Fréttatíminn - 18.11.2016, Qupperneq 50
Flest þekkjum við streitu eða stress af eigin raun og hvernig það getur magnast upp af nánast engu tilefni. Stressið
getur vissulega verið gott í hófi og
jafnvel styrkt okkur, en of mikið
stress er alltaf neikvætt. Bæði fyrir
andlega og líkamlega heilsu. Ýmis-
legt sem við höfum vanið okkur á í
daglegu lífi eykur stressið til muna
án þess að við gerum okkur grein
fyrir því og margar aðferðir sem
við notum til að forðast stressið
geta haft þveröfug áhrif. Hér eru
nokkur dæmi um það sem þú átt
ekki að gera.
1 Forðast streituvaldinnÞað er vissulega freistandi að forðast það að opna tölvu
póstinn yfir höfuð þegar þú veist
að það bíða þín fimmtíu ólesnir
tölvupóstar sem þarf að svara.
Eða láta aðra sjá um að tala á
fundinum af því þér finnst þú
ekki koma efninu nógu vel frá þér.
En því meira sem þú reynir að
forðast þessa hluti, því stress
aðri verður þú. Með því að takast
á við streituvaldinn nærðu betri
tökum á honum og með tímanum
minnkar streitan.
2Fara of seint að sofaÞað virðist kannski vera góð hugmynd að kvöldi til
að horfa á einn þátt í viðbót fyrir
svefninn en daginn eftir er hún
það yfirleitt ekki. Sérstaklega
ekki ef komið var fram yfir mið
nætti. Þreyta gerir þig mun mót
tæklegri fyrir streitu og það eru
miklu meiri líkur á því að þú hafir
óþarfa áhyggjur.
3Gerast sófakartaflaHreyfingarleysi er olía á eld streitunnar. Ef stressið er að
plaga þig, ekki setjast upp í sófa
og reyna að láta það hverfa. Það
gerist ekki. Farðu frekar í ræktina
eða í smá göngutúr. Það hefur já
kvæð áhrif á sálartetrið og streit
an líður úr þér.
4Pústa við vininaOkkur þykir líklega flestum gott að pústa aðeins við vin
ina eða makann eftir erfiðan dag.
Ræða það sem okkur finnst hafa
farið miður og er að angra okkur.
Það getur hins vegar aukið stress
ið enn frekar, og það sem meira er,
stressið getur smitast yfir á þann
sem þú ert að tala við. Og fyrr en
varir nærið þið neikvæðar tilfinn
ingar hvors annars.
5Skoða Facebook fréttaveitunaÞað er varla hægt að skoða
Facebook án þess að rekast á
myndir af nýfæddum börnum,
sónarmyndir, sólarmyndir frá
Tenerife eða tilkynningar um trú
lofanir. Gleðitíðindi annarra geta
ómeðvitað aukið á streituna hjá
okkur sjálfum, sérstaklega ef okk
ur finnst við eiga eftir að afreka
eitthvað í lífinu. Að renna yfir
Facebook oft á dag er því ekki
skynsamleg iðja fyrir stressaðar
týpur.
6Fara í verslunarferðSumir telja það streitulosandi að skella sér í
Kringluna og kaupa eitthvað fall
egt en fyrir flesta er það alls ekki
raunin. Það hljómar kannski eins
og góð hugmynd en rannsóknir
hafa sýnt fram á að efnishyggja
er einn af helstu orsakavöldum
streitu.
7Taka skyndiákvarðanirÁkvarðanir sem við tökum í streituvaldandi aðstæð
um geta virst mjög lógískar þá
stundina, en þegar frá líður eru
þær það kannski ekki. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að fólk tekur ekki
jafn skynsamlegar ákvarðanir, til
lengri tíma litið, undir miklu álagi
og stressi.
Ýmislegt sem við gerum í daglegu lífi kann að auka
streitu án þess að við gerum okkur grein fyrir því.
