Fréttatíminn - 18.11.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 18. nóvember 2016
stofnsins. Við gerðumst
verndarar hennar og um leið
rándýr, því það er rándýrið sem
viðheldur heilbrigði.
Hún gaf okkur allt sem hún gat
og treysti okkur fyrir heilbrigði
sínu. Eða forfeður hennar treystu
forfeðrum okkar til þess. Frá
henni fengum við ullina í seglin
svo við gætum siglt yfir hafið og
orðið Íslendingar. Kjötið í kropp-
inn svo hægt væri að þrauka og
elskast og finna hlýju í vetrarhörk-
um. Völurnar til að spá í örlögin
og töff gærur og skinn svo við gæt-
um riðið um héröð með stæl. Og
auðvitað járnríka lífsblóðið sjálft
og leikföng fyrir börnin. Semsagt
nánast allt. (Rjóminn og mysan
og þorskurinn og allir hinir bíða
síns lofgjörðartíma). Það var engin
skuldbindingarfælni að hrjá þessa
forfeður okkar.
Formóðir veganistans
Kindin gaf okkur nánast allt sem
hefur nært okkur og viðhaldið
lífi okkar þessi þúsund ár Íslands-
byggðar, og í raun miklu, miklu
lengur. Og það var að stórum hluta
kindin sem kenndi okkur á landið.
Batt okkur órjúfanlegum örlaga-
þráðum svo að nú hefur orðið átt-
hagafjötrar fallegan hljóm í huga
okkar Íslendinga.
Í dag ferðast ullin hennar um
heim allan, hún fellur út með
túristaflóðinu, enda líta margir
ferðamenn svo á að það sé nánast
það sama og að vera Íslendingar
og að eiga íslenska lopapeysu. Á
meðan sitjum við við tölvurnar
og skiptum okkur í lið með eða á
móti búvörusamningnum, með
eða á móti bændum. Við erum
annaðhvort neytendur eða fram-
leiðendur.
Staðreyndin er samt sem áður
sú að kindin er formóðir dóttur
minnar, og hún og er líka formóð-
ir dóttur veganistans. Hún er
formóðir okkar Íslendinga. Því
sá sem ól fyrsta forföðurinn er
auðvitað forfaðir. Við getum ekki
valið þá forfeður sem okkur lík-
ar best við úr ættleggnum. Í því
samhengi skiptir engu máli hvaða
næringarsiðfræðipostillu við kjós-
um. Getum við ekki byrjað á þessu
áður en við setjumst sitt hvoru
megin við borðið að ræða búvöru-
samninga. Munað að við erum í
sama liði, af sama ættbálki?
Heilar á skólanefndarfundi
Um daginn aðstoðuðum við
mæðgur vini okkar á Melum,
Björn og Böddu, í heimaslátrun.
Hún er öðruvísi en sú sem fyrir
börnunum er höfð í Minecraft
leiknum. Þar þurfa börnin að slá
skepnurnar í höfðið ítrekað til
að drepa þær. Á Melum er hlýjan
nánast áþreifanleg og augljóst
að samningurinn forni er enn í
fullu gildi. Dóttir mín steig þarna
vígsluskref í átt að raunveruleikan-
um og hjálpaði svo við að skrúbba
skrokkana eftir slátrun og ganga
frá því sem átti að urða. Dauðan-
um er nefnilega ekki úthýst hér
heldur.
Ég þurfti svo að skjótast á
skólanefndarfund í Finnboga-
staðaskóla og þar færði Ingólfur í
Árnesi mér nokkra kindaheila sem
ég nota til að súta gærur. Ég stopp-
aði svo á leiðinni heim í Árnesi þar
sem Ingvar og Valgeir höfðu geymt
fyrir mig fallegar gærur af nýslátr-
uðum lömbum. Þegar ég kom á
hlaðið voru þeir að sauma saman
kind sem hrafninn hafði krunkað
í. Ég frétti svo að Systa á Krossnesi
hefði skilið eftir handa mér fleiri
heila sem Hulda í kaupfélaginu
geymdi fyrir mig í smjörkælinum.
Þegar við komum heim borðuðum
við safaríkan frambóg í steikar-
samloku og fluttum svo leggi og
gærur yfir kaupfélagsplanið út í
kvenfélags herbergið sem Gunn-
steinn og Maddý á
Bergistanga lán-
uðu mér fyrir
gæruvinnuna. Næsta dag fékk ég
fjórar vambir á Melum því mig
langar að læra að hreinsa vambir í
heita vatninu fyrir ofan Krossnes-
laug og fylla af lifrarpylsu. Björn
og Badda og Gulli lögðu svo á sig
að hreinsa út gorið fyrir mig og
taka þær frá. Í kaupbæti fékk ég
blóðgraut og lifrarbuff í hádegis-
mat á Melum.
Svona renna dagarnir fram
hérna, með kindinni og öllu því
sem hún gefur og þannig reyni
ég að rifja upp ævafornan samn-
inginn, með höndunum í hvers-
dagsleikanum og með hjálp góðra
granna.
Hvar fela guðirnir sig?
Hvar fela guðirnir sig á viðsjár-
verðum tímum er þungavigt-
arspurning sem passar ótrúlega
vel við dagana hér í Árneshreppi.
Við slíkum spurningum er hvorki
til einfalt svar né endanlegt, þær
taka á sig mynd gátu með tím-
anum og geta orðið að lífstíðar-
vinum. Þessi spurning er ein af
mínum uppáhalds því hún kveikir
svo vel í ímyndunaraflinu, hún
étur ekki upp ráðgátu lífsins held-
ur nærir hana. Góður vinur minn
sem er sérlegur gátusmiður af
þessari gerð kenndi mér þessa og
svarar henni svona: Á viðsjárverð-
um tímum fela guðirnir sig þar
sem engum dettur í hug að leita
þeirra!
Það er náttúrulega vel þekkt
saga að guðir eiga það til að fela
sig í fjárhúsum á viðsjárverðum
tímum. Svo hver veit, kannski eru
þeir einmitt þar, líka núna. Með
henni Örlög minni, Sísí og Bíbí og
öllum hinum þar sem menn og
dýr heiðra ævaforna samninga
forfeðranna og næra lífið í hvers-
dagsleikanum.
Elín Agla er móðir Jóhönnu Engil-
ráðar, þjóðmenningarbóndi, hafnar-
stjóri, áhugasútari og skólabíl-
stjóri. Hún sendir fréttaskeyti með
hversdagslegu ívafi úr Norðurfirði á
Ströndum. Hún stærir sig af því að
geta ekki útskýrt hvað hún meinar
með því sem hún skrifar.
Dóttir mín steig þarna
vígsluskref í átt að raun-
veruleikanum og hjálpaði
svo við að skrúbba
skrokkana eftir slátrun
og ganga frá því sem átti
að urða.
Á viðsjárverðum tímum fela guðirnir sig þar sem engum dettur í hug að leita þeirra!
„Frá kindinni fengum við ullina í
seglin svo við gætum siglt yfir hafið og
orðið Íslendingar,“ segir
Elín Agla.
af
mæ
listilbo
ð
lín design
20-50%
AFSLÁ
TTUR AF VÖLDUM VÖRUM
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
Bera - Toppur
Verð nú 2.792 kr.
Verð áður 3.490 kr.
Megi draumar þínir rætast
Verð nú 8.386 kr.
Verð áður 11.980 kr.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
frettatiminn.is