Fréttatíminn - 18.11.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 18. nóvember 2016
Hælisleitendur Ekkert hefur enn
spurst til Saad Abdel Wahap frá
Togo, sem fór í gönguferð frá
heimili sínu í Njarðvík aðfaranótt
miðvikudags, skömmu áður en
von var á fulltrúum Útlendinga-
eftirlitsins og lögreglu til að senda
hann, eiginkonu hans frá Ghana
og tvö ung börn þeirra til Ítalíu.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Eins og Fréttatíminn hefur greint
frá eru börnin fædd á Íslandi og
hafa íslenska kennitölu. Hjónin
sem hafa verið á Íslandi í tvö ár hafa
ekkert fengið að vita um hvað bíði
þrátt fyrir að lögfræðingur þeirra
hafi ítrekað beðið um svör. Þau ótt-
ast að lenda á götunni á Ítalíu með
börnin. Útlendingastofnun hefur
hafnað hælisumsókn þeirra en lög-
maður þeirra hefur sent erindi til
umboðsmanns Alþingis og beðið er
eftir svari. Hann telur að brottví-
sun barna hjónanna sem eru átta
mánaða og tveggja ára gömul brjóti
í bága við íslensk lög og barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna. Undir
það tekur Katrín Oddsdóttir héraðs-
dómslögmaður á Facebook: “Þessi
börn sem átti að rífa út af heimili
sínu í gærnótt hafa búið alla ævi á
Íslandi og þar með átt hér lögheim-
ili. Þessi útúrsnúningur að eitthvað
annað en skýr lagabókstafur lög-
heimilislaganna gildi um einstak-
linga sem leita eftir alþjóðlegri
vernd hér á landi er, afsakið orð-
bragðið, kjaftæði!”
Hjónunum var einungis tilkynnt
munnlega að þau yrðu sótt og færð
úr landi. Lögreglan ætlaði fyrst að
halda brottflutningi til streitu þrátt
fyrir að heimilisfaðirinn fyndist
ekki en ákvað síðan frá að hverfa
án þess að veita neinar upplýsingar
um hvenær hún kæmi aftur.
Faðir barnanna
ennþá ófundinn
Ekkert hefur spurst til Saad Abdel Wahap sem flúði undan lögreglu í gær þegar
færa átti hann úr landi. Mynd | Hari
Sigurður Ingi Jóhannsson segist ekki trúaður á að fjölflokka stjórn með mörgu nýju fólki valdi því að stjórna landinu. Mynd | Rut
Katrín Jakobsdóttir hefur lýst því yfir
að fyrsti kostur sé að mynda fjölflokka
stjórn frá miðju til vinstri. Mynd | Hari
sushisamba.is
SPIDER RÚLLA
Crunchy linskelskrabba tempura,
fersk gúrka, mjúkt avókadó, masago
og spicy mayo ... magnað!
Djúsí
Sushi
Dómsmál Hæstiréttur Íslands
snéri niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur um að synja ferða-
þjónustufyrirtæki um leigu á
landi til þess að gera út bát á
Jökulsárlóni fyrir ferðamenn.
Hæstiréttur klofnaði í afstöðu
sinni, en Viðar Már Matthíasson
hæstaréttardómi skilaði inn sér-
ákvæði þar sem hann taldi að það
ætti að fallast á niðurstöðu héraðs-
dóms.
Í fáum orðum fjallaði dómurinn
um að Einar Björn Einarsson, einn
af landeigendum Fells, sem liggur
að Jökulsárlóni, vildi ekki heimila
félögum sínum í landeigendafélagi
um Fell, að leigja öðru ferðaþjón-
ustufyrirtæki aðstöðu til þess að
gera út báta á lóninu. Fyrirtæki í
eigu Einars hefur verið með sigl-
ingar á lóninu um árabil.
Héraðsdómur féllst á rök Einars,
meðal annars um að samkeppnin
myndi koma niður á hagsmun-
um hans. Hæstiréttur Íslands úr-
skurðaði hinsvegar að einfaldan
meirihluta landeigenda þyrfti til
þess að heimila ráðstöfunina, en
ekki samþykki allra, eins og Ein-
ar Björn hélt fram. Fyrirtækið Ice
Lagoon fær því aðstöðu til þess að
gera út siglingar á svæðinu.
Í sérákvæði Viðars Más segir að
samningurinn við Ice Lagoon hafi
verið gerður án þess að Einari, sem
á tæplega 24% hlut í sameigninni,
væri gefinn kostur á því að gæta
hagsmuna sinna fyrr en búið var
að skuldbinda félagið. Svo segir
að engin gögn liggi fyrir í málinu
um að óskað hafi verið samþykkis
Einars við þessari samningsgerð.
Því telur Viðar að hérðaðsdómur-
inn ætti að standa óhreyfður.
