Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 18.11.2016, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 18.11.2016, Blaðsíða 60
…vegan heilsa kynningar 16 | amk… FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Gunndís Eva „Síðustu sex mánuðina hefur orðið ótrúlega mikil vitundarvakning og vöruúrvalið breikkað eftir því, núna er allt miklu einfaldara.“ Mynd | Rut Vegan snyrtivörur frá Benecos Lífrænar snyrtivörur án aukaefna og „cruelty-free“ Unnið í samstarfi við Heilsu ehf. Vörumerkið Benecos hefur sannarlega sleið í gegn á Íslandi, enda kunna Íslendingar að meta vandaðar og góðar vörur sem virka. Ekki skemmir fyrir að þær innihalda lífrænt hráefni og stór hluti af úrvalinu er vegan. „Benecos er merki sem hefur þróað náttúrulegar og fallegar förðunarvörur á mjög viðráðan- legu verði fyrir snyrtibudduna. Vörurnar innihalda ekki parafín, paraben, silikon, PEG, tilbúinn lit, ilm eða rotvarnarefni og engar vörur frá Benecos eru prófaðar á dýrum,“ segir Signý Skúladóttir, markaðsstjóri Heilsu, sem flytur inn vörurnar frá Benecos. Benecos býður upp á mikið úrval af vegan vörum. „Þar má nefna natural creamy farðann sem tryggir jafna og slétta áferð, laust mineral púður sem sér til þess að Tveir nýir maskarar Gefa flott útlit og næra augnhárin í leiðinni. Augnskuggapalletta Allir augnskuggar frá Benecos eru vegan Naglalakk Endingargóð 5-free vegan naglalökk í mörgum litum. Náttúru- legur farði Tryggir jafna og slétta áferð. Sturtusápa Með unaðsleg- um apríkósum. Handáburður Mýkir og nærir hendurnar. „Benecos er merki sem hef ur þróað náttúru legar og fallegar förðun arvörur á mjög viðráða nlegu verði fyrir snyrtibuddun a.“ húðin verði jöfn og mött og einnig mjúkt og fallegt „translucent“ púður sem bættist við úrvalið núna í haust og er mjög vinsælt. Að auki eru augnskuggarnir vegan ásamt augnbrúnablýantin- um sem er einstaklega þægilegur í notkun,“ segir Signý. Enn bætist í úrvalið, þessa dagana er Benecos að kynna tvo nýja maskara. „Þetta eru Natural Vegan Wonder steel gray en hann inniheldur e-vítamín og avocado olíu sem gefa augnhárunum góða næringu og Natural Vegan Volume magic black með bursta sem greiðir vel úr hverju augnhári, lengir og gefur dýpt,“ segir Signý og bætir við að einnig sé gott úr- val af vegan bodylotion, handá- burði og sturtugeli. Vörurnar frá Benecos fást í Heilsuvörubúðum og apótekum og nú einnig í Hagkaup Smáralind. Frábært úrval veganvara í Gló Allt frá prótíndufti til snyrtivara Unnið í samstarfi við Gló Gló við Faxafen býður upp á mikið úrval veganvara sem henta við hvert tækifæri. „Við erum með gríðarlega mikið magn af fljótlegum mat eins og til dæmis núðlum, hrísgrjóna- réttum og öðru sem hægt er að taka með í vinnuna eða í skólann, kínóaréttirnir eru sumir heitir, það þarf bara að setja heitt vatn út í þá. Svo erum við líka með súpur og vegan mac’n cheese,“ segir Gunn- dís Eva Baldursdóttir í Gló. Gunndís hefur sjálf verið vegan um langt skeið og finnur því á eig- in skinni hversu mikið vöruúrvalið hefur breikkað. „Bara síðustu sex mánuðina hefur orðið ótrúlega mikil vitundarvakning og vöruúrvalið breikkað eftir því, núna er allt miklu einfaldara,“ segir Gunndís en hjá Gló er hægt að kaupa allt sem þarf sem vegan. „Það er svo margt sem fólk fattar ekki að sé ekki vegan eins og til dæmis sumar snyrtivör- ur og hreinsivörur en við erum með mikið úrval af þannig vörum.“ Mörgum finnst þægilegt að grípa með sér kalda kaffidrykki sem flestir innihalda mjólk en í Gló er hægt að fá gómsæta kaffidrykki sem innihalda ekki mjólk. Eins er hægt að fá orkumikla prótíndrykki með súkkulaði- og vanillubragði sem er gott að grípa með milli mála. Hægt er að kaupa mikið af allskyns snarli svo sem smjörpopp og ostapopp og nóg af súkkulaði og sætindum fyrir sælgætisgrís- ina, til dæmis hnetusmjörsnammi í anda Reese’s - nema veganútgáfan heitir Justin’s og er ekki síðri. Auk þessa alls er vitanlega mik- ið úrval af vegankjöti, til dæmis frá vinsæla merkinu Seytan, sex tegundir af vegansmjöri og margar tegundir af veganjógúrt og vegan- mjólk, veganprótín og bætiefni í smoothie; eins og áður sagði - allt sem þarf til að vera vegan. Ótrúlega fjölbreytt úrval „í Gló er hægt að fá allt sem þarf til að vera vegan.“ Mynd | Rut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.