar,
hjá úrskurðarnefnd Þjóðkirkj
unnar. Skírnir segir málið í raun
snúast um einelti. Þá hefur sóknin
afneitað honum algjörlega.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Skírnir kvartaði undan þeim Ragn
heiði og Hreiðari til Vinnueftirlits
ins á síðasta ári, þar sem hann sak
aði þau um einelti. Niðurstaðan var
sú, eftir sameiginlega fundi með sál
fræðingi á vegum Vinnumálastofn
unnar, að hann var færður til í starfi.
Ragnheiður var einnig færð til í starfi
um tíma, en snéri aftur sem sóknar
prestur í sömu sókn tveimur mánuð
um síðar. Skírnir var aftur á móti
gerður að héraðspresti og hefur ver
kefnum hans snarfækkað síðan þá.
„Þetta er búið að vera sorgarferli
fyrir mig,“ segir séra Skírnir en
birtingarmynd samskiptavandans
virðist hafa verið kvörtun eins af
sóknarbörnunum frá árinu 2013.
Sóknarbarnið sótti um aðstoð hjá
kirkjunni og varð til þess að Skírn
ir hafði samband við félagsmála
fulltrúa bæjarins. Í stuttu máli var
Skírnir ekki brotlegur við lög um
persónuvernd, en honum þótti súrt
í broti að hann var ekki upplýstur
umsvifalaust um kvörtunina og gat
því ekki varið hendur sínar. Um það
snérist úrskurður úrskurðarnefndar
Þjóðkirkjunnar þar sem það er stað
fest að það hafi verið aðfinnsluvert
af hálfu Ragnheiðar og Hreiðars að
Skírnir var ekki látinn vita tafarlaust
um kvörtunina. Eins þótti það að
finnsluvert hvernig þau Ragnheiður
og Hreiðar brugðust við kvörtuninni.
En málinu lýkur ekki þar, að sögn
Skírnis. „Við tók mjög einkenni
leg aðför að mér, meðal annars var
ég rægður ítrekað og tölvupóstar í
minni eigu voru áframsendir til bisk
upsstofu,“ útskýrir Skírnir.
Hann kvartaði undan Ragnheiði
og Hreiðari til Persónuverndar og
sakar þau um að hafa rofið trúnað
með því að áframsenda tölvupósta
sína til starfsmanna Biskupsstofu.
Þar á meðal samskipti sín við tilvon
andi brúðhjón. Það mál er til með
ferðar hjá Persónuvernd, að sögn
Skírnis.
Skírnir segir málið hafa leg
ið þungt á sér, og meðal annars
orðið til þess að hann hafi ekki að
eins orðið fyrir tekjumissi, heldur
einnig mannorðshnekki. Þá hefur
málið tekið á taugarnar en stjórn
Lágafellssóknar lýsti því yfir við
hann að sóknin myndi aldrei ræða
við hann aftur.
„Það þótti mér nú heldur sér
stakt,“ segir Skírnir en lítið sem
ekkert hefur verið að gera hjá hon
um við embættisverkin frá því hann
var færður til í starfi.
Ragnheiður segir í samtali við
Fréttatímann að hún kannist ekki
við kvörtun Skírnis til Persónu
verndar tengdri tölvupóstunum.
Þá telur hún deilunum lokið, í það
minnsta að hálfu Lágafellssóknar.
Ekki er ljóst hvort niðurstöðu úr
skurðarnefndar verður áfrýjað.
Það getur borgað sig að gera
verðsamanburð.
Munar 20 þúsund á Lego
Neytendur Það munar fimm
tán þúsund krónum á verði á
kassa af Legokubbum í tveim
ur verslunum í Reykjavík.
Í Hagkaup kostar þessi Lego
kassi 26.999 íslenskar krón
ur, í ToysRus á Íslandi er hann
venjulega á 19.999 krónur en er
núna á tilboði á 11.999 krónur.
Jóhanna Ýr Ólafsdóttir, sem
er á leiðinni til Glasgow til
að kaupa inn jólagjafir, segir
ferðina margborga sig. Þar rak
hún augun í Lego kassann góða
á vefsíðu Tesco, þar sem hann
kostar 44,99 pund sem á gengi
dagsins eru 6.167 krónur. Þar
munar því 20 þúsund krónum.
| þká
Bíó Í kvikmyndinni Mihkel, sem
Ari Alexander hyggst gera eftir
líkfundarmálinu frá árinu 2004,
fara þeir Tómas Lemarquis og Atli
Rafn Sigurðsson með hlutverk
sem minna lauslega á Jónas Inga
Ragnarsson og Grétar Sigurðsson.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Upptökur á kvikmyndinni Mihkel,
eftir Ara Alexander Erigs Magnús
son, hefjast á mánudag. Myndin
byggir að hluta til á einu umtalað
asta sakamáli síðari ára; þegar Lithá
inn Vaidas Jucevicius kom til Íslands
með gríðarlegt magn af metam
fetamíni innvortis. Þeir Jónas Ingi
Ragnarsson, Grétar Sigurðsson og
Tomas Malakauskas höfðu skipulagt
smyglið ásamt eiturlyfjahring í Lit
háen. Þeir fóru með Vaidas í íbúðar
húsnæði í Kópavogi þar sem hann
veiktist heiftarlega og lést fjórum
dögum síðar. Í Mihkel mun Atli Rafn
leika karakterinn Jóhann sem minn
ir á Jónas Inga og Tómas leikur Bóbó
sem minnir á Grétar.
