Fréttatíminn - 11.11.2016, Side 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 11. nóvember 2016
Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari
FLOTTU
AFMÆLISTERTURNAR
FÁST HJÁ OKKUR
Skoðið
úrvalið á
okkarbakari.is
Dómsins
dimmu klukkur
Nú heyrist klingja klinglingaling
Í klukkum andskotans.
En mér er sama singalingaling
Ég segi far vel frans.
Því þær glymja ykkur, ykkur,
en þær ekki glymja mér
Þessar dómsins dimmu klukkur,
Ég er dauður hvort sem er.
(Gísl, höf: Brendan Behan, þýðing Jónas Árnason.)
Það hefur heyrst daufur klukkna-hljómur víða í Evrópu undan-farið, en fyrsta sterka, dimma klukknahringingin glumdi í úrslit-um Brexit í Bretlandi. Næsta – og
enn sterkari glumdi í úrslitum forsetakosn-
inganna í Bandaríkjunum. Þessar dómsins
dimmu klukkur glymja ekki þeim sem finnst
þeir dauðir hvort sem er, heldur hinum sem
þeim dauðu finnst hafa rænt þá lífinu. Það
er sjálfsmyndinni, reisninni, atvinnunni og
afkomunni og heimta nú upprisu.
Kannski snerust kosningarnar í Bretlandi
alls ekki um veru Breta í ESB né kosningarn-
ar í Bandaríkjunum um Donald Trump eða
Hillary Clinton, heldur kerfi sem hefur, að
því er virðist, gengið sér til húðar, geng-
ið of langt í auð- og valdsöfnun og má nú
þola höfnun og refsingu. Hinn „venjulegi
maður“ hefur sagt „elítunni“ stríð á hend-
ur. Stjórnmálastéttin, með stjórnsýsluna í
farteskinu, auðmenn sem í krafti peninga
og auðsöfnunar, og víðast í náinni sam-
vinnu við stjórnmálastéttina, hafa gríðarleg
völd, fjármálastéttin og stór hluti mennta-
og sérfræðingastéttanna mynda „elítu“
eða forréttindahópa vestrænna samfélaga.
Þessir foréttindahópar hafa algerlega misst
samband við millistéttina og lágstéttina og
hafa ekki minnsta áhuga þeim. Þó eru það
þessar stéttir sem byggðu það samfélag sem
forréttindahóparnir njóta nú góðs af.
Sósíaldemókratar sem lengi vel byggðu
tilveru sína á samstöðu með milli- og lág-
stéttum og sóttu styrk sinn þangað, urðu
frjálshyggjunni að bráð og vildu miklu
heldur tilheyra elítunni. Fannst það fínna.
Komu sér upp sérfræðingaveldi og töluðu
niður til baklandsins, sem nú er orðið fyrr-
verandi. Þeir uppskera nú alls staðar eins og
þeir hafa sáð til. Þeir yfirgefnu og forsmáðu
refsa þeim, reiðir, vonsviknir og bitrir. Reitt
og biturt fólk er hættulegt því auðvelt er að
fylkja því að baki hverjum þeim sem lofar
þeim að kollvarpa elítunni og hefja þá aftur
til einhverrar virðingar. Jafnvel þó um sé að
ræða skrípi, jafnvel fasista, stórhættulega
menn, bara að þeir þykist ætla að ráða bót
á kjörum milli- og lágstéttanna og meta þær
að verðleikum. Þetta hefur sagan sýnt okk-
ur, en sögulegar skýringar eru ekki í tísku,
þær gætu hitt einhverja fyrir.
Vissulega hefur samfélagið tekið mikl-
um óafturkræfum – eins og nú er í tísku
að segja – breytingum. Tæknin hefur víða
leyst vinnandi fólk af hólmi og öll samfélög
horfa nú fram á að geta ekki lofað eða út-
vegað öllum þegnunum vinnu, þess vegna
er umræða um borgaralaun, sem er önn-
ur saga – og þó. Umræða um þau verður
ábyggilega áberandi í næsta kafli í sögu
vestrænna samfélaga. Menntun er orðin
lykilatriði í nútímasamfélagi og ekki er ætl-
unin að vera á móti því eða forsmá, en – það
eru samt stórir hópar sem eru samfélaginu
nauðsynlegir. Einhverjir þurfa að fram-
leiða ofan í okkur matinn, draga fiskinn
úr sjónum, flytja okkur milli staða, byggja
vegi og hús, framleiða tækin sem við þurf-
um eða viljum, hreinsa upp draslið sem
neytendur skilja eftir sig, passa og mennta
börnin, hjúkra, annast og styrkja o.s.frv.
