Fréttatíminn - 11.11.2016, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016
Panamaskjölin Hreiðar Már Sig-
urðsson stofnaði eignarhaldsfélag
á Tortólu eftir hrun. Er í eigna-
stýringu hjá fyrirtæki í Sviss.
Eiginkona hans og eiginkona
Sigurðar Einarssonar eignuðust
félagið eftir Al Thani dóminn.
Fyrirtækið á Tortólu er ennþá
virkt og á eignir í Evrópu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.s
Hreiðar Már Sigurðsson, fjárfestir
og fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
stofnaði eignarhaldsfélag í skatta-
skjólinu Tortólu árið 2010 og færði
það yfir á eiginkonu sína, Önnu Lísu
Sigurjónsdóttir, og Arndísi Björns-
dóttur, eiginkonu Sigurðar Einars-
sonar, eftir að hann var dæmdur í
Al Thani-málinu. Félaginu á Tortólu,
Robinson Associates Inc., er stýrt af
eignastýringarfyrirtækinu Chartwell
& Partners í Sviss. Þetta kemur fram
í Panamaskjölunum, gögnunum frá
lögmannsstofunni Mossack Fonseca
í Panama. Fréttin er unnin í sam-
starfi við Reykjavík Media.
Nýjustu tölvupóstarnir um starf-
semi Robinson Associates eru
einungis tæplega eins árs gamlir –
í gögnunum er að finna pósta frá
25. nóvember árið 2015 – og virð-
ist félagið því vera virkt ennþá. Í
Panamaskjölunum kemur fram að
félagið eigi ekki neinar eignir um-
fram annað Tortólafélag sem heit-
ir Njordcap Holdings Ltd. Í svörum
svissneska eignastýringarfyrirtæk-
isins í gögnunum kemur hins vegar
fram að félagið Njordcap sé „þátt-
takandi í viðskiptum í Evrópu“. Ekki
kemur fram hvaða viðskipti þetta
eru.
Hreiðar Már vill ekki ræða um
eignir Robinson eða Njordcap við
Fréttatímann. „Nei, það get ég ekki.
Ég hef ekki áhuga á að tjá mig um
þessi mál við þig.“
Í Panamaskjölunum kemur
fram að í lok apríl árið 2014 sendi
starfsmaður Chartwell & Partners
tölvupóst til Mossack Fonseca
þar sem beðið var um að gögn
um eignarhald Robinson Associ-
ates Inc. yrðu dagsett aftur í tím-
ann: „Við höfum fengið fyrirmæli
um að breyta hluthafa ROBINSON
ASSOCIATES INC.: Eigendabreyting
á Robinson Associates Inc : 50%
Anna Lisa Sigurdsson 50% Arndis
Bjornsdottir.“ Starfsmaðurinn sagði
svo: „Getið þið vinsamlegast gert
þetta og búið til samþykktir fyrir
félagið og gefið út nýtt hluthafavott-
orð með dagsetningunni 13. janúar
2014.“ Gögnin um yfirtöku þeirra
Önnu Lísu og Arndísar voru því
dagsett aftur í tímann.
Í samtali við Fréttatímann neit-
ar Arndís Björnsdóttir að ræða
um málefni Robinson Associates
Inc. og af hverju hún tók yfir félag
á Tortólu. „Ég hef ekki áhuga á að
tala við fréttamenn,“ segir Arndís.
Félaginu var stjórnað af manni sem
býr, eða bjó, í Dúbaí í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, Vincent
De Canniere, og eru gögn um hann í
Panamaskjölunum. Miðað við gögn-
in er hann ennþá stjórnarmaður fé-
lagsins.
Vegna þess að Hreiðar Már var
dæmdur í fimm og hálfs fangelsi fyr-
ir umboðssvik og markaðsmisnotk-
un í Al Thani málinu lenti hann í
því að starfsmenn Mossack Fonseca
urðu tortryggnir vegna þess að
hann hafði átt félagið. Í gögnunum
koma fram áhyggjur þeirra af því
að Hreiðar Má kunni að geyma illa
fengið fé í félaginu vegna fortíðar
sinnar á Íslandi.
Starfsmenn svissneska eignastýr-
ingarfyrirtækisins lentu í orðaskaki
við Mossack Fonseca vegna þessa
og reyndu þeir að sannfæra starfs-
menn panamaísku lögmannsstof-
unnar um að Hreiðar Már væri ekki
lengur eigandi Robinson Associates
heldur þær Anna Lísa og Arndís.
Starfsmenn eignastýringarfyrirtæk-
isins minntust hins vegar ekki einu
orði á það að Anna Lísa væri eigin-
kona Hreiðars Más og Arndís eigin-
kona eins nánasta samstarfsmanns
hans til margra ára. Starfsmaður
eignastýringarfyrirtækisins, James
Klein, sagðist meðal annars ekki
skilja „áhyggjur“ Mossack Fonseca
þar sem Hreiðar Már væri ekki
formlega tengdur félaginu lengur.