Í stað þess að leita til lögreglu
brugðu mennirnir á það ráð að vefja
líkinu í plastpoka og keyra á Djúpa
vog, þar sem þeir urðu veðurtepptir
í tvo daga með líkið í skottinu. Því
næst óku þeir til Norðfjarðar, heima
byggðar Grétars, þar sem Grétar
beið þeirra. Til stóð að grafa líkið
en vegna frosta ákváðu mennirnir
að henda því í sjóinn. Þremur dög
um síðar fann kafari lík Vaidasar fyr
ir tilviljun.
Þeir Jónas Ingi, Grétar og Tom
as voru síðar dæmdir í fang elsi fyr
ir inn flutn ing á fíkni efn um, fyrir
að koma Vai dasi ekki til aðstoðar í
neyð og fyrir illa með ferð á lík inu.
Jónas komst aftur í frétt irnar árið
2010 þegar hann var dæmdur í tíu
ára fang elsi fyrir að setja upp, í sam
starfi við aðra, eina full komn ustu
amfetamín verk smiðju sem fund ist
hefur hér lend is.
Í kvikmyndinni fer Paaru Oja
með hlutverk Vaidasar, sem nefn
ist Mihkel og Kasper Velberg með
hlutverk Tomasar. Framleiðendur
eru Friðrik Þór Friðriksson, Kristinn
Þórðarson og Leifur B. Dagfinnsson
hjá True North.
Atli Rafn og Tómas
verða Grétar og Jónas
Paaru Oja lekur Vaidas, Atli Rafn leikur Jónas Inga, Ari Alexander er leikstjóri,
Tómas leikur Grétar og Kasper leikur Tomas.
Vaidas Jucevicius, Jónas Ingi
Ragnarsson og Grétar Sigurðsson
Netverð á mann frá kr. 66.995 m.v. 2 fullorðna í
gistingu. 2. janúar í 9 nætur.Jólapakki
Gran Canaria
& Tenerife
Gefðu jólapakka
í vetrarsól
Frá kr.
66.995 Bókanlegt
til 24. des.
Brottfarir
2. janúar til
24. mars
Íbúðin úr Orku Energy-
málinu verður gistiheimili
Eignarhaldsfélagið OG Capital
ehf. hefur selt íbúðina á Ránar
götu sem áður var í eigu Illuga
Gunnarssonar, fráfarandi þing
manns og menntamálaráðherra.
Eigandi félagsins er Haukur
Harðarson, stjórnarformaður
fyrirtækisins sem áður hét Orka
Energy, en sem í dag kallast Arctic
Green Energy.
Nýr eigandi eignarhaldsfélag
ið Ránargata 8 ehf. rekur hótel í
næsta húsi og líklega er ætlunin
að sameina íbúð Illuga inn í gisti
heimilið.
Kaupverðið var 60 milljónir
króna.
Íbúðin var til umfjöllunar í fjöl
miðlum vorið 2015 og mánuðina
þar á eftir þegar upp komst að
Haukur hafði keypt íbúðina og
eignarhaldsfélag Illuga, OG Capital
ehf., af honum um vorið 2014. | ifv
Þjóðhagsmál Fjölgun ferðamanna
skapaði meira en helming allra
nýrra starfa á Íslandi síðasta árið.
Alls fjölgaði störfum um 6.300
en af þeim urðu 3.800 til innan
ferðamannaþjónustunnar. Nú
starfa rúmlega 25 þúsund manns
við ferðaþjónustu á Íslandi, álíka
margir og starfa við verslun.
Samkvæmt Hagstofu Íslands hefur
orðið gríðarleg fjölgun starfsmanna
hjá starfsmannaleigum. Þeir voru
aðeins um 100 fyrir ári en voru
orðnir 800 í haust. Þrátt fyrir fjölg
unina er aðeins einn starfsleigu
starfsmaður á móti hverjum 225
launþegum sem ráðnir eru beint til
fyrirtækja. Þetta hlutfall var hins
vegar aðeins 1750 fyrir ári.
Fyrir utan gríðarlegan vöxt inn
an ferðaþjónustunnar er mestur
vöxtur innan greina sem fjölg
un ferðamanna hefur haft áhrif
á; byggingarstarfsemi og verslun.
Starfsfólki í byggingaiðnaði fjölgaði
um 1200 manns frá haustinu 2015
til síðasta haust og fjölgun í verslun
var 1.100 manns.
Á sama tíma fækkaði fólki mest
í því sem flokkað er sem opinbera
stjórnsýslu og fræðslustarfsemi.| gse
Túristar búa til störf
Efnahagsundrið á Íslandi má fyrst og
síðast rekja til ferðamannsins. Hann er
maður ársins á Íslandi.