En „elítunni“ finnst þeir sem vinna þessi
störf ekki verðugir launa sinna né nokkurr-
ar virðingar. Hún ræður ferðinni og hefur
sitt gildismat – og það aðeins eitt – peninga.
Elítan metur sjálfa sig mest og sín störf, Hún
skammtar sér góð laun, oft ofurlaun, arð-
greiðslur, bónusa, starfslokasamninga og
alls konar fríðindi.
Sú var tíðin að kvenfrelsiskonur á Íslandi
kröfðust svara við spurningum á borð við:
„Af hverju er merkilegra að stjórna banka
en barnaheimili?“ Elítan þjappaði sér saman
og svaraði með sínu lagi. Vegna þess að pen-
ingar eru merkilegri en mannfólkið – og
náttúran. Nú spyrja konur sem tilheyra el-
ítunni ekki lengur þessara spurninga, held-
ur hamast við hausatalningar kvenna sem
hafa verið teknar í regluna og mæla árangur
baráttunnar í því hversu margir ráðherrar,
bankastjórar, forstjórar og þingmenn eru af
kvenkyni. jafn blindar á afleiðingarnar og
karlarnir sem þar voru fyrir og jafn áhuga-
lausar og þeir um „hina venjulegu konu“.
Elíta hins vestræna heims veit nú ekki
sitt rjúkandi ráð og býsnast yfir hvað fólk er
heimskt. Kýs rangt, kýs jafnvel yfir sig höf-
uðóvinina og hefur að vissu marki rétt fyrir
sér. En vonsvikið, reitt og biturt fólk er ekki
skynsamt, það vill bara ráðast á kerfið sem
hefur rænt það sjálfsvirðingunni, launum og
atvinnu og gerir það með hvaða ráðum sem
er – líka heimskulegum og hættulegum. Og
því mun ekki linna í bráð.
Einhver stjórnmálaspekingur sagði í
kosningavöku CBS að blinda stjórnmála-
spekinganna á hvað myndi gerast sýndi
að það yrði að semja allar kennslubækur
í stjórnmálafræði upp á nýtt. Ætli það séu
ekki fleiri „bækur“ sem þarf að semja upp á
nýtt. Því klukkurnar dimmu eru ekki þagn-
aðar, þær munu halda áfram að klingja sitt
klingalingaling – líka á Íslandi – og hverjar
afleiðingarnar verða er ekki gott að segja,
en víst er að það eru válegir tímar framund-
an. Elítan, sem nú flýtur sofandi að feigðar-
ósi og dregur allt mannkynið með sér, á eft-
ir að vakna upp af vondum draumi þegar
klukkurnar dimmu klingja of hátt – og hvað
gerist þá? Grípur hún til til gamalkunnra
ráða, stríðs og ofbeldis, eða semur og lærir
nýjar „bækur“?
Þórhildur Þor-
leifsdóttir skrif-
ar um lærdóm
feminista af tapi
Hillary Clinton
í forsetakosn-
ingunum í
Bandaríkjunum
Þórhildur
Þorleifsdóttir
leikstjóri
Kannski snerust kosningarnar
í Bretlandi alls ekki um veru
Breta í ESB né kosningarnar
í Bandaríkjunum um Donald
Trump eða Hillary Clinton,
heldur kerfi sem hefur, að
því er virðist, gengið sér til
húðar, gengið of langt í auð- og
valdsöfnun og má nú þola höfn-
un og refsingu.
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
FRÉTT
ATÍMI
NN
25. n
óvem
ber
Við verðum með umfjöllun um Black Friday föstudaginn
25 nóvember. Ekki missa af þessu tækifæri á því að ná í
gríðarlega stóran markhóp.
sími: 531-3310
gauti@fréttatíminn.is
SVARTUR
föstudagur
FRÉTT
ATÍMI
NN
25. n
óvem
ber
Við verðum með umfjöllun um Black Friday föstudaginn
25 nóvember. Ekki missa af þessu tækifæri á því að ná í
gríðarlega stóran markhóp.
sími: 531-3310
gauti@fréttatíminn.is
SVARTUR
föstudagur
FRÉTT
ATÍMI
NN
25. n
óvem
ber
Við verðum með umfjöllun um Black Friday föstudaginn
25 nóve ber. Ekki missa af þessu tækifæri á því að ná í
gríðarlega stóran markhóp.
sími: 531-3310
gauti@fréttatíminn.is
SVARTUR
föstudagur