Hans vilji varð þó ekki ofan á eins
og fram hefur komið, og því stað-
reynd að tvö fyrirtæki munu bítast
um ferðamennina við Jökulsárlón-
ið | vg
Samkeppnisaðili fær aðstöðu við Jökulsárlón
Fyrirtæki Einars Björns Einarssonar hefur stundað siglingar um árabil á svæð-
inu. Nú fær annað fyrirtæki aðstöðu við lónið. Mynd | Shutterstock
Stjórnmál Sigurður Ingi Jóhanns-
son formaður Framsóknarflokks-
ins er mjög áhugasamur um
samstarf við Vinstri hreyfinguna
grænt framboð og telur margt líkt
með stefnu flokkanna þótt þeir
nálgist viðfangsefnin á ólíkan
hátt. Hann segir hinsvegar að
niðurstaða kosninganna kalli á
breiða stjórn frá hægri til vinstri
og er ekki trúaður á fjölflokka
stjórn frá miðju til vinstri. Þar
með slær Sigurður Ingi nánast út
af borðinu hugmyndina um að
Framsóknarflokkurinn myndi
styrkja fimm til sex flokka stjórn
en hann á ýmsar rætur í félags-
hyggju þótt hann hafi færst til
hægri á liðnum árum.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Ég tel að þau risavöxnu álitaefni
sem við stöndum frammi fyrir, kalli
á breiða stjórn og ég hef efasemdir
um að fjölflokka stjórn með mörgu
nýju fólki muni valda verkefni sínu.
Það þarf þó að mynda starfhæfa
stjórn og sú skylda hvílir á flokkun-
um. Svo eigum við ekki bara að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér.“
Sigurður Ingi hitti Katrínu Jak-
obsdóttur eins og aðrir leiðtogar
stjórnmálaflokkanna og sagði fund
þeirra hafa verið afar ánægjulegan.
Hann dregur þó engan dul á áhuga
sinn á því að starfa með VG, en sér
þá frekar fyrir sér samstarf VG og
fráfarandi stjórnarflokka.
Margir Í VG telja þátttöku Fram-
sóknarflokksins geta styrkt ríkis-
stjórnina. Þær raddir koma þó eink-
um úr íhaldssamari armi flokksins
sem óttast að sérstaða VG verði fyr-
ir borð borinn í Evrópumálunum.
„Við erum sammála um margt, til
að mynda í Evrópumálunum,“ seg-
ir Sigurður Ingi. „Við teljum ekki að
Framsóknarflokkurinn
vill stjórna með VG og
Sjálfstæðisflokki
málið eigi að vera á dagskrá núna,
ekki síst með tilliti til þess að það
standa yfir miklar breytingar í ESB
og helsta viðskiptaland Íslands er á
leið þaðan út.“
Sigurður Ingi segir enga sér-
staka gjá milli flokkanna í sjávarút-
vegsmálum. „Á síðasta kjörtímabili
vann ég frumvarp sem var unnið
upp úr sáttaferli á kjörtímabil-
inu.“ VG hefur haft talsvert aðrar
áherslur en hinir flokkarnir en þó
þannig að arðurinn af auðlindinni
eigi að skila sér til þjóðarinnar.
Ekki er útilokað að bjóða upp hluta
af laheimildanna en leggja skal
áherslu á hærri veiðigjöld. Ljóst er
að landsbyggðararmur VG og Fram-
sókn gætu hugsanlega átt samleið
ef Framsókn felst á að stórhækka
veiðigjöldin.
En eruð þið þá til í að stórhækka
veiðigjöld?
„Það er enginn að tala um að stór-
hækka veiðigjöld. það er ekkert í
umræðunni. Það er stundum mun-
ur á frambjóðendum og forsetum,
eins og við þekkjum frá Bandaríkj-
unum. Menn tala af meiri varfærni
um að kollsteypa samfélaginu núna
en þeir gerðu fyrir kosningar. Við
útilokum ekki að skoða málið heild-
stætt en það eru 650 útgerðarfyrir-
tæki í landinu og það er ekki hægt
að leggja meiri byrðar á minni fyr-
irtækin. En kannski er byrðunum
ójafnt skipt nú þegar.“
Sigurður segir að heilbrigðismál
hafi borið á góma en þar hafi hann
fullvissað Katrínu um að flokkurinn
ætli ekki að tefja nýjan Landsspít-
ala. „Við lögðum til fyrir kosningar
að skipa hóp sérfræðinga til að fara
ofan í saumana á því hvort finna
mætti nýjan stað undir spítala en
þó aðeins að það tefði ekki fram-
kvæmdina.“
Þá eru ótalin umhverfismálin
þar sem flokkarnir hafa verið alger-
lega á öndverðum meiði. Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson er áfram
áhrifamaður í Framsóknarflokkn-
um sem oddviti í Norðausturkjör-
dæmi þótt staða hans sé stórlega
löskuð. Það getur haft áhrif á hversu
stjórntækur flokkurinn er enda tal-
ast Sigmundur Davíð og Sigurður
Ingi varla við? Helsti hvati kosn-
inganna var líka birting Panama-
gagnanna þar sem Sigmundur lék
lykilhlutverk. Það er því athyglis-
vert ef Sigmundur myndi sitja sem
ráðherra í næstu ríkisstjórn. Gæti
sú staða komið upp? „Framsóknar-
flokkurinn er alveg fyllilega stjórn-
tækur, við erum með átta þing-
menn,” segir Sigurður Ingi. Hann
segir heldur ekki allskostar rétt að
þeir Sigmundur Ingi talist ekki við.
Hann segir að ekkert liggi fyrir um
hvort Sigmundur Davíð verði ráð-
herraefni fari flokkurinn í ríkis-
stjórn. „Það hefur ekkert komið til
tals.“ En kemur það til greina? „Það
verður bara að koma í ljós og meira
ætla ég ekki að segja um það.“