Fréttatíminn - 18.11.2016, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 18. nóvember 2016
Þegar lögregluaðgerðir mis-bjóða réttlætiskennd þeirra sem eiga að framfylgja þeim. Þegar einkennisbún-
ir menn, með tómlæti eða jafnvel
sorg í augunum, eiga að draga
skelfingu lostið fólk upp úr rúmum
sínum um miðja nótt og henda
því úr landi ásamt grátandi smá-
börnum, án þess að sjá í því neina
meiningu, bara af því þeir eru að
framfylgja skipunum og vinna
vinnuna sína. Þá erum við komin á
hættulega braut.
Þeir sem framfylgja illskunni og
hinir sem verða fyrir henni sjást
stundum á vettvangi, annars hef-
ur hún ekkert andlit. Hún verður
einsog móðir allrar skynsemi,
hafin yfir það að þurfa að verja
hendur sínar.
Fulltrúar valdsins mæta á stað-
inn, losa sig við öll vitni, draga
fyrir gluggana, það heyrast skelf-
ingaróp og grátur lítilla barna og
á gluggatjöldunum bregður fyrir
skuggunum af svartklæddu fólki
sem stikar þungbúið fram og aftur.
Dyrnar opnast. Svartklædda fólk-
ið kemur út. Það fer í humátt upp
í svarta sendibifreið og neitar að
segja til um hvort og þá hvenær
það kemur aftur.
Í íbúðinni er móðir tveggja
smábarna í taugaáfalli, eigur fjöl-
skyldunnar eru í lúnum ferða-
töskum og ruslapokum á miðju
gólfinu. Heimilisfaðirinn er á flótta
úti í brjáluðu vetrarveðri. “Við
munum elta hann uppi og færa
hann í varðhald þar til hann verð-
ur fluttur úr landi.”
Þannig hljóma huggunarorð
lögreglumanns til konunnar og
barnanna.
Allir lögreglumenn á vettvangi
eru á launum frá íslensku þjóðinni
við að halda uppi lögum og reglu
og fylgja eftir skipunum frá æðstu
stöðum. Á æðstu stöðum kann-
ast síðan enginn við að hafa gefið
slíkar skipanir þegar málin komast
í hámæli.
Eða stendur hvergi skrifað að
lögreglan eigi að fara svona að
gagnvart varnarlausu fólki í erfiðri
stöðu?
Sumir lögreglumenn á vettvangi
finna til sín í slíkum aðstæðum
og virðast kunna vel við sig. Aðrir
upplifa sorg og skömm og reyna að
brynja sig, stundum með þeim ár-
angri að þeir virðast harðari af sér
en verstu fantarnir.
En þannig birtist hún íslenska
mannúðin og enginn ber raun-
verulega ábyrgð. Afhverju fá sum
börn sem fæðast á Íslandi ekki
að eiga hér lögheimili með þeim
réttindum og skyldum sem það
felur í sér?
Fjölskyldan fær nú ekki að vita
hvað um hana verður. Fær hún
mat og húsaskjól á nýja staðnum?
Verður henni leyft að vera áfram í
nýja landinu eða vísað áfram eitt-
hvað annað?
Við höfum líka heyrt hetjusögur af
skipum Landhelgisgæslunnar sem
hafa verið fengin að láni og notuð
við björgunarstörf í Miðjarðarhaf-
inu. Við höfum séð myndir af ís-
lenskum sjómönnum draga hrakið
flóttafólk upp úr sjónum, vefja
það inní teppi og færa það á þurrt
land. Hrjúfir íslenskir menn með
smábörn í fanginu fylla okkur
þjóðarstolti. Þeirra framlag skiptir
máli. Fréttamenn eru boðnir vel-
komnir með upptökutækin sín,
sjónvarpsvélarnar og myndavél-
arnar til að ná afrekunum á mynd.
Það er enginn feluleikur í gangi
enda engin myrkraverk á ferðinni.
En hvað verður um þessi smá-
börn? Koma þau seinna til Íslands?
Verða þau dregin upp úr rúmum
sinum um miðja nótt af svart-
klæddu fólki og send á götuna
í öðrum löndum þar sem ríkir
neyðarástand í málefnum flótta-
fólks?
Við fáum aðeins að heyra lítið brot
af örlagasögum þess fólks sem
hingað leitar. Flest fólk sem er sent
úr landi í skjóli nætur, fer alger-
lega framhjá okkur. Neyðarópin
og gráturinn eru ekki tekin upp á
myndband og augu fólksins stara
ekki á okkur af ljósmyndum.
Þegar það gerist bregður okkur
illa í brún. Er þetta fólk svona hart
leikið í landinu okkar? Hvaðan
kemur þetta kaldlyndi og afhverju
þetta miskunnarleysi?
Afhverju hleypur marghrjáð-
ur og illa klæddur Afríkumaður
út í frostkalda nóttina til að forða
börnunum sínum frá því að vera
send út í algera óvissu.
Þegar valdinu er svo í þokkabót
framfylgt af fólki sem hefur svo
mikla óbeit á eigin framferði að
það má vart mæla og fer nán-
ast út úr líkamanum meðan það
framkvæmir hluti sem enginn vill
kannast við að hafa fyrirskipað.
Þá er eitthvað mikið að í íslensku
samfélagi.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
HVAÐAN
KEMUR ÞESSI
ILLSKA?
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
78
53
6
Frá kr. 89.995
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 89.995 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 10 nætur.
Frá kr. 130.195
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 130.195 m.v. 2
fullorðna í stúdíó.
30. nóvember í 17 nætur.
Frá kr. 75.995
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 75.995 m.v. 2
fullorðna í stúdíó.
30. nóvember í 17 nætur.
Compostela
Beach Golf Club
Hotel Villa
Adeje Beach
Apartments
Paradero I
BÓKAÐU SÓL
Í NÓVEMBER
Frá kr.
56.315
Allt að
50.000 kr.
afsláttur á mann
GRAN CANARIA
TENERIFE
Allt að 41.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 50.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 46.000 kr. afsláttur á mann
Frá kr. 57.995
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 57.995 m.v. 3
fullorðna í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 119.895 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 13 nætur.
Los Tilos
Allt að 30.000 kr. afsláttur á mann
Frá kr. 56.315
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá kr.
56.315 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 67.380 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 6 nætur.
Roque
Nublo
Allt að 30.000 kr. afsláttur á mann