7streitumistök sem við gerum flest
…heilsa kynningar 6 | amk… FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016
Active Liver virkar fyrir mig
Fita er ekki bara bundin við maga, rass og læri.
Hún getur einnig sest innan í líffærin, þar á meðal lifrina.
Kynning í samstarfi við Icecare
Jóna Hjálmarsdóttir hefur notað Active Liver í nokkra mánuði með góðum árangri. „Ég ákvað að
prófa Active Liver eftir að ég sá
að það er úr náttúrulegum efnum
og ég hef fulla trú á að náttúru
efnin í vörunni stuðli að eðlilegri
lifrarstarfsemi. Ég er sjúkraliði að
mennt og er meðvituð um líkams
starfsemina og veit að fita getur
safnast á lifrina, þess vegna vildi
ég prófa.“
Fékk fljótlega aukna orku
Hún segist hafa fundið fljótt mun
á sér. „Ég fékk fljótlega aukna
orku og mér finnst auðveldara
að halda mér í réttri þyngd, enda
inniheldur Active Liver kólín sem
stuðlar að eðlilegum fituefna
skiptum. Ég er í vinnu þar sem
ég þarf að vera mikið á ferðinni,
ég er í góðu formi og hef trú á að
Active Liver virki fyrir mig. Einnig
finn ég mikinn mun á húðinni á
mér, hún ljómar meira og er mýkri.
Ég er mjög ánægð með árangur
inn og mæli með Active Liver
fyrir fólk sem hugsar um að halda
meltingunni góðri,“ segir Jóna.
Starfsemi lifrarinnar hefur
mikið að segja um
líkamlegt heilbrigði
og hefur lifrin
mikla þýðingu fyrir
efnaskiptin. Það
geta verið margar
ástæður fyrir því
að fita safnast upp
í lifrinni. Það getur
verið vegna áfeng
isneyslu en það
getur einnig verið
vandamál hjá fólki
í yfirþyngd. Þreyta
og þróttleysi geta
verið merki um að
mikið álag sé á lifr
inni.
Nýtur þú lífsins of mikið?
Þegar lífinu er lifað til fulls er
auðvelt að finna fyrir því og það
sést á fólki. Dagsdaglega leiðir
fólk almennt ekki hugann að lifr
inni. Hún gegnir þó mikilvægu
hlutverki varð
andi efnaskipti
og niðurbrot á
fitu. Of mikið
af kolvetnum,
of mikið áfengi
og feitur matur
valda of miklu
álagi á starfsemi
lifrarinnar og
gallsins.
„Matur sem
neytt er nú á
dögum inniheld
ur meira af kol
vetnum en matur
sem forfeður
okkar neyttu.
Við erum ekki vön þeim. Of stór
skammtur af kolvetnum miðað
við prótein gerir lifrinni erfitt að
viðhalda eðlilegum efnaskiptum
og niðurbroti á fitu. Sem betur fer
eru það ekki einungis prótein sem
geta örvað lifrarstarfsemina,“
útskýrir Ólöf Rún Tryggvadóttir,
framkvæmdastjóri hjá IceCare.
Leyndarmálið um Active Liver
Active Liver inniheldur náttúru
legu jurtirnar túrmerik og svartan
pipar. Einnig ætiþistil og mjólk
urþistil sem er þekktir fyrir að
stuðla að eðlilegri starfsemi
lifrarinnar og gallsins. Einnig
inniheldur Active Liver kólín sem
stuðlar að eðlilegum fitefnaskipt
um, viðheldur eðlilegri starfsemi
lifrarinnar og stuðlar að eðlileg
um efnaskiptum að því er varðar
amínosýruna hómósystein.
Sjúkraliði Jóna Hjálmarsdóttir
3l. 10kg.
FÖRUM VARLEGA
INN Í VETURINN
byko.is
5 eða
25kg.
S-
3XL