„Það er rétt að hr. Hreiðar Már Sig-
urðsson var hluthafi Robinson og
að hann er sami einstaklingur og
þú ræðir um. […] Hr. Sigurðsson
færði hlutabréf sín til annarra og
er í kjölfarið ekki meðlimur, stjórn-
andi eða stjórnarmaður í Robinson
Associates.“
Mossack Fonseca lét sér þessar
skýringar nægja og hætti að ganga
á eftir svörum hjá svissneska fyrir-
tækinu um tengsl Hreiðars Más við
fyrirtækið á Tortólu.
Hreiðar Már færði
Tortólafélag sitt yfir á
konu sína og Sigurðar
„Hr. Sigurðsson færði
hlutabréf sín til annarra.“
Í Panamaskjölunum kemur fram að Hreiðar Már Sigurðsson og eiginkona hans hafi verið í eigna-
stýringu hjá svissnesku fyrirtæki frá því fyrir hrunið árið 2008. Félag Hreiðars Más á Tortóla á í
viðskiptum í Evrópu sem ekki eru tilgreind nánar í Panamaskjölunum.
Boggie 3ja sæta sófi
KLASSÍSK
hönnun
Slitsterkt áklæði. Margir litir. Stærð: 186 x 77 x 85 cm.
Fullt verð á sófa : 99.900 kr.
Aðeins 79.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Fyrir þínar
bestu stundir
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Þú finnur nóvember-
bæklinginn okkar á
www.dorma.is
Fyrir þínar
bestu stundir
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
www.dorma.is
Nóvembermánaðar frá Yankee Candle
JÓLAILMUR
Aðeins 3.367 kr.
„ICICLES“ fæst í nokkrum stærðum og útfærslum.
Verðdæmi: Millistórt kerti í glerkrukku. Fullt verð: 4.490 kr.
Boggie 3ja sæta sófi
KLASSÍSK
hönnun
Slitsterkt áklæði. Margir litir. Stærð: 186 x 77 cm, H: 85 cm.Fullt verð á sófa : 99.900 kr.
Aðeins 79.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
Ilmur mánaðarins
SPRING AIR BEVERLY
heilsurúm með botni
• Pokagormakerfi
• Hægindalag í yfirdýnu
• Bómullar áklæði
• Steyptur svampur í
köntum
• Sterkur botn
20%
AFSLÁTTUR
Stærð cm Fullt verð Jólatilboð
160 x 200 192.900 kr. 154.320 kr.
180 x 200 204.900 kr. 163.920 kr.
180 x 210 214.900 kr. 171.920 kr.
192 x 203 229.900 kr. 183.920 kr.
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Spring Air BEVERLY heilsurúm með Classic botni
Komdu og leggstu í
draumarúmið!
Beverly og Regency eru sérlega
vönduð heilsurúm frá Spring Air,
einum þekktasta rúmafram-
leiðanda Bandaríkjanna.
Gerðu kröfur um gæði
– Spring Air stenst þær.
JÓLA-
TILBOÐ
Menning „Enginn fjölmiðill sendi
gagnrýnanda, enginn sá sér
heldur fært að taka viðtöl við höf-
uðlistamennina, Sigurð Flosason
og Kjartan Valdimarsson,“ segir
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
tónlistarmaður um tónleika í
menningarhúsinu Hofi á Akureyri
16. október.
Á tónleikunum komu fram 70 flytj-
endur., en Stórsveit Reykjavíkur og
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
frumfluttu konsert fyrir stórsveit
og sinfóníu eftir Kjartan Valdimars-
son og nýja útgáfu af Rhapsody in
Blue eftir Georg Gershwin, þar sem
spuninn spilaði stórt hlutverk.
Þorvaldur segir að viðburðurinn
hafi í raun verið þagaður í hel.
„Ég er búinn að taka þátt í að
byggja upp Menningarfélag Akur-
eyrar undanfarin 2 ár og mér bregð-
ur við að sjá þetta,“ segir hann. „Ég
hef verið viðburðahaldari í 20 ár
og skipulagt viðburði á öllu Stór-
-Reykjavíkursvæðinu og aldrei
upplifað neitt þessu líkt. Við höfum
verið með tólf stóra tónleika með
þekktum listamönnum í röð á einu
ári, sem hafa fengið sáralitla um-
fjöllun og án þess að það hafi verið
fenginn gagnrýnandi í eitt einasta
sinn til að fjalla um tónleikana,“
segir hann.
„Mér finnst þetta ákaf lega
sorglegt. Það er ekki hægt að halda
uppi standard á menningarlífinu
hér til lengdar ef það á að þagga það
niður. Listirnar færa okkur mikið
í þjóðarbúið, andlega og fjárhags-
lega en það þarf að hlúa að þeim og
veit þeim aðhald,“ segir Þorvaldur
Bjarni. | þká Tólf viðburðir í röð í menningarhúsinu Hofi hafa fengið sáralitla umfjöllun.
Þorvaldur Bjarni: Mér bregður við að sjá þetta
Þorvaldur segir að
viðburðurinn hafi í
raun verið þagaður
í hel.